Morgunblaðið - 31.07.2012, Blaðsíða 27
Úr frændgarði Margrétar Maríu Leifsdóttur
Þorgeir Þorsteinsson
b. á Hlemmiskeiði
Vilborg Jónsdóttir
kennari
Guðrún Auðunsdóttir
húsfr. á Prestbakka
Guðbrandur Guðbrandsson
b. á Prestbakka á Síðu
Þórfinna Bárðardóttir
húsfr. á Akureyri
Arnór Guðmundsson
skrifstofustj. í Rvík.
Margrét Jónasdóttir
húsfr. í Rvík.
Margrét María
Leifsdóttir
Leifur Bárðarson
yfirlæknir við LSH
Vilborg Ingólfsdóttir
hjúkrunarfr. og skrifstofustj.
í velferðarráðun.
Ingólfur Guðbandsson
kórstj. og ferðamálafrömuður
Inga Þorgeirsdóttir
kennari
Unnur Arnórsdóttir
píanóleikari í Rvík.
Bárður Ísleifsson
yfirarkitekt hjá Húsam. ríkisins
Ísleifur Oddsson
trésmiður á Akureyri
Margrét Oddsdóttir
húsfr. í Ytri-Skógum undir Eyjafj.
Óli Pálsson
forstjóri í Rvík.
Pálmar Ólason
arkitekt
Þorfinnur
Guðbrandsson
múrari í Rvík.
Jónína
Þorfinnsdóttir
húsfr, í Rvík.
Ómar
Ragnarsson
fyrrv. fréttam.
og dagskrár-
gerðarm.
Jón Ragnarsson
fyrrv. rallýökum.Þorfinnur
Ómarsson
fjölmiðlam.
Lára
Ómarsdóttir
frétttam.
Þorgerður Ingólfsdóttir
söngstj.
Rut Ingólfsdóttir
fiðluleikari
Unnur María Ingólfsdóttir
fiðluleikari
Inga Rós Ingólfsdóttir
sellóleikari
Afmælisbarnið Margrét María.
lands og stofnaði eigið hljóð-
færaverkstæði, í ársbyrjun 1998,
sem hún hefur starfrækt síðan þeg-
ar hún gefur sér tíma til þess.
Margrét hóf störf hjá Slökkviliði
höfuðborgarsvæðisins að loknu
verkfræðinámi, 2006, og hefur verið
verkfræðingur þar síðan.
En við hvað fæst iðnaðarverk-
fræðingur hjá Slökkviliði höfuðborg-
arsvæðisins?
„Það er nú ýmislegt. Lokaverk-
efni mitt vegna M.Sc.-prófsins
fjallaði einmitt um þætti í starfi
slökkviliðsins og ég hef unnið að
bestun fyrir staðsetningu slökkvi-
stöðva á starfssvæði slökkviliðsins,
auk þess sem ég fæst við starfs- og
rekstrargreiningar og áhættugrein-
ingu á heildarstarfsvettvangi
slökkviliðsins. Við höfum t.d. unnið
töluvert með Almannavörnum en
slökkviliðsstjóri situr í almanna-
varnanefnd höfuðborgarsvæðisins.
Þess má t.d. geta að nú á að hefja
byggingu á nýrri útibússtöð slökkvi-
liðsins í Mosfellsbæ.“
En hefur verkfræðingur sem er
að greina öryggismál hátt á annað
hundrað þúsund íbúa tíma til þess að
gera við fiðlur?
„Nei, eiginlega ekki. Við getum
orðað þetta svo að ég hafi aldrei lok-
að verkstæðinu formlega og ég tek
að mér einstaka verkefni þegar tími
gefst til en sinni t.d. engri nýsmíði.
Ég geri það kannski seinna þegar
hægist um.“
Fjölskylda
Eiginmaður Margrétar er Guð-
mundur Pálsson, f. 9.6. 1973, ís-
lenskufræðingur og fréttamaður á
RÚV. Hann er sonur Páls Guð-
mundssonar, fyrrv.verslunarmanns
og kaupmanns, og Steinunnar Há-
konardóttur, félagsmálafulltrúa hjá
Blindrafélaginu.
Börn Margrétar og Guðmundar
eru Diljá Helga Guðmundsdóttir, f.
9.6. 1997; Máni Helgason, f. 9.2.
1999; María Guðmundsdóttir, f. 28.7.
2007, og Snorri Guðmundsson, f.
18.8. 2011.
Systir Margrétar er Inga María
Leifsdóttir, f. 5.9. 1977, kynningar-
og markaðsstjóri Íslensku óper-
unnar.
Foreldrar Margrétar eru Leifur
Bárðarson, f. 8.5. 1948, yfirlæknir
við Landspítalann, og Vilborg Ing-
ólfsdóttir, f. 3.6. 1948, hjúkrunar-
fræðingur og skrifstofustjóri í vel-
ferðarráðuneytinu.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2012
Júlíana Sveinsdóttir listmálarifæddist á Sveinsstöðum íVestmannaeyjum 31.7. 1889
og ólst þar upp. Hún var dóttir
Sveins Jónssonar, trésmíðameistara
í Vestmannaeyjum og síðar í
Reykjavík,
og f.k.h., Guðrúnar Runólfsdóttur
húsfreyju. Var Júlíana næstelst
fimm systkina.
Júlíana fór til Reykjavíkur sex-
tán ára að aldri og stundaði nám
við Kvennaskólann. Hún hóf sitt
listnám er hún naut umsagnar Þór-
arins B. Þorlákssonar listmálara,
árið 1908, en hann var mikilvægur
frumkvöðull í málaralist hér á landi
og hélt fyrstu málverkasýninguna
sem haldin var hér á landi, árið
1900.
Júlíana átti föður sem hafði efni
og áhuga á að styðja hana til list-
náms. Hún hélt því til Danmerkur
þar sem hún stundaði nám við
einkaskóla Gustavs Vermehrens í
einn
vetur, síðan við einkaskóla
Agnesar Jensen veturinn 1910-
1911, en hóf síðan nám og lærði við
Konunglega listaháskólann í
Kaupmannahöfn undir handleiðslu
P. Rostrups Byesens 1912-17 og við
Freskoskóla 1927-31. Hún fór einn-
ig fjölda námsferða til Ítalíu.
Júlíana bjó í Danmörku að námi
loknu að undanskildum árunum
1929-31 er hún bjó á Íslandi. Hún
er, ásamt Kristínu Jónsdóttur,
fyrsta íslenska konan sem varð
myndlistarmaður að atvinnu og
telst, ásamt henni, Jóhannesi Kjar-
val og Jóni Stefánssyni, til annarrar
kynslóðar íslenskra listmálara.
Helsta viðfangsefni hennar sem
listmálara var landslag og uppstill-
ingar auk þess sem hún stundaði
myndvefnað í óhlutbundnum stíl, en
veggteppi eftir hana hangir m.a. í
Hæstarétti Danmerkur.
Júlíana naut mikillar virðingar í
Danmörku fyrir list sína, var m.a.
sæmd heiðurspeningi Eckersbergs
1947 og átti sæti í dómnefnd hinna
virtu Charlottenborgarsýninga um
langt árabil.
Hún lést í Kaupmannahöfn hinn
17.4. 1966.
Merkir Íslendingar
Júlíana
Sveinsdóttir
90 ára
Guðrún Haraldsdóttir
Kristín G. Pálsdóttir
80 ára
Bragi Friðþjófsson
Hrafnhildur Þorvaldsdóttir
Pétur Jóhannsson
75 ára
Ása Guðbjörnsdóttir
Guðrún Eðvaldsdóttir
Hlíf Theodórsdóttir
Ingvi Rafn Jónsson
Jóhanna Kristín
Jónmundsdóttir
Sigurður Steingrímsson
Tómas Sigurðsson
70 ára
Helga Sigrún Helgadóttir
Kristín Axelsdóttir
Sigurbjörn Pálsson
60 ára
Auðbjörg Guðmundsdóttir
Ágústa Valdís Svansdóttir
Matthías Pétursson
Páll Valdimar Stefánsson
Pétur Kristjánsson
Sigríður Karen
Samúelsdóttir
Sigurður Jóhannsson
Þorgeir Hafsteinsson
50 ára
Ásgeir Einarsson
Ásta Eggertsdóttir
Ásthildur L.
Benediktsdóttir
Birna Eggertsdóttir
Elís Þröstur Elísson
Jón Bjarni Jónsson
Lára Heiður Sigbjörnsdóttir
Lilja Birkisdóttir
Pétur Guðni Pétursson
Þórarinn Gíslason
Þórir Gunnarsson
40 ára
Andrea Svecová
Arna Dís Kristinsdóttir
Dagrún Ellen Árnadóttir
Guðrún Jóna Sigurðardóttir
Haukur Örn Dýrfjörð
Helena Sigríður Pálsdóttir
Kristjana Helgadóttir
Napapharin Krobputsa
Jonsson
Páll Geir Bjarnason
Sigurður Arnar Jónsson
Steinn Jónsson
Ævar Líndal Jensson
30 ára
Helgi Már Svavarsson
Hulda Klara Lárusdóttir
Jón Björn Árnason
Jón Örn Ómarsson
Kristinn Björnsson
Monika Kozlowska
Sveinn Örvar Steinarsson
Til hamingju með daginn
30 ára Þórhallur fæddist í
Reykjavík, ólst upp í Vest-
urbænum og á Seltjarn-
arnesi, lauk A+-gráðu við
NTV og starfaði hjá BYKO
um skeið.
Bræður: Hallgrímur Pjet-
ursson, f. 1986, háskóla-
nemi; Pjetur Pjetursson, f.
1996, nemi.
Foreldrar: Pjetur G.
Hjaltason, f. 1956, tölvu-
maður hjá Hugbúnaði ehf.,
og Ella Þórhallsdóttir, f.
1957, lífeindafræðingur.
Þórhallur Páll
Pjetursson
40 ára Vala ólst upp í
Reykjavík, lauk stúdents-
prófi frá FÁ og starfar hjá
Lögheimtunni í Reykjavík.
Maki: Stefán Óli Sæ-
björnsson, f. 1972, sölu-
og markaðsstjóri hjá
Slippfélaginu.
Börn: Sara Mjöll, f. 2001,
og Aron Snær, f. 2008.
Foreldrar: Halldóra Jón-
asdóttir, f. 1942, fyrrv.
skrifstofum., og Sveinn
Ingason, f. starfsm. hjá
Álverinu í Straumsvík.
Vala
Sveinsdóttir
30 ára Ósvald fæddist á
Akureyri, ólst upp á
Blönduósi, lauk fiski-
mannsprófi frá Stýri-
mannaskólanum og er
skipstjóri og bóndi á Hæli
í Torfalækjarhreppi.
Dóttir: Angela Ósk Ós-
valdsdóttir, f. 2002.
Foreldrar: Indriði Hilm-
arsson, f. 1961, verka-
maður á Raufarhöfn, og
Rannveig Harðardóttir, f.
1962, húsfreyja á Læk í
Landsveit.
Ósvald Hilmar
Indriðason
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
Forsíðumerkingar
Kjölmiðamerkingar
V/Reykjalund - Mosfellsbæ - Sími 562 8500 - www.mulalundur.is
Múlalundur - fyrir betri framtíð