Helgafell - 01.03.1942, Qupperneq 19

Helgafell - 01.03.1942, Qupperneq 19
UMHORF 5 leið hefur verið sendur mestur hluti þeirra hergagna, sem Bretar hafa enn fengið frá Bandaríkjunum. Með því móti væri líka komið í veg fyrir að Rússum bærust birgðir um hafnar- borgina Bandar-Shapur við Persa- flóa, en það væri Þjóðverjum mikið hagræði, einkum ef þeir gætu um leið teppt siglingar til Rússlands að norðan, eins og áður var getið. Auk þess myndi þá orðið allörðugt fyrir Breta að ná olíu frá Irak og Iran og samgöngur þeirra við Indland í háska. Japanar hafa nú flotastöðina miklu í Singapore á valdi sínu, þessa flotastöð, sem tók Breta tuttugu ár að byggja og kostaði þá 60 milljónir sterlingspunda. Þetta var mikill sigur, en þótt Japanar haldi Singapore, geta þeir ekki sam- stundis sent flota til Indlandshafs, nema þá nokkra kafbáta, sem að vísu geta unnið tjón, en vart svo, að Breta muni miklu. Japanar verða fyrst að tryggja sér yfirráð á Sundaeyjum, ná flotastöð Hollendinga Surabaja og síð- an Port Darwin á norðurströnd Ástra- líu. Takist þeim þetta, geta þeir sent mestan hluta flotans til Indlandshafs bandamönnum sínum, Þjóðverjum til hjálpar. SÓKN MÖNDULVELD- { Austur-Indíum ANNA GETUR TAFIZT munu Hollend- ingar verjast, meðan auðið er, og njóta allrar þeirrar aðstoðar, sem banda- menn þeirra geta veitt þeim. Hver vik- an og hver mánuðurinn, sem Japanar tefjast, er mikils virði, því að Banda- ríkjamenn efla landher sinn, flota og flugher í óða önn og verður vel ágengt, svo að nú er hver síðastur fyrir and- stæðinga þeirra. Samtímis reyna Bret- ar af fremsta megni að bægja hættunni frá Egyptalandi, stappa stálinu í Tyrki og halda áfram að senda hergögn til Rússlands. Þegar er búið að flytja nokkurt lið frá Bandaríkjunum til írlands, og fleiri hersveitir munu eft- ir fara innan skamms tíma. í Banda- ríkjunum er verið að æfa sjö millj- V — /or Victory ónir manna við vopnaburð, og þegar sá her er æfður og búinn að vopnum, verður meginhluti hans eflaust fluttur til Evrópu, og þar verða úrslitaorust- urnar háðar. Þjóðverjar verða vart unnir fyrr en meiri og betri her en þeirra sækir þá heim, og þá er um tvö lönd að velja, sem árásin gæti hafizt frá, Bretland og Rússland. Lokasóknin verður hafin frá báðum þessum lönd- um, ef tekst að tefja svo fyrir Þjóðverj- um, að þeir komi ekki í framkvæmd fyrirætlunum sínum nú. Það er því sennilegt, að séð verði fyrir úrslit styrj- aldarinnar á sumri því, sem fer í hönd, hversu langur tími, sem annars kann að líða, þar til henni lýkur. Jón Magnússon fil. fcand.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.