Morgunblaðið - 26.07.2012, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2012
Síðumúla 16 ~ 108 Reykjavík ~ Sími: 580 3900 ~ fastus.is
Fastus til framtíðar
Bjóðum öflugar og endingargóðar
vélar frá Electrolux og Primus.
Hafðu samband við söluráðgjafa
okkar og við aðstoðum þig við að
finna hagkvæmustu lausnina.
ÞVOTTAVÉLAR, ÞURRKARAR,
STRAU- OG BROTVÉLAR
Þorsteinn Hjaltested, fjárfestir og
eigandi Vatnsendajarðarinnar í
Kópavogi, greiðir hæstu skattana í
ár, samtals 185,4 milljónir króna.
Þorsteinn hagnaðist á því að selja
verðmætt byggingarland í Kópavogi.
Karie Hjaltested, eiginkona Þor-
steins, er í 44. sæti á lista yfir gjalda-
hæstu Íslendingana, sem birtur var í
gær, en hún
greiðir 39,7 millj-
ónir króna.
Þorsteinn
greiddi einnig
hæstu opinberu
gjöldin á síðasta
ári, samkvæmt
lista ríkisskatt-
stjóra, eða tæpar
162 milljónir
króna.
Listinn yfir þá einstaklinga, sem
greiða hæstu opinberu gjöldin í ár
samkvæmt álagningarskrá, hefur
tekið nokkrum breytingum frá því í
fyrra. Andri Már Ingólfsson, sem var
í 2. sæti í fyrra, er ekki á lista yfir 50
hæstu gjaldendur nú. Í því sæti er nú
Guðbjörg Astrid Skúladóttir, eigandi
og skólastjóri Klassíska listdansskól-
ans, ekkja Þórarins Kjartanssonar
sem var framkvæmdastjóri flug-
félagsins Bláfugls. Hún greiðir 139,8
milljónir króna í opinber gjöld í ár.
Í þriðja sæti nú er Frímann Elvar
Guðjónsson viðskiptafræðingur, sem
ekki var á listanum í fyrra, en hann
greiðir nú 129,4 milljónir í opinber
gjöld.
Guðbjörg M. Matthíasdóttir, út-
gerðarmaður í Vestmannaeyjum, er
áfram í 4. sæti listans. Hún greiðir
116,7 milljónir króna í ár en greiddi
98,2 milljónir í fyrra.
Þrenn hjón meðal efstu
Poul Jansen eftirlaunaþegi sem
starfaði hjá heildverslun, er í fimmta
sæti, greiðir tæpar 114 milljónir kr.
Sumir af skatthæstu einstakling-
unum komast á listann vegna upp-
gjörs dánarbúa.
Þrenn hjón eru á lista ríkisskatt-
stjóra yfir skatthæstu einstaklinga.
Auk Þorsteins og Karie Hjaltested,
sem samstals greiða 225 milljónir kr.
í opinber gjöld, eru það Skúli Mog-
ensen fjárfestir og Margrét Ásgeirs-
dóttir sem greiða samtals 158,5
milljónir og fjárfestarnir Finnur
Reyr Stefánsson og Steinunn Jóns-
dóttir úr BYKO-fjölskyldunni sem
samtals greiða rúmar 90 milljónir.
Væru skattar Skúla og Margrétar
lagðir saman næðu þau öðru sæti
skattalistans og Finnur og Steinunn
myndu komast í hóp tíu efstu.
261.764 á skattgrunnskrá
Á skattgrunnskrá voru 261.764
framteljendur. Er það fjölgun um
1.002 frá fyrra ári eða 0,4%.
Framtaldar tekjur eru ekki aðeins
launatekjur sem atvinnurekandi
greiðir um hver mánaðamót. Þetta
geta verið fjármagnstekjur, arður,
hagnaður af sölu hlutabréfa, fast-
eigna eða annarra eigna.
Þann 1. ágúst nk. koma til útborg-
unar úr ríkissjóði til framteljenda
20,4 milljarðar króna eftir skulda-
jöfnun vegna vangoldinna krafna.
Vaxtabætur eru stærsti hluti út-
borgunarinnar.
Samkvæmt upplýsingum frá fjár-
málaráðuneytinu nam tekjuskatts-
og útsvarsstofn landsmanna 876,1
milljarði króna á síðasta ári og
hækkaði um 7,8% frá fyrra ári. Sam-
anlögð álagning almenns tekjuskatts
og útsvars nemur 228 milljörðum
króna og hækkar um 13,5%.
Útsvarstekjur til sveitarfélaga
nema alls 130,5 milljörðum króna
sem er 19% aukning. Fjármálaráðu-
neytið segir, að þessi mikla aukning
eigi sér að hluta til skýringu í hækk-
un útsvarshlutfalls vegna tilflutnings
málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfé-
laga og tilsvarandi lækkun tekju-
skattshlutfallsins.
Álagður fjármagnstekjuskattur
einstaklinga nemur 10,3 milljörðum
króna og hækkar um 1,4% milli ára.
Fjármálaráðuneytið segir, að þeim
sem greiða þennan skatt hafi fækkað
töluvert milli ára. Þá greiða 5.212
einstaklingar svonefndan auðlegð-
arskatt, samtals 5,6 milljarða, sem er
tæplega 17% aukning á milli ára.
Þorsteinn aftur skattakóngur
Álagning einstaklinga 2012 – 50 hæstu gjaldendur á landinu
Nafn Starf/menntun Heimili Sveitarfélag Samtals gjöld
1 Þorsteinn Hjaltested landeigandi Vatnsenda Kópavogi 185.366.305 kr.
2 Guðbjörg Astrid Skúladóttir skólastjóri Mýrarási 15 Reykjavík 139.761.723 kr.
3 Frímann Elvar Guðjónsson viðskiptafræðingur Klausturhvammi 34 Hafnarfirði 129.427.144 kr.
4 Guðbjörg M. Matthíasdóttir útgerðarmaður Birkihlíð 17 Vestmannaeyjum 116.659.494 kr.
5 Poul Jansen fv. starfsm. heildsölu Malarási 12 Reykjavík 113.724.459 kr.
6 Kristján V. Vilhelmsson útgerðarmaður Kolgerði 3 Akureyri 98.648.747 kr.
7 Hermann Kr. Sigurjónsson vélstjóri Eyrarvegi 16 Grundarfirði 92.026.845 kr.
8 Skúli Mogensen fjárfestir Bugðuósi 2 Mosfellsbæ 84.724.998 kr.
9 Ívar Daníelsson lyfsali Árskógum 6 Reykjavík 80.572.758 kr.
10 Arnór Víkingsson læknir Kársnesbraut 64 Kópavogi 78.676.404 kr.
11 David John Kjos framkvæmdastjóri Skrúðási 6 Garðabæ 75.874.828 kr.
12 Kirstín Þ. Flygenring hagfræðingur Strandvegi 17 Garðabæ 73.982.695 kr.
13 Margrét Ásgeirsdóttir læknir Bugðuósi 2 Mosfellsbæ 73.742.989 kr.
14 Þorsteinn Már Baldvinsson útgerðarmaður Barðstúni 7 Akureyri 68.248.066 kr.
15 Ársæll Valfells viðskiptafræðingur Gunnarsbraut 30 Reykjavík 67.102.825 kr.
16 Kristín Jónína Gísladóttir kennari Sólbraut 8 Seltjarnarnesi 66.454.331 kr.
17 Össur Kristinsson forstjóri Sæbólsbraut 42 Kópavogi 64.221.733 kr.
18 Guðmundur Ásgeirsson fyrrv. framkvæmdastj. Barðaströnd 33 Seltjarnarnesi 62.996.238 kr.
19 Árni Hauksson fjárfestir Mávanesi 17 Garðabæ 61.487.194 kr.
20 Ingunn GyðaWernersdóttir fjárfestir Bjarmalandi 7 Reykjavík 60.471.240 kr.
21 Sigurður Örn Eiríksson tannlæknir Kornakri 4 Garðabæ 58.669.867 kr.
22 Sigurður Sigurgeirsson framkvæmdastjóri Breiðahvarfi 17 Kópavogi 57.856.934 kr.
23 Hörður Arnarson forstjóri Stallaseli 8 Reykjavík 56.133.711 kr.
24 Ólöf Vigdís Baldvinsdóttir lyfjafræðingur Dalakri 10 Garðabæ 55.393.494 kr.
25 Gunnar I. Hafsteinsson lögfræðingur Skildinganesi 58 Reykjavík 53.662.715 kr.
26 Þórarinn Ragnarsson fjárfestir Blikanesi 25 Garðabæ 50.782.037 kr.
27 Sigurbergur Sveinsson kaupmaður Miðvangi 118 Hafnarfirði 50.555.185 kr.
28 Jón Pálmason fjárfestir Arnarási 2 Garðabæ 50.323.816 kr.
29 Finnur Reyr Stefánsson fjárfestir Brekkuási 11 Garðabæ 48.728.172 kr.
30 Helga S. Guðmundsdóttir fjárfestir Nesbala 66 Seltjarnarnes 48.185.046 kr.
31 Bjarni Ármannsson fjárfestir Bakkavör 28 Seltjarnarnesi 47.518.766 kr.
32 Katrín Þorvaldsdóttir fjárfestir Háuhlíð 12 Reykjavík 46.355.347 kr.
33 Ólafur Björnsson framkvæmdastjóri Lækjarbergi 2 Hafnarfirði 44.888.915 kr.
34 Helgi Vilhjálmsson framkvæmdastjóri Skjólvangi 1 Hafnarfirði 44.796.441 kr.
35 Ingi Guðjónsson lyfjafræðingur Bakkasmára 25 Kópavogi 41.995.959 kr.
36 Steinunn Jónsdóttir fjárfestir Brekkuási 11 Garðabær 41.514.476 kr.
37 Jakob Már Ásmundsson iðnverkfræðingur Hamarsbraut 8 Hafnarfirði 41.477.673 kr.
38 Guðmundur Steinar Jónsson framkvæmdastjóri Eskiholti 4 Garðabæ 41.433.422 kr.
39 Kristinn Zimsen viðskiptafræðingur Furugerði 12 Reykjavík 41.248.566 kr.
40 Baltasar Kormákur Baltasarsson kvikmyndaleikstjóri Miðstræti 7 Reykjavík 40.966.186 kr.
41 Guðmundur H. Magnason framkvæmdastjóri Brautarási 12 Reykjavík 40.736.136 kr.
42 Hjörtur Georg Gíslason skurðlæknir Byggðavegi 88 Akureyri 40.420.112 kr.
43 Kári Stefánsson forstjóri Hávallagötu 24 Reykjavík 40.001.615 kr.
44 Kaire Hjaltested landeigandi Vatnsenda Kópavogi 39.695.128 kr.
45 Finnur Árnason forstjóri Lækjarbergi 52 Hafnarfirði 39.375.768 kr.
46 Guðbjörg Edda Eggertsdóttir forstjóri Næfurholti 2 Hafnarfirði 38.828.535 kr.
47 Ágúst Sigurðsson útgerðarmaður Birkihvammi 3 Hafnarfirði 38.763.511 kr.
48 Hreggviður Jónsson forstjóri Byggðarenda 13 Reykjavík 38.405.772 kr.
49 Elínborg Jónsdóttir fv. útgerðarmaður Hraunslóð 2 Vestmannaeyjum 36.797.432 kr.
50 Eiríkur Smith Finnbogason listmálari Klukkubergi 9 Hafnarfirði 36.651.258 kr.
Þrenn hjón á lista yfir 50 gjalda-
hæstu einstaklinga á landinu í ár
Þorsteinn
Hjaltested
Skúli Eggert Þórðarson ríkisskatt-
stjóri segir að álagningin hafi gengið
mjög vel.
„Framtalsskilin voru töluvert fyrr
á ferðinni en á undanförnum árum.
Þau voru svipuð í heildina eins og áð-
ur en voru þó heldur betri. Við erum
með 97% af öllum framtölum á raf-
rænu formi, það gerir vinnsluna mun
auðveldari og öruggari. Það er skýr-
asta dæmið hvað rafræn stjórnsýsla
hefur þróast vel á Íslandi í gegnum
framtölin, þegar skattskilin eiga sér
stað auk þess sem þetta er mjög hag-
kvæmt fyrir þjóðarbúið.
Það að einstaklingar þurfi ekki að
gera sér sérstaka ferð út í bæ né að
fylla út fleiri pappíra munar miklu.“
Skúli Eggert segir þó að álagn-
ingin hafi verið töluvert flóknari í ár
en undanfarin ár.
„Sérstaklega þar sem við erum nú
að leggja á fimm nýja skatta á þessu
og næsta ári. Meginflækjurnar voru
í kringum útsvarið vegna einstak-
linga sem búið hafa í fleiri en einu
sveitarfélagi. Þessar flækjur hafa
verið mjög erfiðar og tekið mikinn
tíma í forritun. Þær hafa skapað alls
konar umstang, vesen og villur sem
nú hefur verið leiðrétt,“ segir Skúli
Eggert.
Framtalsgerðin er flóknari hjá
þeim sem eru að kaupa og selja eign-
ir og eru umsvifamiklir í viðskiptum.
Fráfall maka og hjónaskilnaðir
flækja einnig framtöl. „En fyrir
þorra framteljendagengur gengur
þetta mjög létt og einfaldlega fyrir
sig,“ segir Skúli Eggert.
Skúli Eggert kveðst hvað ánægð-
astur með hvað þeim hjá ríkisskatts-
stjóra tókst að þjóna fólki vel.
„Það sýndi sig í þessari álagningu
hvað sameining skattyfirvaldanna
var tímabær og nú gengur þetta allt
mun betur. Nýting á mannafla er
einnig mun betri, þrátt fyrir fækkun
starfsmanna.“
Þetta er í þriðja sinn sem ríkis-
skattstjóri leggur fram álagningar-
skrá eftir sameiningu skattaum-
dæma en áður lögðu níu skattstjórar
fram hver sína skrá. „Allt hefur
gengið mun betur eftir að samein-
ingin átti sér stað,“ segir Skúli
Eggert. aslaug@mbl.is
Álagningin tölu-
vert flóknari nú
Skúli Eggert Vel hefur gengið eftir
sameiningu embætta skattstjóra.