Helgafell - 01.03.1942, Qupperneq 62

Helgafell - 01.03.1942, Qupperneq 62
48 HELGAFELL rithöfundar treysta því, að þvílíkir aðdrættir vitn- ist ekki, jafnvel áður en þeir hafa þeirra fullar nytjar. Ahrifa frá fyrri meisturum höfundar, þeim H. K. L. og síðar Guðm. Hagalín, eftir að Sturla i Vogum hlaut opinbera viðurkenningu núver- andi atvinnumálaráðherra og fleiri mætra manna, gætir enn á stangli í stíl Guðm. Dan., en sýnilega er hann að reyna að losa sig við þau. Annars er Guðmundur Daníelsson efnilegur og geðþekkur höfundur á marga lund. Hann er hugkvæmur og hressilegur og ávallt mjög læsi- legur, ekki sízt af því, að frásagnargleði hans sjálfs kemur lesandanum ósjálfrátt í gott og frjótt skap. I næstsíðustu bók sinni, með hinu hvim- leiða nafni: Á bökfcum Bolafljóts, nálgast hann ágætan skáldskap á köflum, í lýsingum úr átt- högum sínum austan fjalls, einkum á blæbrigð- um náttúrunnar eftir árstíðum og veðurfari. En smekkvísi hans er hvergi nærri örugg, og sjálf- stæði hans gagnvart öðrum höfundum og ,,bók- mennta“kröfum reipdráttarmanna líðandi stund- ar hefur verið nokkuð valt á fótum til þessa. Afköst hans hafa líka verið meiri en svo, að rétt sé að ætla að hann hafi nokkru sinni náð þeim árangri, er ýtrasta vandvirkni og sjálfsagi kynnu að hafa orkað, og er þetta sagt honum og öðrum, sem óskilið mál eiga, til ásökunar, en ekki til afsökunar. En fái skáldlegir hæfileikar Guðm. Daníels- sonar að njóta sín fyrir dugnaði hans, má vænta mikils af honum, einnig í þessari framhaldssögu, þrátt fyrir veilur í fyrsta hluta hennar. Um hitt ber honum framar að hlýða guði en mönnum, hvort hann kýs að þjóna list sinni í fylkingar- brjósti eða fílabeinsturni, en reyndar má list Guð- mundar Daníelssonar fágast eigi all-lítið, ef hann á að sóma sér vel á síðarnefnda staðnum. M. Á. Þórir Bergsson: VEGIR OG VEG- LEYSUR. Isafoldarprentsmiðja h. f. 1941. — 174 bls. Uppseld. Höfundurinn er löngu þjóðkunnur fyrir smá- sögur sínar, sem sumar eru meðal þess, sem bezt hefur verið gert í þeirri grein hér á landi, en þetta er fyrsta skáldsagan, sem eftir hann birtist, og má hún þó öllu heldur teljast löng smásaga. Efni hennar er ekki risavaxið fremur en búast má við af þeirri tegund skáldskapar, og varla getur það heldur talizt til nýjunga, hvorki í bókmenntum eða daglega lífinu, að ungur maður fari í sumarfrí, verði ástfanginn og trúlofi sig. En um þetta fjallar sagan og þó að- eins að uppistöðunni til. Jafnvel hásumardýrðin, sem annars er yfir umhverfi og frásögn sögunn- ur, býr yfir hryllilegu myrkri, sem á það til að kasta skuggum sínum í dramatískri óhugnan inn yfir hið bjarta leiksvið. Það er í þessum at- riðum, sem höfundurinn nýtur sín bezt og sagan verður lesandanum minnisstæðust. En öll er frá- sögnin með beztu einkennum þessa höfundar, hreinlegum stíl og vönduðu málfari. Þórir Bergs- son hefur með þessari bók bætt við sig mörg- um nýjum lesendum og nú mun þeim öllum forvitni á að vita, hvenær vænta megi fyrstu stóru skáldsögunnar frá hans hendi. T. G. Verðlaunasamkeppni Helgafell hefur ákveðið að efna til samkeppni um tvenn verðlaun fyrir beztu og næst beztu smásögur, er tímaritinu kunna að berast fyrir 20. júní n. k., enda séu ein eða fleiri af sögunum þeim kostum búnar, að verðlaun komi til greina. Sögurnar séu um efni úr íslenzku nútímalífi. Stærð þeirra má ekki fara fram úr 12 síðum í Skírnisbroti. Handrit séu vélrituð og auðkennd, og fylgi nafn höfundar í lokuðu umslagi, er beri sama einkenni. Þriggja manna dómnefnd fjallar um sögurnar, og eiga sæti í henni Þórir Bergsson rithöfundur og ritstjórar Helgafells. Fyrir beztu verðlaunahæfa sögu verða greiddar sjö hundruð hrónur, en fyrir næst beztu þrjú hundruð og fimmtíu þrónur. Sérstök ritlaun verða ekki greidd fyrir þær sögur, er verðlaun hljóta. Tímaritið áskilur sér rétt til að birta þær sögur aðrar, sem það telur við sitt hæfi, og verða höfundum þeirra goldin venjuleg ritlaun.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.