Helgafell - 01.03.1942, Side 43

Helgafell - 01.03.1942, Side 43
GEORG BRANDES 29 Hálfri öld síÖar situr hæruskotinn maður á útikaffihúsi í Flórenz. Á Piazza Vittorio Emanuele ganga ungir menn í smáhópum og syngja alltaf sama sönginn. Þeir eru snöggklipptir upp á hnakka og láta ófriðlega. Grá- hærði öldungurinn, Georg Brandes, spyr Itala einn, hvort þetta sé söng- félag. ,,Nei, herra, það eru fasistar”. ,.Drottinn minn dýri“, segir Brandes. ,,Einu sinni voru unglingar Flórenzborgar allra laglegustu menn. Nú líta þeir út eins og negrar!“ Georg Brandes mátti muna frelsishreyfingu 19. aldar, hann lifði bæði vímu hennar og vonsvik. Hann fylgdi hinni 20. svo langt á leið, að hann mátti sjá helstríð borgaralegs frelsis og opinbers velsæmis í andlegum og pólitískum efnum. Það má rekja slóð þessarar þróunar í ritum hans, allt frá guðmóði fyrirlestranna 1871 til mannfyrirlitningar og bölsýni elliáranna. En samt gat þessi gamli maður rétt heiminum stirðnaða hönd sína til sátta: ,,Við verðum öll að efla gengi hins góða í heiminum“, sagði hann nokkrum stundum fyrir andlátið. 1. í júnímánuði 1862 var mikið um dýrðir í Kaupmannahöfn. Norrænir stúdentar reyna enn einu sinni að blása lífsanda í skandínavismann á al- mennu stúdentamóti. Á sviði konunglega leikhússins stendur Michael Wiehe og flytur forleik Paludan-Möllers : Gid Nordens Ungdom en Gang værdigt spille sin Rolle ! Gid enhver maa göre Fyldest for sit Parti! Gid aldrig det maa skorte paa Flid, paa Troskab, Kræfter og Talenter ! Og gid han træde frem, det store Snille (der muligvis, k.un af sin Genius \endt er midt iblandt os her) det store Snille, som efter Skæbnens Vilje skal udföre den store Rolle og de store Ting.......... ,,Menn sneru sér ósjálfrátt við í sætunum og skyggndust eftir snillingn- um, sem skáldið hafði spáð um“, segir Brandes í lífssögu sinni. Hann var sjálfur þarna inni staddur, horaður og pasturslítill stúdent, og þó flökraði að honum, að hann væri sá, sem koma skyldi. Því að metnaðurinn var vaknaður í brjósti þessa tvítuga unglings, sem var snauður að lífsreynslu, en ríkur að bóklegri speki, og dreymdi sína fyrstu stóru drauma um ,,mikið hlut- verk og mikla hluti“. Georg Brandes var Gyðingur að ætt, af kaupmannafólki kominn, frem- ur fátæku, en allur var heimilisbragur þess danskur. Foreldrar Brandesar

x

Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.