Helgafell - 01.10.1953, Síða 102
100
HELGAFELL
standendu-rn' sinfóníuhljómsveitarinn-
ar, að lesmáli um fimmtungur af hinu
saman lögðu.
Hlé varð á ófögnuSinum sumar.Tián-
uSina, meðan þeir dr. Urbancic og
þjóðleikhússtjóri héldu sig utan bæjar,
annar að minnsta kosti lengst af utan-
lands. En svo mátti heita, að það
skipti engum togum að ballið byrjaði
aftur um leið og doktorinn steig á land.
Ný blaðaviðtöl, yfirlýsingar og árásar-
greinar en til áherzlu sviðsettur upp-
sagnar-skrípaleikur í tónlistardeild
musteris íslenzkrar tungu. Tveir aðal-
mennirnir, dr. Urbancic og Sig. Skag-
field, sögðu upp við ÞjóSleikhúsiS.
HafSi annar þeirra í hótunum að
hverfa af landi burt, af því að honum
mislíkaði við menntamálaráðherra út
af gildistöku laga.
Allur þessi samblástur var svo aug-
ljóslega runninn undan rifjum þjóð-
leikhússtjóra og skrif öll í samráði viS
hann, að flestum er nú ljóst orðið,
hverjir það voru, sem æstu til ófriðar.
Frá fulltrúum tónlistarmanna hefur
sem sé til þessa ekki heyrzt eitt orð
um þessi mál.
1 síðasta pistli sínum tókst þjóSleik-
hússtjóra að slá sitt fyrra met í mikil-
mennskubrjálæSi. Bæjarbúar munu
vafalaust hafa rekið upp stór augu og
brosað vorkunnsamlega, er þeir lásu
þessi orð hans í blaði fyrrv. mennta-
málaráðherra:
,,Afskipti mín af tónlistarmálum
hafa veriS þau, að ég, sem þjóðleik-
hússtjóri, hef valið og látið flytja óper-
urnar „Brúðkaup Figarós“ eftir Moz-
art, ,,Rigolettó“ eftir G. Verdi, ,,La
Traviata.. eftir Verdi og óperettuna
,,LeSurblökuna“ eftir Strauss og valið
til þess að flytja þessa söngleiki þá
beztu söngkrafta, íslenzka og erlenda,
er völ hefur verið á. Þá hef ég valið
leikstjóra og hljómsveitarstjóra til þess
að stjórna þessum verkum, gengizt fyr-
ir stofnun leikhússhljómsveitar og ó-
perukórs.“
,,Eg einn“ sagði ógæfusamur kon-
ungur á hrynjandi valdastóli. GuS-
laugur Rósinkrans hefur valiS ,,BrúS-
kaup Figarós“ fyrir sænsku óperuna,
valiÖ Dobrowen og Kurt Bendix fyrir
Joel Berglund, því nefndi maðurinn
ekki líka ,,Osterbottningana“, eða
hefur hann skömm á Finnum ? Nei,
GuSlaugur Rósinkrans hefur enga ó-
peru valið, alþjóð veit, að hann veit
ekkert um óperur, að hann hefur bók-
staflega enga þekkingu á hljómsveit-
arstjórn eða leikstjórn, að hann veit
yfirleitt ekki neitt um list.
,,Ég einn“ er fullkomin skýring á
vanmáttarkenndum tilraunum GuS-
laugs Rósinkranz, með yfirlýsingum í
tíma og ótíma, til aS tileinka sér ein-
ræðisvald yfir stofnun, sem honum er
algerlega ofviða að stjórna. Slíkum
manni er ekki hollt að reyna aS telja
fólki trú um, að það sé í raun og veru
hann einn, sem í krafti stöðu sinnar
taki allar ákvarðanir en allir aðrir að-
eins málamynda-ráðunautax.
Fold og sjórinn tóku dans —
BruSl og vitleysa hefur öðru íremur
einkennt alltof margar sjónleikasýn-
ingar Þjóðleikhússins. ÞaS er eins og
einu gildi, hvort leiksviðið er á öræf-
um Islands, í baðstofu eða í Arden-
skógi, ,,flott“ skal það vera. En út-
koman hefur því miður verið átakan-
lega hugmyndasnauður flottræfilsskap-
ur. Seinast og líklega til þess að þókn-
ast þeim, sem vitið hafa í fótunum,
fengum við að sjá björg og steina