Helgafell - 01.03.1942, Blaðsíða 22

Helgafell - 01.03.1942, Blaðsíða 22
8 HELGAFELL an EyjafjarSar og VaðlaheiSar NorSurland, SunnlendingafjórSung vestan Markarfljóts SuSurland, en allt svæSiS austan Eyjafjarðar og Markarfljóts Austurland. Nær þá AusturlandiS vestur að landnámum Helga hins magra í Kristnesi og Ketils hængs að Hofi. Þegar farið er eftir skáldatali Finns Jónssonar, skiptast fornskáldin þann- ig á landshlutana: Vesturland 13 hirðskáld 33 tækifærisskáld. Alls 46 Norðurland 13 — 28 — — 41 SuSurland 8 — 15 — — 23 Austurland 1 — 8 — — 9 Þessar tölur tala skýru máli. MiSaS við mannfjölda hefur Austurland þrisvar til fjórum sinnum færri skáld en við mætti búast og Vesturland rúm- lega fimm sinnum fleiri skáld en Austurland. ViS þenna samanburð verð- ur auðvitað einnig að hafa í huga frásagna- eða heimildamagn hvers lands- hluta, en það mun brátt birtast, að forsendur reistar á þeim grundvelli ná fremur skammt til skýringar einar saman. ViS tökum strax eftir því, að munarins á skáldatölu landshlutanna gætir langtum meir í flokki hirðskálda en tækifærisskálda. Mætti þó vænta þess, að minning um hirðskáldin hefði geymzt nokkurn veginn jafnt, hver svo sem uppruni þeirra var. ÞaS voru fyrst og fremst kvæðin um konungana, sem héldu nafni þeirra á lofti. Al- kunnugt er það einnig, að Vestur- og Norðurland hafa til síðustu alda staðið SuSur- og Austurlandi miklu framar í skáldskap og annarri bókmennta- iðju. Einna mikilvægust er þó sú staðreynd, að sjálfar fornsögurnar bera það með sér, að austan lands muni menn sjaldan hafa ort að fornu og lítt haldið til haga því litla, sem kveðið var. 1 Ljósvetninga sögu er engin vísa, en ein í Reykdæla sögu, og hún er eftir eyfirzka skáldið Víga-Glúm. Undan- tekning þessi er athyglisverð. Af henni má ráða, að höfundur sög- unnar myndi varla hafa gengið fram hjá vísum, sem vörðuðu söguefni hans, ef til hefðu verið og honum kunnar. Vopnfirzku sögurnar eru sem Ljósvetninga saga með öllu vísnalausar. Sama er að segja um sögur Þor- steins Síðu-Hallssonar, Hrafnkels FreysgoSa og þætti þá, sem Austurland varða- Vísur hafa aðeins Droplaugarsona saga og frásögnin um dráp Þor- steins SíSu-Hallssonar. Alls eru það 10 vísur, sem varðveittar eru í sögum Austurlands, og þrjár þeirra draumvísur. Jafnast þessi kveðskapur um tölu vísna á við einn þrettánda hlutann af vísnafjölda Egils sögu einnar. Um vísnamergðina í sögum Vestur- og Norðurlands þarf ekki að fjölyrða, en vert er að benda á það, hve margar af þessum sögum eru ofnar um ævi- atriði góðskáldanna. Svo er um Egils sögu, Gunnlaugs sögu, Bjarnar sögu, Gísla sögu, HávarSar sögu, FóstbræSra sögu, Kormáks sögu, Grettis sögu, Hallfreðar sögu og Víga-Glúms sögu. MeSal sagna Austurlands höfum viS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.