Helgafell - 01.03.1942, Síða 38

Helgafell - 01.03.1942, Síða 38
24 HELGAFELL anna. Ilmgufan, þung og höfug, minnir á bragðið af engifer. í þorpunum litlu, sem við þjótum í gegnum, leiðir skipan húsanna, sem virðast byggð í hrúgum og kösum, hugann að því, að frum- byggjar eyjanna voru hellisbúar, grófu sér holur og ranghala í mjúka móhell- una og undu vel í grenjum sínum, — svo vel, að sumir af hellum þessum eru í notkun enn í dag. Hér og þar eru karlar og konur á akri að taka upp jarðepli. Víða með veginum eru bananaekrur. Vatnsþrær með spanskgrænu vatni eru ekki sjald- gæf sjón. Vatnið í þeim er svo grænt, að öll önnur grænka bliknar. Sandurinn í Orotavavíkinni er svart- ur og grófur, af baunastærð og stærri, svíðandi heitur á efra borði, en rakur ef hróflað er við honum. Börn og bað- endur, sem sól og sjór hefur brúnað, skemmta sér með ströndinni fram. Upp á þennan svarta sand skellur brimlöðrið drifhvítt. Dagurinn er ósköp vinalegur, en langt til hafs eru skúrirnar að draga fyrir með netjum sínum, það er ef til vill hyggilegt að nota sólskinið, meðan það gefst. Ég helli sandi úr skóm mín- um, sting tveim steinvölum í vasa minn, og ekillinn er til með að aka í kapp við rigninguna, sem er að smá- nálgast land. Við höldum með hlíðum fram, sem leið liggur, þegar ég heyri allt í einu skot í brekkunum fyrir neðan okkur, skot og skot á stangli. Ég spyr, hvað hér sé að veiða, en ekillinn má ekki vera að því að svara mér, hann lætur bendingar nægja. Á þrepi fyrir neðan versta brattann er fólk á skrúðgöngu um akrana. Fyrir ganga prestar og djáknar og drengsnáðar í litklæðum, hárauðum, hvítum, bláum og gullnum, en í kjölfar þeirra fylgir sauðsvartur al- múginn. Þetta er virðuleg sjón undir bláum himni með skúradrögum og með vorgrænkuna í kring. Og að baki hafflöturinn, grænn sem væri hann úr göfugum steini og fágaður. En hví er fólkið að skjóta ? Hér nægja ekki bend- ingar, ekillinn tekur sér tíma og skýr- ir fyrir mér, að verið sé að vígja land- ið undir vorverkin, hreinsa akrana af illum öndum. En hvað er þetta, sem borið er fyrir ? Jú, það er María mey, hún er borin á hlera. Jæja, í Moskva í haust, sem leið, var það Lenin, hér er það María guðsmóðir. Einhverju verður að trúa. Ekillinn lyftir derhúf- unni, og vindurinn kembir ljósgula lokkana. Þá tek ég einnig ofan. Eins og í Moskva. Það er svo hátíðlegt, þeg- ar guðir og menn mætast á víðavangi. Væri ekki réttast að nema hér stað- ar ? Stíga út úr vagninum, kveðja ekil- inn, setjast að og verða langlífur í land- inu ? Litir og hvellir, — dúmm-dúmm ! Hér ætti maður að geta kunnað við sig. Þetta er svo einfalt og óbrotið fólk, að því er virðist. — Daginn eftir er ég staddur í litlu sjómannakirkjunni í Las Palmas, San Telmo. Tvær svartklædd- ar konur koma með blómvönd. Prest- urinn, sem tekur við honum, setur hann í blómsturker og kemur kerinu fyrir við fætur frelsarans. Konurnar eru hálfuppburðalitlar gagnvart presta- stéttinni, en taka sig samt til og færa kerið að fótum guðsmóður, — fer það ekki betur þarna ? Prestinum finnst, að það fari betur á hinum staðnum. Um þetta verður dálítið þref. Ósköp á ég bágt með að leggja ekki orð í belg: Mér virðast blómin nægja handa báð- um, væru kerin tvö. En ég er aðeins ferðalangur og á ekki heima hér, enn sem komið er. En var ég annars farinn frá Tener- iffa, þar sem lyngið verður að stór-

x

Helgafell

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.