Morgunblaðið - 02.06.2012, Síða 60
60 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2012
Sérsmíðaðar baðlausnir
Speglar • Gler • Hert gler
Öryggisgler • Litað gler • Bílspeglar
Sandblástur • Álprófílar
Máltöku- og uppsetningaþjónusta
Við leggjum metnað
okkar í að bjóða sérhæfðar
og vandaðar lausnir á
baðherbergi.
Við bjóðum upp á
sérsmíðaða spegla,
sturtuklefa og sturtu-skilrúm.
Þá erum við komnir með nýja
útgáfu af ljósaspeglunum
okkar vinsælu.
Á nýrri heimasíðu okkar
glerslipun.is er gott yfirlit yfir
það sem er í boði. Auk þess
bjóðum við alla velkomna
í Vatnagarða 12 þar sem
fagfólk veitir góða þjónustu
og allar þær upplýsingar sem
þarf.
Vatnagarðar 12 | Sími 588 5151 | Fax 588 5152 | glerslipun.isSTOFNAÐ 1922
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Útskriftarverk hinnar margreyndu
tónlistarkonu Ragnhildar Gísladótt-
ur, sem lokið hefur MA-námi í tón-
smíðum við Listaháskóla Íslands,
nefnist i ii iii iv og samdi hún hluta af
því við ljóð Kristínar Ómarsdóttur,
Skuggi minn og Neðansjávar. Tón-
verkið er í fjórum þáttum og byggir
Ragnhildur það á niðurstöðum rann-
sókna sinna á því hvernig hópur
heyrnarlausra skynjaði tónlist. Og
staðurinn sem hún valdi til að flytja
verkið og halda útskriftartónleika,
neðri bílakjallari tónlistarhússins
Hörpu, er heldur óhefðbundinn en
verkið verður flutt þar kl. 16 í dag.
Skynja tilfinningar
Blaðamaður ræddi við Ragnhildi í
miðri viku og spurði hana fyrst út í
rannsóknir hennar á því hvernig
heyrnarlausir skynji tónlist.
„Ég byrjaði reyndar á þessu í BA-
náminu og þá var ég að kanna hvort
og hvernig fólk með óvirka heyrnar-
stöð skynjaði tónlist. Ég var svona
að velta fyrir mér hvort þeir gætu
fundið eitthvað sem við sem heyrum
missum kannski af. Þeir eru afar
næmir á hljóðbylgjur, titring tónlist-
arinnar og hljóðanna þótt þeir heyri
ekki neitt og þá var forvitnilegt að
kanna hvort þeir skynjuðu ein-
hverjar tilfinningar í þessum hljóð-
dæmum, hvort þau sæju myndir, liti
eða hvað og það reyndist vera nið-
urstaðan og það meira að segja gæt-
ir samræmis í svörum þeirra við
hljóðdæmunum. Svo það er núna al-
veg ljóst að heyrnarlausir heyra,“
segir Ragnhildur. „Tónverkið bygg-
ist á þessum elementum sem ég
skoðaði í rannsókninni. Svo verður
að koma í ljós hvort mér tekst að
skapa samsvarandi áhrif með minni
tónlist og þeir heyrnarlausu upplifðu
í hljóðdæmunum.“
-Nú eru tónleikarnir í bílakjallara
Hörpu, er ástæðan sérstakur hljóm-
burður þar?
„Það er spennandi að taka áhætt-
una. Það hafa, að ég held, ekki verið
haldnir neinir tónleikar þarna sem
ég kalla núna rótarstöðina í Hörpu.
Það má segja að við séum nokkuð
neðansjávar þarna á þessum stað, en
áhættan felst í að leika sér í þessu
langa bergmáli (reverb) sem er
þarna og við vitum ekki hvernig
kemur til með að virka.“
Ný leið til að leika á gítar
-Hvernig verður verkið flutt,
verður það flutt af hljómsveit?
„Já, með mér eru fimm söngvarar,
kontrabassaleikari, slagverksleikari,
harmonikkuleikari, snittubassaleik-
ari og snittukassaleikari. Ég kynni
til sögunnar nýja tækni sem ég held
að ég hafi fundið upp, kannski er það
vitleysa í mér, sjáum til. Hún kemur
til vegna þess að ég kann ekki á
hefðbundinn gítar. Með snittuteini
fann ég leið til að spila á gítar á nýj-
an máta og það er harla viðkvæmt
og vandasamt. Hljóðfærið er strokið
með þessum snittuteini og ég er svo
heppin að það eru tveir snillingar
sem koma til með að spila með þess-
um hætti í Rótarstöðinni í dag, á raf-
bassa (snittubassa) og kassagítar
(snittukassa),“ segir Ragnhildur og
hlær. Þá séu einnig hljóðmyndir í
verkinu sem vonandi hafi tilætluð
áhrif.
Alltaf að semja
-Hvað tekur svo við hjá þér?
„Að halda áfram að semja músík.“
-Er þá plata á leiðinni?
„Það er partur af því en ég er að
búa til tónlist við sjónvarpsþáttaröð
sem byrjað er að taka upp. Þetta er
mitt líf, alla daga, allar stundir og þó
ég sé að tala við þig núna þá er ég að
semja tónlist um leið. Það er nú bara
einhvern veginn þannig, þó maður
átti sig ekki alveg á því,“ segir Ragn-
hildur og hlær. Hvaða sjónvarps-
þætti um ræðir má ekki greina frá
að svo stöddu.
Spennandi að taka áhættu
Ragnhildur Gísladóttir heldur tónleika í bílakjallara Hörpu
Tónverk byggt á því hvernig heyrnarlausir skynja tónlist
Sköpun Ragnhildur Gísladóttir segist alltaf vera að semja tónlist, öllum
stundum og þá jafnvel á meðan hún ræðir við blaðamenn.
„Þetta verða mjög leikrænir tón-
leikar,“ segir Berglind María Tóm-
asdóttir flautuleikari um verk sitt
Ég er eyja sem flutt verður í Kalda-
lóni í Hörpu í dag kl. 17, en verkið
er hluti af tónleikaþrennu ungra
tónskálda á Listahátíð í Reykjavík.
Ég er eyja er margmiðlunarverk
sem flutt verður af höfundinum
sjálfum og tónlistarmanninum Dav-
íð Þór Jónssyni, en í flutningi sín-
um notast þau við vídeó sem unnin
voru í samstarfi við myndlistarkon-
una Frankie Martin, vettvangs-
upptökur og heimasmíðað hljóð-
færi er þau kalla hrokk svo fátt eitt
sé nefnt.
Spurð um tilurð verksins segist
Berglind hafa farið að velta fyrir
sér hugmyndum um þjóð-
areinkenni. „Ég var að skoða þjóð-
ernisstefnuna áður en hún varð
vond,“ segir Berglind og bendir á
að hún hafi m.a. skoðað gamla
þjóðbúninga og þjóðlög. „Ég hef
t.d. verið að semja lög sem mig
langar til að hljómi eins og þjóðlög
án þess að vera það,“ segir Berg-
lind og tekur fram að hún sé með-
vitað að spila inn á ákveðna stemn-
ingu sem oft megi finna í
raunverulegum þjóðlögum.
Spilar á flautuna með nöglum
Aðspurð segist Berglind hafa
samið verkið í vetur og flutt það í
aðeins breyttri mynd og með ann-
arri hljóðfæraskipan í byrjun þessa
árs innan veggja skólans þar sem
hún nemur. Berglind hefur sl. fjög-
ur ár lagt stund á nám í flutningi
nútímatónlistar við Kaliforníu-
háskóla í San Diego og stefnir að
því að ljúka námi á næsta ári.
„Þó ég spili á flautuna á tónleik-
unum er óhætt að segja að hún sé
ekki sérlega flautuleg á þessum
tónleikum,“ segir Berglind og tek-
ur til útskýringar fram að hún leiki
m.a. á flautuna með nöglunum á
sér. „Það er alltaf gaman að gera
tilraunir með hljóðheim flaut-
unnar,“ segir Berglind að lokum.
silja@mbl.is
Hrokkur Á tónleikunum leikur Berglind María m.a. á heimasmíðað hljóð-
færi sem hún nefnir hrokk, sem innblásið er af spunarokknum.
Leikrænir tónleikar
Nýtt verk eftir Berglindi Maríu
Tómasdóttur verður flutt í Kaldalóni
Uppsetning Þjóðleikhússins á Vesa-
lingunum eftir Alain Boublil og
Claude-Michel Schönberg byggð á
skáldsögu Victors Hugo hlaut flest-
ar tilnefningar til Grímunnar, ís-
lensku sviðslistaverðlaunanna 2012,
eða alls níu. Þetta kom fram í Tjarn-
arbíói í gær þar sem tilnefningarnar
voru kynntar, en verðlaunin sjálf
verða afhent í Hörpu 14. júní. Vesa-
lingarnir voru m.a. tilnefndir sem
sýning ársins, Selma Björnsdóttir
fyrir leikstjórn sína á verkinu og
Þór Breiðfjörð sem söngvari ársins.
Afmælisveislan eftir Harold Pin-
ter hlaut næstflestar tilnefningar
eða sjö. Hún var þannig tilnefnd
sem sýning ársins, Guðjón Pedersen
fyrir leikstjórn auk þess sem Ingvar
E. Sigurðsson, Kristbjörg Kjeld,
Björn Thors, Eggert Þorleifsson og
Erlingur Gíslason voru öll tilnefnd
fyrir leik sinn ýmist í aðal- eða
aukahlutverkum.
Fimm leiksýningar hlutu tilnefn-
ingar sem sýning ársins 2012 og
þær voru, auk tveggja ofangreindra
sýninga, Heimsljós eftir Halldór
Laxness, Hreinsun eftir Sofi Oks-
anen og Tengdó eftir Val Frey Ein-
arsson.
Sýningarnar Heimsljós, Svartur
hundur prestsins og Tengdó fengu
allar samtals fimm tilnefningar
hver.
Sem leikskáld ársins voru til-
nefnd þau Valur Freyr Einarsson
fyrir Tengdó, Auður Ava Ólafs-
dóttir fyrir Svartan hund prestsins,
Eiríkur G. Stephensen, Hjörleifur
Hjartarson og Benedikt Erlingsson
fyrir Sögu þjóðar, Leikhópurinn 16
elskendur fyrir Sýningu ársins og
Þór Tulinius fyrir Blótgoða.
Tilnefnt var í átján flokkum en
alls komu 89 leiklistarverkefni til
álita í ár, þar af voru 7 útvarpsverk,
9 barnaleikhúsverk, 23 dansverk og
50 sviðsverk. Tæmandi lista yfir til-
nefningarnar má finna á mbl.is.
Stjarna Þór Breiðfjörð er til-
nefndur sem söngvari ársins.
Vesalingarnir með flestar
tilnefningar til Grímunnar