Helgafell - 01.03.1942, Qupperneq 59

Helgafell - 01.03.1942, Qupperneq 59
BÓKMENNTIR 45 til þess, að höfundurinn gerir sér ekki nógu skýra grein fyrir því, sem hann hyggst að lýsa, til þess að takast megi að túlka það á sannan og ótvíræðan hátt. Það er t. d. erfitt að fá ^kveðna mynd út úr setningu sem þessari, í kvæðinu Fossar (bls. 22) : ..Sífellt nóttin og dagurinn drjúpa eins og daggartár um hylji og flug“. Og enn annars staðar virðast orðin hafa valizt í ljóðlínurnar án verulegrar hliðsjónar'af efninu. Eftirfarandi ljóðlínur úr kvæðinu Hófatak (bls. 32), geta tæplega talizt góður kristindómur og því síður skilmerkilegur skáldskapur: ..Drottinn blessar hinn harða hóf, er hörpu vegarins slær, sem knýr fram tárin úr klökkri rót, en kletturinn undir hlær“. Og þá trúi ég því naumast, að skáldkonan hefði komizt svo að orði sem hún gerir, í kvæðinu Höndin (bls. 54), ef hún hefði haft betra taumhald á orðavalinu, eða séð fyrir sér þá mynd, er hún hyggst að lýsa: ,,— og lagði síðast í lófa þinn eitt léttúðarbros og svikinn eið“. Annars er listræn skynjun og glæsilegt mál- far, þrátt fyrir þetta, þau sérkenni skáldkon- unnar, sem víða gefa kvæðum hennar mjög heillandi yfirbragð, og þar sem henni auðnazt að stilla tilhneigingu sinni til orðskrúðs í hóf, ná þessir kostir hennar mjög sjaldgæfri full- komnun. Það er næsta óvíða, sem hægt er að tala um beinar smekkleysur í meðferð hennar á máli og stíl, og þótt slíkt komi fyrir, eins og í lýsingunni á hafinu, (bls. 91) — ,,Sko úfna makka og hvassar klær“, eða orðið ,,undabik- ar“ (bls. 26), sem mér finnst hryllilegt, þá eru það hreinar undantekningar. Með meiri sanni má finna að því, að mörg kvæðanna eru næsta hversdagsleg að efni og meðferð, eins og kvæðin Snjór (bls. 19), Fossar (bls. 22) og síðast, en ekki sízt Hefnd Hallgerðar (bls. 26), sem löngum hefur orðið íslenzkum ljóðsmiðum eitt hið handhægasta yrkisefni og skýtur hér enn upp kollinum í sínu hefðbundnasta formi. En þótt þegar af þeirri ástæðu sé ekki mikils skáldskapar að vænta af slíku kvæði, verður það engu síður að teljast allt of mikil nægjusemi, að ætlazt til verulegrar túlkunar á dramatískri hæð efnisins í annarri eins setningu og þessari: ,,Hallgerður gaf ei hár á bogann“ Og það bætir lítið úr skák, þó höfundurinn lýsi hárinu sem ,,fögrum lokk, sem löðrung (sic!) brenndur lék um svanabjartan háls“. Slík vinnubrögð stinga mjög í stúf við það, sem annarsstaðar er bezt gert í þessari ljóðabók. Því enda þótt ég hafi drepið á sumt það, sem ég tel miður fara í ljóðum Guðfinnu Jónsdóttur, og síður vikið að hinu, sem með engu minni rétti má telja henni til gildis, þá hef ég samt valið þá aðferð beinlínis vegna þeirra mögu- leika, sem mér finnst að kvæði hennar búi yfir. Og enda þótt tæplega verði sagt, að þau færi út svið íslenzkrar ljóðagerðar, eða fylli þar í verulegar eyður, og jafnvel þótt ekki verði séð af neinu einstöku kvæði í þessari bók, hversu höfundinum megi takast að gera sér skáldskap úr nýstárlegri viðfangsefnum, má hitt sín þó meir, að yfir flestum þeirra er ferskur andvari, mild neiðríkja, sem gefur þeim tæran og bjartan svip. — Frá hendi útgefandans er bókin einnig mjög vönduð og falleg. Það er yfir henni allri ein- hver kvenlegur þokki, sem fer vel ljóðum þess- arar ungu og gáfuðu skáldkonu. T. G. Meistari, sem þyrfti að endurfæðast EDDA ÞÓRBERGS ÞÓRÐARSONAR. — Bókaútgáfa Heimskringlu — Reykja- vík 1941. 254 bls. Verð: ób. kr. 19,00, ib. kr. 24,00. Bók þessi er heitin eftir Eddu Snorra Sturlu- sonar og virðist raunar til hennar stofnað af höfundarins hálfu sem einskonar hátíðarits á sjö hundruð ára afmaelis þessa ,,koll-leka“( !) hans. Er óþarft að fara mörgum orðum um þann smáborgaralega skort á andlegri háttprýði, sem lýsir sér í nafni bókarinnar, en aftur á móti verð- ur ekki hjá því komizt, að víta Jóhannes frá Kötl- um fyrir það að hafa, af skömmum sínum, flekað höfundinn til að taka það upp, eins og ráða má af inngangsorðum bókarinnar. — Er þetta heildarútgáfa af ljóðum Þórbergs, óprent- uðum og áður prentuðum, og má ætla að hér sé til tínt flest eða allt, sem eftir höfundinn ligg- ur í rímuðu máli; að minnsta kosti er ekkert i bókinni, sem bendir til þess, að um úrval sé að ræða. Kvæðin eru til orðin á árunum 1909 til 1941, og gefst því hinum mörgu lesendum Þórbergs þess kostur hér, að fylgjast með hon-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.