Helgafell - 01.03.1942, Síða 15
HELGAFELL
TÍMARIT
UM BÓKMENNTIR OG ÖNNUR MENNINGARMÁL
I. ÁRG. MARZ 1942 L HEFTl
Við, sem tekið höfum að okkur ritstjórn þessa tímarits, höfum iengi
verið þeirrar skoðunar, að íslenzkum lesendum og rithöfundum gætí orð-
íð það nokkur fengur, ef takast mætti að gefa hér út mánaðarrit um bók-
menntir og önnur menningarmál, er talizt gæti sambærilegt, eftir aðstæð-
um, við önnur tímarit slíkrar tegundar með nágrannaþjóðunum. Og þótt
okkur dyljist ekki þeir örðugleikar, sem á því hljóta að verða að gera slíkt
rit svo úr garði sem við mundum kjósa, þykir okkur ekki rótt að láta
það tækifæri ónotað, er okkur hefur nú boðizt, til að gera tilraun um útgáfu
mánaðarrits, þar sem við höfum óbundnar hendur um efnisval og frágang.
Tímaritinu Helgafelli er fyrst og fremst ætlað að flytja innlendan
cg erlendan skáldskap og fjalla um bókmenntir, listir og almenn menning-
armál. Það verður engum stjórnmálaflokki háð né venzlað, en mun sýna
frjálslyndi í efnisvah sínu og telja sér skylt að taka öllu, sem því kann að
berast af listrænu og athyglisverðu efni, og eigi sízt hverju vænlegu ný-
mæli, með fullri gestrisni, samkvæmt þeirri skoðun okkar, að andlega
starfsemi beri að meta eftir lista- og menningargildi hennar og engu öðru.
Jafnframt mun það gera sér far um að hlúa á allan hátt að þeim verðmæt-
um, sem fyrir eru í tungu vorri, sögu og þjóðmenningu.
Okkur er ljóst, að gildi og áhrif tímaritsins eru framar öllu öðru
undir því komin, að því takizt að ná góðri samvinnu við hina hæfustu og
ritfærustu menn vor á meðal, enda höfum við miklar vonir um að svo megi
verða. Margir hinna merkustu rithöfunda og skálda vorra hafa heitið
Helgafelli stuðningi sínum og velvild, en ljúft er okkur einnig að geta
þess, að það hefur þegar fengið nokkurn ádrátt um andúð, sem líka mætti
verða því til brautargengis.
Magnús Ásgeirsson. Tómas GuÓmundsson.