Morgunblaðið - 31.07.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2012
Járnskortur
getur verið
ein ástæðan
Vandaðar bætiefnablöndur
úr lífrænni ræktun,
fyrir börn og fullorðna.
Þreytt og
slöpp?
Nánar á heilsa.is
Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum.
• Einkenni járnsskorts geta verið
t.d. mæði, þreyta svimi, kulsækni,
hjartsláttaróregla og höfuðverkur.
• Floradix og Floravital hjálpa fólki
til að viðhalda góðri heilsu og
heilbrigði.
• Blandan byggist upp á fljótandi
lífrænu járni, sérvöldum jurtum,
ávaxta djús og blöndu af c- og
b-vítamíni, til að auka járnbúskap
líkamans.
Vaxandi áhyggjur eru af lakaritækjakosti Landspítalans.
Geislunartæki hafa verið í fréttum
vegna bilana og fram hefur komið
að megintækin séu mjög komin til
ára sinna,
einkum þó
annað þeirra.
Það er sagtað 400
milljónir þurfi
til endurnýj-
unar þeirra. Það er vissulega mikið
fé.
En þess er skemmst að minnastað Norræna velferðarstjórnin,
eins og hún kallaði sig, er að kasta
heilum milljarði króna á glæ í
óþarfa gæluverkefni sem tengist
óskilgreindri óbeit hennar á ís-
lensku stjórnarskránni.
Síðasti kaflinn á því eyðsluæði erað henda 250 milljónum króna í
skoðanakönnun um sex almennt
orðaðar spurningar sem gaman-
samir láta hafa sig í að kalla þjóðar-
atkvæði.
Hið óþarfa samningabrölt umIcesave kostaði meira en 400
milljónir svo ekki sé minnst á þá
tugi milljarða sem þjóðin forðaði að
felldir yrðu á Ísland.
Ekki þarf að nefna Sjóvá ogSparisjóð Keflavíkur til sögu
eða svo ótal margt annað.
Annars vegar eru glappaskot oggæluverkefni ríkisstjórnar og
hins vegar er dauðans alvara.
Hvers konar gerð af gálgahúm-or er það þegar forystufólk
með slíkan slóða kennir sig við
„skjaldborg“ eða norræna velferð?
Landspítalinn.
Er þetta pólitísk
útgeislun?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 30.7., kl. 18.00
Reykjavík 13 skýjað
Bolungarvík 16 léttskýjað
Akureyri 20 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 10 súld
Vestmannaeyjar 13 skýjað
Nuuk 10 skýjað
Þórshöfn 11 skúrir
Ósló 20 heiðskírt
Kaupmannahöfn 17 skýjað
Stokkhólmur 22 heiðskírt
Helsinki 18 skýjað
Lúxemborg 17 léttskýjað
Brussel 17 léttskýjað
Dublin 16 léttskýjað
Glasgow 15 léttskýjað
London 20 heiðskírt
París 18 skýjað
Amsterdam 17 léttskýjað
Hamborg 16 léttskýjað
Berlín 22 léttskýjað
Vín 23 léttskýjað
Moskva 27 heiðskírt
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 36 heiðskírt
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 28 heiðskírt
Róm 33 heiðskírt
Aþena 32 heiðskírt
Winnipeg 21 alskýjað
Montreal 25 léttskýjað
New York 26 léttskýjað
Chicago 30 léttskýjað
Orlando 31 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
31. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:34 22:35
ÍSAFJÖRÐUR 4:17 23:02
SIGLUFJÖRÐUR 3:59 22:46
DJÚPIVOGUR 3:58 22:10
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Umhverfisstofnun ákvað í síðustu
viku að synja umsókn Norðursigl-
ingar um leyfi til fimm ára til að hefja
tilraunasiglingar með ferðamenn á
Mývatni. Telur stofnunin að sigling-
arnar geti haft truflandi áhrif á fugla-
líf Mývatns auk þess sem núgildandi
verndaráætlun geri ekki ráð fyrir at-
vinnustarfsemi af því tagi sem sótt er
um.
Synjunin óskiljanleg
Þorsteinn Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri Norðursiglingar, segir
að synjun Umhverfisstofnunar sé al-
gjörlega óskiljanleg og að hún hafi
komið sér í opna skjöldu. Norðursigl-
ingar hefðu átt í samstarfi við land-
eigendur á Geiteyjarströnd á bökk-
um Mývatns og öll áhersla hefði verið
lögð á nærgætni við náttúruna og að
tryggja að fólk gæti upplifað náttúru
vatnsins á eins vistvænan hátt og
hugsast getur. „Vatnið hefur verið
nytjað frá ómunatíð og á seinni hluta
tuttugustu aldar var mikil umferð
báta á vatninu vegna netaveiða sem
nú hafa lagst af. Ég sé ekki hvernig
siglingar eftir ákveðnum leiðum á al-
gjörlega hljóðlausum bát gætu ógnað
lífríki vatnsins.“
Samkvæmt Þorsteini var fyrir-
hugað að nota sérhannað víkingaskip
til siglinganna, þar sem slík skip
væru grunnrist og hentuðu því vel
fyrir Mývatn. Skipið gæti borið um
30 farþega og myndi sigla tvisvar á
dag yfir sumartímann. Skipið myndi
ganga fyrir rafmagni, seglum og
árum og væri því óháð nýtingu jarð-
efnaeldsneytis og laus við losun
gróðurhúsalofttegunda.
„Okkur þykir það umhugsunarvert
hversu mikil áhrif Umhverfisstofnun
virðist geta haft á að okkar mati eðli-
lega atvinnustarfsemi. Við íhugum
nú okkar stöðu og hvort við munum
kæra niðurstöðuna,“ segir Þorsteinn
að lokum.
Siglingum synjað á Mývatni
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Mývatn Umhverfisstofnun hefur synjað Norðursiglingu um leyfi til siglinga
með ferðamenn um vatnið. Norðursigling íhugar að kæra niðurstöðuna.
Umsókn Norðursiglingar um leyfi
til að sigla með ferðamenn hafnað