Morgunblaðið - 26.07.2012, Blaðsíða 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2012
Verk listakonunnar Rósu Gísladótt-
ur eru nú sýnd í safninu Mercati di
Traiano eða Trajanusarmarkaðnum
í miðborg Rómar, en aðstandendur
safnins buðu Rósu að sýna þar eftir
að hafa séð einkasýningu hennar í
Róm fyrir þremur árum. Tólf verk
eru á sýningunni, skúlptúrar úr
gifsefni, skúlptúr úr endurunnu áli,
verk með afsteypum úr gifsi og
fjögur skúlptúrverk úr plexigleri og
plastflöskum sem eru fylltar af
vatni og lýstar upp, en verkin eru
sýnd í safninu og á sýningarsvæði
úti.
Rósa sýnir í Rómarborg
Verk Rósu Gísladóttur sýnd í miðborg Rómar
Ljósmynd/Rósa Gísladóttir
Speglun Verkið „Spegill tímans“ úr endurunnu áli. Spegilmyndin er af Rósu Gísladóttur og Ólafi Gíslasyni listfræð-
ingi, höfundi sýningarskrár. Eggert Gunnarsson kvikmyndagerðarmaður stendur við verkið.
Rústir Safnið er í rústum byggingar sem er frá dögum Trajanusar keisara á
1. öld eftir Krist og var miðstöð stjórnsýslu í Rómaborg til forna.
Útiverk Sex verkanna eru skúlptúr-
ar úr umhverfisvænu gifsefni.
Íbókinni Lukkunnar pamfílleru tuttugu örsögur eftirnorska rithöfundinn AraBehn. Hann er þekktur rit-
höfundur í sínu heimalandi en lík-
lega þekktastur fyrir að vera eig-
inmaður Mörthu Louise prinsessu.
Sögurnar eru hnitmiðaðar, frá
nokkrum línum upp í um fjórar
blaðsíður. Það er enginn óþarfi í
sögunum, þær eru vel til skornar.
Það getur verið mjög ánægjulegt
að lesa heila sögu í svo stuttum
texta, það er hægt að segja mikið
með fáum orðum. Behn tekst oftast
mjög vel til með það. Segir langa
sögu stutta, mjög stutta og hún
þarf ekki að vera orði lengri. Upp-
setningin á bókinni er sérstök, heil
síða fer undir heiti hverrar sögu en
heitið hefur líka
mikið að segja
um söguna sem á
eftir kemur.
Flott uppsetning
en alltaf óþarfa
pappírsaustur að
mínu mati.
Endalok ein-
kenna innihald
sagnanna. Hvort
sem það eru hin
eilífu endalok lífsins, eða endalok
sambands, vináttusambands eða
hjónabands. Persónurnar eru
margar hverjar í krísu, í leit að
sjálfum sér. Það er enginn léttleiki
yfir þessu. Sögurnar eru nötur-
legar, kaldhæðnar, mannlegar,
raunverulegar. Behn bregður upp
mynd af stund í lífi fólks og sú
stundin markar oft skil í því lífi, þó
að hún geti virst hversdagsleg.
Sumar sögurnar eru mjög áhrifa-
miklar, aðrar gleymast fyrr. Í
heildina er Lukkunnar pamfíll
ágætis lesning.
Ekki orðinu
lengra en örstutt
Norskt glæsipar Ari Behn er kvæntur norsku prinsessunni Mörtu Louise.
Lukkunnar pamfíll: Örsögur
bbbnn
Eftir Ara Behn. Íslensk þýðing: Sigurður
Helgason. Draumsýn bókaforlag 2012.
INGVELDUR
GEIRSDÓTTIR
BÆKUR
AFP
EGILSHÖLL
VIP
12
12
12
12
12
12
12
12
KRINGLUNNI
L
L
L
12
12
12
16
16
16
L
L
L
KEFLAVÍK
16
STÆRSTA MYND ÁRSINS
EMPIRE
KVIKMYNDIR.IS
HOLLYWOOD REPORTER
SÉÐ OG HEYRT
SELFOSSI
ÁLFABAKKA
THE DARK KNIGHT RISES
kl. 1 - 2 - 4:30 - 5:30 - 6 - 8 - 9 - 10 - 10:20 - 11:20 2D
DARK KNIGHT RISES VIP kl. 1 - 4:30 - 8 - 11:20 2D
MAGIC MIKE kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 2D
DREAMHOUSE kl. 8 2D
MADAGASCAR 3 ísl.Tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 2D
MADAGASCAR 3 ísl.Tali kl. 1:30 - 3:40 3D
UNDRALAND IBBA ísl.Tali kl. 1:30 2D DARK KNIGHT RISES kl. 5:30 - 6 - 9 - 10 2D
MAGIC MIKE kl. 8 - 10:20 2D
MADAGASCAR 3 ísl.Tali kl. 5:50 3D
AKUREYRI
DARK KNIGHT RISES kl. 4:30 - 8 - 11:20 2D
LOL kl. 6 2D
DREAM HOUSE kl. 8 - 10:20 2D DARK KNIGHT RISES kl. 7 - 10:20 2D
DREAMHOUSE kl. 8 - 10 2D
THE DARK KNIGHT RISES kl. 8 - 11:15 2D
DREAMHOUSE kl. 8 - 10:10 2D
DARK KNIGHT RISES
1 - 2 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10:10 - 11:10 2D
TED kl. 3:20 - 5:40 - 10:30 2D
MAGIC MIKE kl. 8 2D
ÍSÖLD 4 ísl.Tali kl. 2 - 4 3D
MADAGASCAR 3 ísl.Tali kl. 1 - 3 2D
Bonito ehf. | Friendtex | Faxafen 10 | 108 Reykjavík | sími 568 2870 | www.friendtex.is
OPNUNARTÍMI
mánudag - föstudag 11:00-18:00
LOKAÐ á laugardögum
ÚTSALA
40%
50%
60%
70%
Ný frábær tilboð
Kíktu, það borgar sig