Morgunblaðið - 02.06.2012, Page 61
MENNING 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2012
Gálgaklettur og órar sjónskynsins
er yfirskrift sýningar sem opnuð
verður í dag í Listasafni Reykjavík-
ur, Kjarvalsstöðum, kl. 16. Grunnur
sýningarinnar er verk sem Kjarval
málaði á stað sem hann kenndi við
Gálgaklett, í Garðahrauni norðan
Hafnarfjarðar. „Sýningin fjallar
öðru fremur um fyrirbærafræði
sjónskynsins þar sem sýningar-
stjórinn Ólafur Gíslason hefur til
hliðsjónar verk eftir tuttugu aðra
íslenska listamenn og finnur í þeim
endurómun við Gálgakletts-
viðfangsefni Kjarvals,“ segir á vef
safnsins um sýninguna. Verkin á
sýningunni spanni heila öld.
Viðtal við Ólaf um sýninguna
verður birt í næstu viku í Morgun-
blaðinu.
Hraun Úr Gálgahrauni eftir Kjarval, verk
málað á árunum 1955-1960.
Gálgaklettur og órar sjónskynsins
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Olivier Messiaen skynjaði tónlist á
sjónrænan hátt og fyrir honum var
grunntóntegund verksins, A-dúr, blá;
líkt og himinninn, eilífðin og paradís.
Blái liturinn verður því áberandi í
tónleikasalnum meðan verkið er
flutt,“ segir Anna Guðný Guðmunds-
dóttir píanóleikari sem ásamt Tinnu
Þorsteinsdóttur píanóleikara mun
flytja Visions de l’Amen eða Amen
séð í hugsýnum eftir franska tón-
skáldið Olivier Messiaen í Norður-
ljósasal Hörpu á morgun kl. 11:30.
Að sögn Önnu Guðnýjar hefur
Messiaen lengi verið í miklu uppá-
haldi hjá þeim Tinnu og þær lagt sig
fram um að takast á við heillandi tón-
mál hans. Sem dæmi má nefna að
Anna Guðný gerði víðreist um landið
með Tuttugu tillit til Jesúbarnsins og
hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin
2009 fyrir flutning og upptökur á
verkinu. Tinna þekkir vel verk Messi-
aens sem nefnast Catalogue d’Oi-
seaux eða Fuglabækur og hefur í
gegnum tíðina numið hjá helstu
Messiaen-sérfræðingum heims,
þeirra á meðal Yvonne Loriod-
Messiaen sem frumflutti verkið á sín-
um tíma með tónskáldinu.
Frumflutt í París 1943
„Árið 2008 vorum við Tinna báðar
staddar í Stavanger á ráðstefnu um
Messiaen í tilefni þess að hundrað ár
voru þá liðin frá fæðingu hans. Meðal
þess sem við heyrðum þar var Amen
séð í hugsýnum sem flutt var í dóm-
kirkjunni í Stavanger og heillaði okk-
ur. Síðan þá hefur okkur langað til að
flytja þetta verk saman og nú er loks-
ins komið að því,“ segir Anna Guðný,
en þess má geta að í ár eru liðin tutt-
ugu ár frá dauða tónskáldsins.
„Messiaen skrifaði Amen séð í hug-
sýnum árið 1943 og er það með fyrstu
verkunum sem hann samdi eftir að
hann var látinn laus úr fangabúðum
nasista. Verkið skiptist í sjö kafla sem
hver um sig nálgast á sinn hátt merk-
ingu hins heilaga orðs amen,“ segir
Anna Guðný og tekur fram að helsti
innblástur verksins hafi verið hin
unga Yvonne Loriod, sem var þá
nemandi Messiaens og varð seinna
eiginkona hans. Þau frumfluttu verk-
ið sama ár í París og léku það í fram-
haldinu víðs vegar um Frakkland og
víða í Evrópu.
Aðspurð segist Anna Guðný leika
partinn sem Yvonne lék á sínum tíma
en Tinna leikur part Messiaens.
„Partur Messiaens tekur grunnstefin
og er nokkurs konar akkeri verksins,
en partur Yvonne tekur fuglasönginn
og skrautlitina á efra tónsviði píanó-
sins,“ segir Anna Guðný.
Þess má að lokum geta að tónlist-
arfræðingurinn Árni Heimir Ingólfs-
son flytur stuttan inngang á undan
tónleikunum þar sem hann gefur tón-
leikagestum innsýn í litríkan tónheim
Messiaens.
Skynjaði liti í tónlist
Verk eftir Olivier Messiaen fyrir tvö píanó flutt í Hörpu á
morgun Blái liturinn verður áberandi í tónleikasalnum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Heillaðar Tinna Þorsteinsdóttir og Anna Guðný Guðmundsdóttir hafa lengi
verið heillaðar af tónmáli franska tónskáldsins Oliviers Messiaens.
NUTRILENK
TEL AÐ NUTRILENK HAFI
BJARGAÐ FERLINUM
FÆST Í APÓTEKUM, HEILSUBÚÐUM OG HEILSUHILLUM STÓRMARKAÐANNA
NÁTTÚRULEGT BYGGINGAREFNI FYRIR BRJÓSKVEFINN
Haustið 2009 fékk ég brjóskskemmd í hnéð á mörkum
hnéskeljar og lærleggs. Þessu fylgdi mikill sársauki og
það brakaði í hnénu á mér í hverju skre og átti ég
ertt með ængar og að labba niður stiga. Mér var
bent á að prófa NutriLenk og ákvað að slá til, tilbúin til
að reyna allt til að laga hnéð. Strax á fyrstu dögunum
minnkaði verkurinn og ég fór að geta æft aftur. Ég hef
tekið NutriLenk síðan. Í ágúst síðastliðinn tryggði ég
mér keppnisrétt á Ólympíuleikunum í London og tel
ég að NutriLenk ha bjargað ferlinum.
Ásdís Hjálmsdóttir afreksíþróttakona í spjótkasti
Við mikið álag og með árunum getur
brjóskvefurinn rýrnað sem veldur því
að liðirnir slitna.
NutriLenk inniheldur náttúrulegt
byggingarefni fyrir brjóskvenn og
er mjög góður valkostur fyrir þá sem
þjást af liðvandamálum.
Prófið sjálf - upplifið breytinguna
Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is
Nutrilenk fyrir liðina
Náttúru
legt
fyrir liði
na
NutriLenk náttúrulegt byggingar-
efni fyrir liðbrjóskið og beinin
Les Misérables - Vesalingarnir (Stóra sviðið)
Lau 2/6 kl. 19:30 Sun 10/6 kl. 19:30 Fim 21/6 kl. 19:30
Fös 8/6 kl. 19:30 Fös 15/6 kl. 19:30 Fös 22/6 kl. 19:30
Lau 9/6 kl. 19:30 Lau 16/6 kl. 19:30
Fimm stjörnu stórsýning! Allra síðasta sýning 22. júní.
Dagleiðin langa (Kassinn)
Lau 16/6 kl. 19:30 Allra
síð.sýn.
Eitt magnaðasta fjölskyldudrama 20. aldarinnar. Allra síðasta sýning 16. júní.
Afmælisveislan (Kassinn)
Lau 2/6 kl. 19:30 Lau 1/9 kl. 19:30 Sun 2/9 kl. 19:30
Eitt vinsælasta verk Pinters. Sýningar í september komnar í sölu.
Kristján Eldjárn - minningartónleikar (Stóra sviðið)
Fim 7/6 kl. 20:00
Allur ágóði rennur í minningarsjóð Kristjáns Eldjárn
Gamli maðurinn og hafið (Kúlan)
Fös 8/6 kl. 19:30 Sun 10/6 kl. 19:30 Fös 15/6 kl. 19:30
Lau 9/6 kl. 19:30 Fim 14/6 kl. 19:30
Brúðusýning fyrir fullorðna eftir Bernd Ogrodnik. Listahátíð 2012
Glymskrattinn (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 2/6 kl. 22:30 Sun 3/6 kl. 16:00
Danssýning eftir Melkorku Sigríði og Sigríði Soffíu Níelsdóttur. Listahátíð
568 8000 | borgarleikhus.is
Tengdó – HHHHH–JVJ. DV
Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið)
Fös 1/6 kl. 20:00 aukas Þri 5/6 kl. 20:00 aukas Lau 9/6 kl. 20:00 20.k
Lau 2/6 kl. 20:00 17.k Mið 6/6 kl. 20:00 19.k Sun 10/6 kl. 20:00 lokas
Sun 3/6 kl. 20:00 18.k Fös 8/6 kl. 20:00 aukas
Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Hrífandi saga um þrá og eftirsjá
Rómeó og Júlía (Stóra svið )
Sun 3/6 kl. 20:00 Fös 8/6 kl. 20:00 Sun 10/6 kl. 20:00 aukas
Ógleymanleg uppfærsla Vesturports. Síðustu sýningar!
Tengdó (Litla sviðið)
Sun 3/6 kl. 20:00 Fös 8/6 kl. 20:00 lokas
Sönn saga. Í samstarfi við CommonNonsense. Síðustu sýningar!
Bastards - fjölskyldusaga (Stóra sviðið)
Fös 1/6 kl. 20:00 Lau 2/6 kl. 20:00
Í samstarfi við Vesturport ofl. Aðeins þessar sýningar á Listahátíð
Beðið eftir Godot (Litla sviðið)
Fös 1/6 kl. 20:00 Lau 2/6 kl. 20:00 Lau 9/6 kl. 20:00 lokas
Tímamótaverk í flutningi pörupilta
Þriðju og síðustu tónleikar Kvartetts
Kammersveitar Reykjavíkur í röð-
inni Meistaraverk Jóns Leifs verða í
Kaldalóni á morgun kl. 13.
Á efnisskránni eru tvö verk, annars
vegar Quartetto I Mors et vita, Dauði
og líf, eftir Jón Leifs og hins vegar
Langur skuggi fyrir strengjaseptett
eftir Hauk Tómasson.
„Fyrsta kvartett sinn, Mors et vita,
samdi Jón Leifs um það leyti sem
heimsstyrjöldin síðari braust út árið
1939. Í verkinu notar Jón tvísöngs-
lagið Húmar að mitt hinsta kvöld og
skrifar Jón texta Bólu-Hjálmars yfir
nóturnar í handritinu en víólan leikur
lagið í fimmundum. Langur skuggi er
samið fyrir þrjár fiðlur, víólu, tvö
selló og kontrabassa. Verkið skiptist í
sex kafla og er hver um sig langsótt
tilbrigði við frum úr íslensku þjóð-
lagi,“ segir m.a. í tilkynningu.
Kvartett Kammersveitar Reykja-
víkur skipa Rut Ingólfsdóttir og Sig-
urlaug Eðvaldsdóttir fiðluleikarar,
Þórunn Ósk Marinósdóttir víóluleik-
ar og Hrafnkell Orri Egilsson selló-
leikari. Í septettnum bætast við Júl-
íana Elín Kjartansdóttir fiðluleikari
Sigurður Bjarki Gunnarsson selló-
leikari og Richard Korn kontrabassa-
leikari.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Lokatónleikar Tónskáldið Haukur ásamt hljóðfæraleikurunum Richard,
Þórunni, Hrafnkeli, Sigurlaugu, Júlíönu, Rut, og Sigurði.
Meistaraverk Jóns
Leifs í Kaldalóni