Helgafell - 01.10.1953, Blaðsíða 9
PÁLL fSÓLFSSON
7
sem síðan hafa ráðið mestu um þá stefnu, sem þróun tónlistarmálanna
hefur tekið, Báðar þessar stofnanir, Tónlistarskólinn og Ríkisútvarpið, hafa
notið starfskrafta, þekkingar og framsýni Páls ísólfssonar í ríkum mæli.
Hann hefur verið skólastjón Tónlistarskólans frá upphafi, vakað yfir vexti
hans og viðgangi og stýrt honum fram hjá boðum og blindskerjum.
Var sú sigling þó ekki alltaf vandalaus, einkum fyr á árum, meðan skiln-
ingur á nauðsyn slíkrar stofnunar var óljós og ekki almennur.
A sama hátt hefur Páll mótað tónlistarstarfsemi Ríkisútvarpsins frá
byrjun, bæði sem fulltrúi í hinu fyrsta útvarpsráði og tónlistarstjóri alla
tíð að undanteknu einu ári. Hór eins og annars staðar hefur Páll sett
markið hátt og hvergi hvikað, þótt misjöfnum skilmngi hafi verið að
mæta. En Páll hefur ætíð haft hina beztu samvinnu við yfirmenn sína
i stofnumnm, útvarpsráð og útvarpsstjóra, og notið fulltingis þeirra í
uppbyggingarstarfi sínu. Er þess skemmst að minnast, að henn hefur á
þessu ári unmð að því ásamt núverandi útvarpsstjóra að útvarpið tæki á
sinar herðar rekstur Sinfóníuhljómsveitannnar og tryggði þannig fram-
tið hennar með tilstyrk ríkis og bæjar. — Páll hefur að sjálfsögðu lagt
a það fyllsta kapp að gera hlut hinnar ,,æðri“ tónlistar sem mestan og
beztan í útvarpinu. En ekki hefur hann verið einstrengingslegur í þessu,
eins og starf hans fyrir ,,Þjóðkórinn“ sýnir bezt. Hafa þeir þættir átt
að fagna meiri vinsældum meðal hlustenda en flestir eða allir aðrir liðir
1 tónlistarflutningi útvarpsins, og mun það ekki sízt stafa af þeim per-
sonulega svip, sem söngstjórinn hefur sett á kóræfingarnar.
Ef telja skyldi öll störf Páls ísólfssonar í þágu tónhstarinnar, yrði
þar seint endir á. I sambandi við störf sín í kirkjunum gaf hann út
salmasöngsbók í samvinnu við Sigfús Einarsson. Hann hefur auk ann-
arra tónleika sinna, haldið marga kirkjutónleika, þar sem aðgangur hefur
verið ókeypis og kynnt mörg hin ágætustu kirkjutónverk. Hann hefur
verið formaður orgamstafólagsins frá stofnun þess og stóð af þess hálfu
fytir móti norrænna kirkjutónlistarmanna í Reykjavík 1952. Var það
fyrsta norræna tónlistarmótið, sem hór hefur verið haldið, og þjóðinni til
hefur hann stjórnað flutningi kórverka bæði á vegum
og með Dómkirkjukórum og komið fram sem hljóm-
rmkils sóma. Þá
Tonlistarfólagsins
sveitarstjóri innan lands og utan. Tónlistargagnrýnandi Morgunblaðsins
kefur hann verið mörg undanfarin ár. Loks var hann um skeið stjórnandi
Lúðrasveitar Reykjavíkur, og mun þá enn ýmislegt ótalið. 1 samtökum
listarnanna hefur Páll verið góð ur hðsmaður, haft forystu meðal annars
um stofnun Fólags íslenzkra tónlistarmanna á sinni tíð og verið formað-