Morgunblaðið - 26.07.2012, Page 22

Morgunblaðið - 26.07.2012, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2012 ✝ Björgvin SmáriJónatansson var fæddur á Ak- ureyri hinn 7. sept- ember árið 1949. Hann lést af slysför- um hinn 14. júlí 2012. Foreldrar hans voru Bergþóra Lár- usdóttir frá Heiði á Langanesi og Jón- atan Magnússon, vélstjóri frá Ólafsfirði. Eftirlifandi eiginkona Smára er Svava Halldóra Ásgeirsdóttir. Börn þeirra eru Sindri Smára- son, grafískur hönnuður og Silva Rannveig Smáradóttir nemi. Sambýliskona Sindra er Unnur Jónsdóttir, grafískur hönnuður frá Akranesi og saman eiga þau soninn Stein Sindrason. Saman ólu Smári og Svava upp Ásgeir Hjartarson hárgreiðslumeistara, sem er sonur Svövu af fyrra hjónabandi. Önnur börn Svövu frá fyrra hjónabandi eru Sif Hjart- ardóttir og Hlynur Hjartarson. Smári var yngst- ur fimm systkina sem eru Alda, sem er látin, Magnús, Jóna Þrúður og Sævar. Smári var vél- fræðingur að mennt. Hann lauk prófi í vélvirkjun frá Slippstöð- inni á Akureyri og síðan vél- stjóraprófi frá Stýrimannaskól- anum í Reykjavík. Lengstan hluta starfsævinnar starfaði Smári til sjós sem vélstjóri á fiskiskipum. Eftir að sjómennsku lauk vann hann hin ýmsu störf í landi fram að andláti. Utför Smára fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 26. júlí 2012 og hefst athöfnin kl. 13:30. Elsku pabbi, það er skrýtið að hugsa núna hvernig lífið leggur línurnar hjá manni. Lífið þitt var heldur betur ein stór bílferð og þrátt fyrir að þú lifðir ekki ávallt réttu megin við línuna þá áttir þú samt sem áður glæsilegan rúnt. Sumt fólk leggur í ferð sína og kveður lífið á spítölum, en það má alveg segja að þín ferð hafi hafist á sjúkrahúsinu en endað í ferð- inni. Þegar ég hugsa til þess að þá gæti það ekki verið meira við- eigandi í þínu tilfelli að kveðja okkur á rúntinum í sól og blíðu, og er ég viss um að þér þótti það ekki leitt. Í dag syrgi ég þig ekki ein- ungis sem pabba minn heldur einnig sem minn besta vin, sálu- félaga og samstarfsfélaga. Ég er gríðarlega þakklátur að lífsleiðin okkar var mjög náin og alveg ótrúlega merkilegt hvað við átt- um vel saman. Þegar ég var barn þá hófst rúnturinn okkar og aldr- ei hefði mig órað fyrir að við ætt- um eftir að verða bestu vinir, samstarfsfélagar, stunda fundi saman, leita ráða til hvor annars og deila margri lífsreynslu sam- an. Það var heiður og forréttindi að eyða þessum tíma með þér. Þú gafst mér allt, varst mín fyrir- mynd og veittir mér öryggi, leið- sögn og allan tímann í heiminum. Þrátt fyrir allt það sem gekk á hjá mér á erfiðu tímunum að þá gafstu aldrei upp, sama þó ég klessti alla bílana þína, að þá fékk ég þá alltaf aftur að láni. Þú varst óhagganlegur þegar þú ákvaðst eitthvað og þetta var ein af þeim ákvörðunum, að gefast aldrei upp á mér. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig, sama hvað gekk á. Ég man hvað ég hugsaði oft þegar þú bjargaðir mér, hversu mikið mig langaði að endurgjalda þér allt sem þú veittir mér og gera þig stoltan af mér. Ég er svo þakklátur að síðustu ár höfum við verið nánari með hverjum degi, og deilt sömu reynslu af lífinu, miklum skilning á hvor öðrum og hvað þá sama áhugamáli og stefna að sama draumi saman sem við unnum mikið af undan- farið. Eitt það besta sem ég hef heyrt var sá dagur þegar þú tókst utan um mig og sagðist vera rosalega stoltur af mér en ég er einnig stoltur að bera áfram þína arfleifð. Ég man þegar ég var lítill og þú pakkaðir í töskuna þína og keyptir þér kassa af osta- poppi, það þýddi ávallt að þú varst að fara í burtu í langan tíma og þá fór ég á undan þér í bíl- skúrinn og tók af þér grænu úlp- una til að reyna að hindra þig að fara en án árangurs. Síðan fórum við öll með þér niður á bryggju og horfðum á eftir þér að labba upp í skipið og sigla út Eyjafjörðinn. Ég man hvað það var gríðarlega erfitt og hvað ég grét mörgum tárum og ég beið alltaf eftir deg- inum að sjá skipið koma aftur inn fjörðinn með sjónaukanum úr eldhúsinu. Þegar sá dagur kom og við heyrðum flautið í skipinu, þá fylltist ég mikilli gleði og spenningi og vissi að framundan biði mín mikil hamingja og góðir tímar. Eins erfitt og það virðist, að þá líður mér svipað núna, að horfa á eftir þér fara í burtu en sjá þig aldrei aftur og vitandi að mín bíð- ur gleði og góðir tímar í framtíð- inni. Elsku pabbi, hvíldu í friði og megi þú ávallt rúnta með okkur í hjartanu um ókomna tíð. Sindri Smárason. Björgvin Smári Jónatanss-1 Hjá mér, sem strákpolla, ríkti alltaf mikil eftirvænting og til- hlökkun ef fréttist að þú værir væntanlegur í heimsókn. Enginn var skemmtilegri en þú. Þú varst meistari Norðurgötuhúmorsins kaldhæðna, beitta en vinalega. Hnyttin tilsvörin og sögurnar óborganlegar. 1-0 dæmið úr Norðurgötunni er frægt. Toppurinn á tilverunni var að fá að fara með þér í alls konar brall. Oftast var það eitthvað bílastúss en líka ýmislegt í kring- um vinnuna þína á Snæfelli EA og fleiri skipum sem þú varst vél- stjóri á. Auk þess voru ýmiskon- ar verkefni sem þú þurftir aðstoð við. Vinnulaun fékk ég en ég þurfti þau ekki því mér nægðu þau forréttindi að vera með þér. Rúntarnir á brúna gljáfægða Pontiacnum belgdu út stoltið mitt en okkur nægðu nú samt druslurnar þínar. Ísrúnturinn eftirminnilegi á Pontiacnum þeg- ar þú sendir mig, um miðjuna mjúkan, á sundskýlunni einni fata í sjoppu í miðjum miðbænum að kaupa ís – stoltið dalaði. Þú þorðir að vera þú sjálfur og skeyttir litlu um álit annarra. Samsetningin fjólubláar trimm- buxur og græn gúmmístígvél er líklega heiðarlegasta yfirlýsing sem ég kann. Virðingarvert. Bílarnir voru áfram rauði þráðurinn á milli okkar og stoltir vorum við þegar uppgerðinni á brúna Chryslernum lauk. Ásamt fleirum vorum við stofnfélagar, þú formaður félagsins Eyfirskir fornbílar og unnum saman að upphefð og framgangi slíkra bíla. Þú mátt vera hreykinn af þinni vinnu þar. Um margt vorum við líkir frændurnir og er ég vel sæmdur af þeirri samlíkingu. Við vorum góðir saman en mundu að næst þegar við förum ísrúnt þá kaupir þú ísinn ! Söknuður og virðing. Þorgils Sævarsson. Stórt var höggvið í okkar dýr- mætustu eign, stórfjölskylduna, þegar Björgvin Smári kvaddi okkur með skyndilegum hætti. Smári var einstaklega skemmti- legur maður. Vandfundnir eru þeir sem búa yfir slíkri frásagn- argetu líkt og Smári hafði. Hvert sem tilefnið var, Smári átti alltaf góða sögu til að skemmta með. Hinn einstaki kaldhæðni húmor Smára skein yfirleitt í gegnum sögurnar, oftar en ekki þannig að menn voru byrjaðir að glotta áð- ur en frásögnin hófst. Smári hafði alltaf góðan húmor fyrir sjálfum sér, og fannst fátt skemmtilegra en að gera stól- pagrín á eigin kostnað. Slíkir menn finna til auðmýktar gagn- vart sjálfum sér og eru lausir við hroka og yfirlæti. Slíkir menn eru jafnan góðir menn. Alvarlegri sögur átti hann einnig, og þá færðist annar brag- ur á frásögnina, þyngri og bein- skeyttari. Var ekki ólíklegt að um væri að ræða þjóðmál, sem Smári hafði sterkar skoðanir á eða sagnfræði, annað áhugamál sem var honum kært. Líkt og margir aðrir litríkir persónuleikar, gekk Smári stundum um sína dimmu dali. Ævi hans bar alla tíð merki um erfiðleika sem að honum steðjuðu í æsku. Stoðkerfisvandi hans sem barns var meðhöndlað- ur af kunnáttu þess tíma. Þriggja ára innilokun (5-8 ára) á sjúkra- stofu ásamt veiku fullorðnu fólki. Slíkt getur ekki gert barni gott. Til allrar lukku hefur læknavís- indunum og sálfræðiþekkingu fleygt fram síðan. Smári, með sitt einkennismerki „Norðurgötu- þráann“, kleif þó alltaf upp með aðstoð kímni og skarprar greind- ar. Komið gat fyrir að Smári hafði eitthvað á hornum sér, því það átti hann sameiginlegt með „frænda sínum“ Bjarti í Sumar- húsum að geta ekki þolað neinum að skipa sér fyrir verkum eða sýna sér yfirgang. Það sem skildi þá frændur þó að var að Smári sá aldrei sólina fyrir börnunum sín- um, sinni dýrmætustu eign. Þau skiptu hann öllu máli. Smári var vinmargur, meðal annars í gegnum sín helstu áhugamál, sagnfræði og bíla. Ljúfmenni með sterkar skoðanir sem var trúr vinur vina sinna. Sú vinátta og virðing sem fyrir hon- um er borin af vinum hans skín í gegn við undirbúning jarðarfar- arinnar og hefði sannarlega yljað honum um hjartarætur. Elsku Smári okkar, við systk- inin minnumst skemmtilegra stunda í einhverjum af þínum fjölmörgu skrautlegu farkostum og sagnanna sem fengu okkur til að veltast um af hlátri. Þá er ógleymanleg siglingin með Húna fyrir nokkrum árum sem þú stóðst fyrir. Þar naustu þín í hlut- verki fræðarans og sagnamanns- ins og við öll, stórfjölskyldan, gengum ríkari frá borði eftir þá stund. Við söknum þín en trúum því að nú líði þér vel meðal vina og ættingja á nýjum slóðum og sért strax farinn að gleðja þá með sögum og kærleika. Ari Jón Arason, Alfa Aradóttir, Bergþóra Aradóttir. Nú við ótímabært fráfall góð- vinar míns til 50 ára, Smára, langar mig til að kveðja hann með nokkrum orðum. Fyrir ná- kvæmlega 50 árum haustið 1962 komum við úr sitt hvorum barna- skólanum á Akureyri og settumst í Gagnfræðaskóla Akureyrar. Þar hitti maður marga nýja fé- laga, m.a. Smára, og tókust góð kynni með okkur en það sem sameinaði okkur var áhugamálið bílar og vorum við betur inn í þeim málum heldur en hinum bóklegu fræðum skólans. Teg- undir þekktum við allar og bíl- númer mundum við utan að í hundraðatali. Báðir vorum við á þeirri skoðun að ekkert væru bílar nema þeir sem kæmu frá Bandaríkjunum, borginni Detro- it, allt annað væru eftirlíkingar. Detroit var okkar himnaríki á þessum árum enda átti Smári um tíðina marga glæsivagna ættaða þaðan. Eftir að skólagöngu lauk fór- um við til frekara náms í sitt hvorum tæknigeiranum og lítið var um samgang næstu 20 árin nema á förnum vegi. Okkar ár- gangur fór svo að hittast reglu- lega á stórskemmtilegum skóla- mótum. Okkar draumar um bílaeign höfðu ræst og áttum við þá alvöru bíla frá USA, fleiri en einn hvor, engar eftirlíkingar lengur. Fórum að hafa samband og endurnýja gömul kynni með heimsóknum þegar við vorum á slóð hver annars á Akureyri og Reykjavik en Smári bjó alltaf í okkar heimabæ og gott var að hittast og ræða málin. Vináttan hélst til síðasta dags. Kveð hér kæran vin með söknuði. Árni G. Sigurðsson. Björgvin Smári Jónatansson ✝ Friðrik Erlend-ur Ólafsson (Elli) var fæddur á Gilsbakka í Vest- mannaeyjum 5. júní 1928. Hann lést á gjörgæsludeild Landsspítalans 19. júlí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Ólafur Stefán Ólafsson, f. 24. júni 1900, d. 5. mars 1962 og Friðrikka Dagmar Er- lendsdóttir, f. 5. maí 1905, d. 8 júní 1980. Hann átti einn yngri bróður, Gunnar f. 17. september 1931 en hann er látinn. Friðrik kvæntist 24. mars 1951, Margréti Sighvatsdóttur f. 28. júlí 1931, dáin 15. nóvember 2009. Foreldrar hennar voru Sighvatur Bjarnason og Guð- munda Torfadóttir frá Ási í Vestmannaeyjum. Börn Friðriks og Margrétar eru: 1) Erna f. 9.5. 1951 maki Stef- án Anton Halldórsson, lést 27. 1985, sambýliskona Thelma Sig- urðardóttir. 3) Sighvatur f. 13.4. 1959, Maki Hjördís Guðrún, börn þeirra eru: a) Helga Margrét f. 1983, sambýlismaður, Jakob Tönners. b) Erlendur Þór f. 1987, sambýliskona Sólveig Lára Árnadóttir. c) Katrín Björg f. 1989, sambýlismaður, Paul Wes- kamp. Friðrik lauk Iðnskólanum í Vestmannaeyjum 1946, vélvirkj- anámi í Vélsmiðjunni Magna í Vestmannaeyjum 1948, vél- stjóraprófi í Vélskólanum í Reykjavík 1950 og rafmagns- deild 1951. Hann sótti námskeið í meðferð dísilvéla og fylgitækja þeirra hjá Motoren Werke Mann- heim, Renk í Augsburg, Bosch í Stuttgart og BBC í Baden 1957. Hann var kyndari á BV Elliðaey VE. Árið 1948 og á sumrin með- an á námi stóð, vélstjóri á sama skipi 1951 til 1954, starfaði síðan í Vélsmiðjunni Magna og hjá Vinnslustöðinni HF til 1970 en var jafnframt kennari við Iðn- skólann í Vestmannaeyjum 1954 til 1969. Hann hóf störf hjá Stur- laugi Jónssyni og CO í mars 1970 og starfaði þar til 2003. Jarðarför Friðriks verður gerð frá Vídalínskirkju í dag, fimmtudaginn 26. júlí 2012 kl. 13. mai 2011, börn þeirra eru: a) Dag- mar f. 1971, maki Hjalti Einarsson, börn þeirra eru Erna Sif f. 1989, Viktoria Ágústa f. 1999, Stefán f. 2002 og Agnes Eva f. 2008. b) Friðrik Er- lendur f. 1976, sam- býliskona Jónína Margrét Her- mannsdóttir, börn þeirra eru Dagmar Lilja f. 1997, Margrét Guðfinna f. 2004 og Hermann f. 2010. c) Sigurður Ari f. 1982, maki Ida Stefansson, barn þeirra er Selma Lilja f. 2011. 2) Ólafur f. 13.9. 1952, maki Þuríður Guð- jónsdóttir, börn þeirra eru: a) Davíð Björn f. 1973, sambýlis- kona Stefanía Þorgeirsdóttir, María Rut f. 2003, Benjamín f. 2005, Stefán Björn f. 2011. b) Sara Margrét, f. 1974, maki Pét- ur Sigurjónsson, börn þeirra eru Elísa f. 1997, Ólafur Þór f. 2000 og Viktor Orri f. 2007. c) Andri f. Elsku faðir minn, þó að mig hafi grunað að þessi stund væri ekki langt undan, þá hélt ég að aðdragandinn yrði lengri. Ég mun ávallt minnast þín með virð- ingu og þakklæti fyrir allar ánægjustundirnar sem að við Hjördís áttum saman með ykkur mömmu hvort sem var á ferða- lögum erlendis eða helganna í sumarbústaðnum ykkar þar sem hugmyndaflugið og athafnasem- in fékk sín notið. Þú byrjaðir snemma að kenna mér á heiti verkfæra en það kom nú helst af því að gamli Taunus- inn sem að þið mamma áttuð sumarið 70, árið sem að við flutt- um upp á land, var orðinn frekar þreyttur og fóru flest kvöld vik- unnar í það að gera hann gang- færan fyrir útilegu væntanlegrar helgar, því að nú skyldi tækifær- ið notað og fastalandið skoðað. Fyrir mig sem námsmann í vél- virkjun og síðar tæknifræði, var ekki amalagt að hafa aðgang að þekkingu þinni og reynslu því af öllum ólöstuðum varst þú nokk- uð víst einn fróðasti og reynslu- ríkasti vélamaður af þinni kyn- slóð. Áhugi þinn á Þýskalandi smit- aði mig snemma og gleymi ég seint minni fyrstu ferð með ykk- ur mömmu til Mannheim þar sem að ég sá í fyrsta sinn verk- smiðjuna sem Carl Benz stofnaði og smíðaði þar sína fyrstu bens- ínvél og sinn fyrsta bíl. Ekki datt mér í hug á þeim tíma að einmitt þessi sama verksmiðja yrði tæp- um fimm árum seinna vinnustað- ur minn í heilt ár. Þú vissir örugglega fyrir víst hversu gott peyinn myndi hafa af skipulaginu og nákvæmninni hjá þeim þýsku. Ég er aftur á móti ekki viss um að þú hafir gert þér grein fyrir því á þeim tíma hversu mikið sonurinn og fleiri afkomendur ættu eftir að tengj- ast Þýskalandi. Ég veit að ég mun sakna þín sárlega og veit ég að þú er kom- inn á betri stað, þar sem að þú nýtur á ný samvista mömmu og síðan kæmi mér ekki á óvart að þið gömlu félagarnir úr eyjum séuð þegar farnir að rifja upp gömlu minningarnar á ný. Takk fyrir allt. Sighvatur. Fyrstu minningar okkar af honum Ella afa eru líklega frá sumrunum sem hann og amma voru vön að taka okkur með sér í sumarbústaðinn. Afi var vanur að gefa okkur kandís, timbur, nagla og hamra, og kenndi okkur að smíða skip og flugvélar. Hann hafði sjálfur alltaf gaman af skip- um og vélum og talaði oft um ár- in sem hann var á sjó, þó þau voru nú ekki mörg. Hann vann líka mikið með vélar og alltaf þegar við komum í heimsókn í vinnuna hans þá gaf hann okkur Opal mola. Hann afi hefur kennt okkur margt og mikið í gegnum tíðina, enda vissi hann hina ótrú- legustu hluti. Við munum hvað okkur þótti það furðulegt þegar við sáum afa borða sviðsauga í fyrsta skipti en honum þótti þau nú ljúffeng, enda alvöru íslenskur karlmaður hann afi. Svo lagðist hann alltaf á meltuna eftir matinn. Tóbaks- dósin og snýtiklúturinn voru einnig aldrei fjærri. Við munum líka að í fyrsta skipti sem við vildum gefa Möggu ömmu og Ella afa jólagjöf þá fékk hún kerti en hann snýtiklút. Við erum öll afar þakklát að hafa þekkt hann afa og að hafa haft hann í lífi okkar, enda var hann stórkostlegur maður. Elsku Elli afi okkar er nú kominn til hennar Möggu ömmu, enda er hún búin að bíða hans lengi. Ég sé þau alveg fyrir mér á himnum með bros á vör og hann afi með dökkbláu kanslara- húfuna sína. Megi hann hvíla í friði og sitji guðs englar hjá honum og ömmu. Þín barnabörn Katrín Björg, Helga Margrét og Erlendur Þór. Mikill höfðingi er genginn, hans verður sárt saknað. Sól hans er gengin til viðar, en eftir situr stjarna á festingunni sem lýsir okkur nótt sem nýtan dag. Friðrik Erlendur, eða Elli eins og við kölluðum hann í daglegu tali, var leiðtogi af guðs náð, hann hafði mikla áru, og útgeisl- un hans lét engan ósnortinn, sem var í návist hans. Við lærðum mikið af Ella. Hann var sannur og heilsteyptur persónuleiki sem helgaði líf sitt einkunnarorðum okkar Oddfellowa að lifa í vin- áttu, kærleika og sannleika, við alla meðbræður sína hvort held- ur var innan eða utan Oddfellow- reglunnar. Elli var bróðir í Odd- fellowstúkunni Snorra goða. Elli var einn af stofnendum stúkunn- ar og einn af hennar styrkustu stoðum. Á meðan heilsan leyfði stund- aði Elli stúkustarfið og félagslíf stúkunnar af þeim eldmóð sem hann var þekktur fyrir. Elli var hvar sem hann kom, hrókur alls fagnaðar og virkaði á okkur bræðurna sem segull. Allir vildu vera í nálægð við Ella og njóta hinnar sérstöku og skemmtilegu frásagnargáfu sem hann hafði. Þær voru margar Vestmanna- eyjasögurnar sem hann sagði okkur, með sínum sérstaka stíl sem enginn getur leikið eftir. Hann Elli kallaði sko ekki allt ömmu sína. Þú áttir söngva og sól í hjarta er signdi og fágaði viljans stál. Þeir þurftu ekki um kulda að kvarta, er kynni höfðu af þinni sál. (Grétar Fells.) Elli sóttist aldrei eftir verald- legum frama, en hann var alltaf leiðtogi. Bróðir sem við litum upp til, óumdeildur sómamaður. Á seinni árum hrakaði heilsu Ella, og segja má að hann hafi aldrei náð sér eftir fráfall eigin- konu sinnar, Margrétar Sig- hvatsdóttur, sem átt hafði við áralöng veikindi að stríða. Elli hafði borið Margréti á höndum sér og annast hana eins og best verður á kosið. Sýnt henni þá ástúð og umhyggju, sem hún átti skilið, eftir langt og farsælt hjónaband. Á síðustu árum hef ég farið í marga heimsóknina til þessa gengna vinar, og notið hverrar einustu mínútu. Elli var höfðingi heim að sækja. Alltaf fór maður með bros á vör, og eitthvað nesti út í lífið frá Ella. Nokkuð er síð- an við gerðum okkur grein fyrir að það drægi að leiðarlokum, en Elli tók því af æðruleysi, og í raun tel ég að Friðrik Erlendur hafi kvatt saddur lífdaga, sáttur við Guð og menn, hvíldinni feg- Friðrik Erlendur Ólafsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.