Helgafell - 01.03.1942, Blaðsíða 51

Helgafell - 01.03.1942, Blaðsíða 51
L’ETTARA HJAL U M þær mundir, sem tímarit þetta kemur í fyrsta skipti fyrir augu lesenda sinna, verða kosningar til bæjarstjórnar nýlega af- staðnar hér í Reykjavík. Að vísu hefði ritið getað komið út nokkru fyrr, en hvorki vildi >-,,. i það hætta á að „verða undir“ í tftir kosn- , ■ , , . , . , , . kosmngabarattunru ne eiga þatt ingarnar. , ^ draga athygli manna frá henni. Því kosningar eru svo afdrifaríkur við- burður, að kjósendur eiga heimtingu á að njóta þeirra til hins ýtrasta. Og vissulega þurfa þær að fara miklu oftar fram. I kosningunum opn- ast mönnum sýn inn í nýjan heim, þar sem við blasir stórfenglegri menning og hrikalegri fram- farir —• eftir kosningarnar, en nokkurn hafði órað fyrir. Og það sýnir ljósast hvers kosning- ar mega sín, að varla eru dæmi þess, að nokkr- ar framfarir hafi átt sér stað á tímabilinu fyrir kosningarnar. Hitt er óskiljanlegt, að menn skuli gera svo upp á milli þess, hver flokkur- inn beri sigur úr býtum. Ef dæma má eftir því, sem hver flokkur um sig ætlar að afreka, finnst mér, að það hljóti að vera mest um vert, að einhver þeirra komist að. Það dettur hvort scm er engum í hug að væna flokkana um það, að þeir muni bregðast loforðum sinum, enda mundi sá háttur hafa verið tekinn upp, að gera kosningar skilorðsbundnar, þannig, að um- boð flokkanna félli niður, um leið og þeir brygðu út af kosningaáætlun sinni í einhverju atriði, ef þeir hefðu nokkurn tíma gefið ástæðu til slíkrar tortryggni. Auðvitað kemur slíkt ekki heldur til mála nú, svo enginn þarf að efast um, að höfuðstaðurinn muni taka mikl- kosningin kann að hafa farið. Nú fáum við ráð- hús, eins marga skóla og hver vill hafa, kirkjur „til að prýða umhverfið“, spítala, nógu stóra til þess, að hægt sé að minnka þá um helm- ing, áður en þeir eru reistir, fæðingardeildir, i- . , sem ekki mun af veita á næstu tyrirheitna , „ ,v. ,v , . . v arum, íbuðir við hvers manns landto. , £. ,• , hæh, nýjar gotur, sem hægt cr að ganga á, nýja barnaleikvelli ásamt björg- unartækjum á þá, sem fyrir eru, enn fremur lestrarstofur og bókasöfn, sorp- og líkbrennslur með tilheyrandi áburðarvinnslu, auk áfram- haldandi rennandi vatns, ljóss og hita. — En engin gleði er fullkomin, og vissulega má það vera öllum góðum mönnum áhyggjuefni, hvernig flokkarnir eiga að ganga til kosninga næst, þegar búið er að framkvæma allt þetta og meira til, og vellíðan fólks er orðin svo mikil og almenn, að engu verður við hana bætt. En séu bæjarstjórnarkosningar svo þýðingar- miklar, er full ástæða til að spyrja, hvort ekki sé enn þá bagalegra að láta svo langt líða milli kosninga til Alþingis. En svo er þó ekki. í þeim kosningum gilda önnur sjónarmið, með- al annars landfræðileg, auk þess sem öllum má r . ,v vera það ljóst, að það er miklu ingl og llægara ag koma því við að bera þjoöin. lítinn bæ fyrir brjósti heldur en heilt land. Þess vegna er það, að þó í nálægum héruðum hafi í vetur gengið hundapest, svo skæð, að elztu hundar muna ekki aðra eins, þá láta flokkarnir í Reykjavík sig það litlu skipta, og að sama skapi kemur engum til hugar, að flokkur, sem búinn er til fyrir bændur á Fljóts- um stakkaskiptum á næstu árum, hvernig semdalshéraði, fari að beita sér fyrir grásleppukyn-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.