Morgunblaðið - 31.07.2012, Blaðsíða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2012
GLUGGAR OG GLERLAUSNIR
idex.is - sími: 412 1700
- merkt framleiðsla
• tré- eða ál/trégluggar
og hurðir
• hámarks gæði og ending
• límtré úr kjarnaviði af norður
skandinavískri furu
• betri ending
— minna viðhald
• lægri kostnaður þegar fram
líða stundir
• Idex álgluggar eru íslensk
framleiðsla
• hágæða álprófílakerfi
frá Schüco
• Schüco tryggir lausnir
og gæði
• Þekking og þjónusta
• Áralöng reynsla
Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi tegundum bygginga
Byggðu til framtíðar
með gluggum frá Idex
og alls ekki útilokað að fólk sjái plötu
eftir okkur í verslunum enn á ný,“
segir Helga.
Jóhann segir gerð nýrrar plötu
vera eitthvað sem þau bæði hafi
áhuga á að vinna að en eins og stend-
ur sé þó ekkert í stöðunni að gefa út
plötu. „Við höfum rætt þetta en það
þyrfti þá að vera til staðar alveg
skothelt efni, þ.e. lög og textar.
Markaðurinn hefur tekið miklum
breytingum og núna er meira um að
tónlistarmenn gefi út eitt og eitt
lag.“
Farsælt samstarf
í meira en 30 ár
Árið 2009 héldu þau Jóhann og
Helga upp á þrjátíu ára starfsafmæli
sitt en þá voru liðin þrjátíu ár frá því
platan Ljúfa líf kom út. Þau segja
bæði að samstarfið hafi verið mjög
gott á þeim tíma sem þau hafa sung-
ið saman en hvorugt þeirra hafði trú
á því fyrir þrjátíu árum að þau
myndu enn í dag vera að syngja
sömu lögin. „Ég hugsaði nú ekki
mikið um það á þeim tíma þegar við
vorum að byrja hvort við yrðum enn
að syngja saman sömu lögin eftir
þrjátíu ár. Þetta eru bara svo góð
lög, útsetningin góð og því hafa þau
lifa góðu lífi allan þennan tíma. Við
erum afskaplega stolt af þessu barni
okkar ef það má orða það þannig,“
segir Helga en hún segist enn vera
hissa á því þegar fólk á öllum aldri
byrjar að syngja með á tónleikum.
„Það er auðvitað mjög skemmtilegt
þegar salurinn tekur allur undir og
við erum alltaf jafn hissa hvað marg-
ir kunna lögin okkar hvort sem það
eru ungir eða aldnir.“
Varla er til sá Íslendingur sem
ekki hefur heyrt eitthvað af lögum
Jóhanns og Helgu en á plötunni
Ljúfa líf var að finna fjöldann allan
af ógleymanlegum smellum. „Vana-
lega er ekki nema einn smellur á
plötu eða í besta falli tveir til þrír en
á plötunni Ljúfa líf var mjög mikið
um smelli sem hafa verið mikið spil-
aðir í gegnum árin,“ segir Jóhann.
Fæstir muna þó að platan var gefin
út m.a. í Japan og var þá nafni sveit-
arinnar snúið upp á ensku sem You
And I. Platan seldist í nærri 300 þús-
und eintökum þrátt fyrir að diskó-
tímabilið væri á undanhaldi víða um
heim.
Morgunblaðið/Eggert
Dúetinn Þú og ég hefur
sungið saman í meira en þrjá-
tíu ár og er ekki að sjá að þau
Jóhann og Helga ætli að
hætta í bráð en þau munu
skemmta í iðnó um helgina.
Sjálfbærni og samfélag er yfirskrift
fyrirlestraraðar sem listahópurinn
Skæri steinn blað stóð fyrir nú dag-
ana 25. til 27. júlí, í verkefnarýminu
Bókabúðinni á Seyðisfirði. „Fyrir-
lestraröðinni er ætlað að koma af stað
samtali um áhugaverðar leiðir til að
nýta betur það sem finnst innan sam-
félagsins og umhverfisins,“ segir Þór-
unn Eymundardóttir, ein af þre-
menningunum sem skipa Skæri
steinn blað.
Meðal fyrirlesara voru Sólveig
Alda Halldórsdóttir og Kristinn Már
Ársælsson sem fjölluðu um sjálf-
bærni og lýðræði. Ólafur Örn Péturs-
son Skálanesbóndi miðlaði svo þekk-
ingu og reynslu sinni af umhverfi,
orku og skipulagi, og þá má nefna
Godd Magnússon sem fjallaði um
kraft og vægi einstaklingsins í sam-
félaginu.
Listakonurnar Þórunn Eymundar-
dóttir, Hanna Sigurkarlsdóttir og
Litten Nyström standa á bak við
Skæri steinn blað. Þær hafa staðið
fyrir ýmsum námskeiðum fyrir bæði
ferðamenn og almenning, „pop-up“
verkefnum, opnum listasmiðjum og
fleiru.
Í framhaldi af fyrirlestraröðinni
eru ýmsir viðburður á dagskrá dag-
ana 1. til 3. ágúst í Bókabúðinni á
Seyðisfirði. „Við erum að búa til við-
burði þar sem fólk kemur og deilir
þekkingu og reynslu,“ segir Þórunn.
Þar er áætlunin að kanna betur lær-
dóminn úr fyrirlestraröðinni, hvað sé
meira hægt að gera og hvert sé fram-
haldið af því. Nákvæma dagskrá má
finna á skaftfell.is. larah@mbl.is
Skæri steinn blað „Koma af stað samtali um áhugaverðar leiðir til að nýta
betur það sem finnst innan samfélagsins og umhverfisins.“
Nýting samfélags og umhverfis
Nýverið gaf kammerkórinn Schola
cantorum út hljómplötuna Foldar-
skart sem inniheldur íslenska efnis-
skrá úr sumartónleikaröð kórsins.
Tónleikaröðin stendur yfir í sumar
í Hallgrímskirkju, þar sem kórinn
spilar iðulega kl. 12 á miðviku-
dögum til 12. september.
„Þetta eru íslenskar kórperlur,“
segir Benedikt Ingólfsson um
hljómplötuna, en hann er formaður
kórsins.
„Það hefur gengið vel hjá kórn-
um frá byrjun. Til að mynda fór
kórinn til Frakklands einu ári eftir
að hann var stofnaður árið 1996 af
Herði Áskelssyni, þar sem hann
vann í kórakeppni,“ segir Benedikt
en Hörður er einnig stjórnandi
kórsins. Í kjölfarið hefur Schola
cantorum gefið út fjórar hljóm-
plötur. Fyrst kom út Principium ár-
ið 1999 sem inniheldur tónlist frá
16. og 17. öld, Heyr himna smiður
kom út 2001 þar sem íslensk sam-
tímatónlist er í fyrirrúmi, Hall-
grímspassía eftir Sigurð Sævarsson
sem Schola cantorum flutti ásamt
Caput og einsöngvara kom út 2010
og nýlega Foldarskart.
„Kórinn syngur fjölbreytta tón-
list. Hann hefur sungið bæði eldri
tónlist frá endurreisnar- og
barokktímabilinu, auk þess að
flytja og frumflytja ný íslensk
verk,“ segir Benedikt.
„Kórmeðlimir Schola cantorum
eru allt menntað tónlistarfólk sem
hefur starfað eða starfar við tón-
list,“ segir Benedikt. Kórinn hefur
einnig tekið þátt í ýmsu tónlistar-
samstarfi, til að mynda með Björk,
Sigur Rós og sænska dúettinum
Wildbirds and Peacedrums.
Á döfinni er svo önnur hljóm-
plata frá Schola cantorum, en á
henni flytur kórinn m.a. nýlega tón-
list eftir Hafliða Hallgrímsson, en
vænta má hennar á haustdögum að
sögn Benedikts. larah@mbl.is
Íslenskar kórperl-
ur á Foldarskarti
Schola cantorum Gaf út sína fjórðu
plötu sem nefnist Foldarskart.