Kjarninn - 31.07.2014, Síða 29
óðinn jónsson tekur við Morgunútvarpinu
Óðinn Jónsson, fyrrverandi fréttastjóri RÚV, fær nýtt
hlutverk í haust þegar hann tekur við Morgunútvarpi
Rásar 2 ásamt Hrafnhildi Halldórsdóttur. Bergsteinn
Sigurðsson, sem stýrt hefur Morgunútvarpinu, færir
sig þá yfir í Síðdegisútvarpið og Guðrún Gunnarsdóttir
flyst yfir á Rás 1. Óðinn var fréttastjóri RÚV frá árinu
2005, eða þar til að Rakel Þorbergsdóttir var ráðin í
starfið um miðjan apríl síðastliðinn. Hann hafði þá
komist að samkomulagi við Magnús Geir Þórðarson
útvarpsstjóra um áframhaldandi störf fyrir RÚV og
sótti ekki um endurráðningu.
kaup lífeyrissjóða útskýra miklar skattgreiðslur
Það vakti athygli að skattakóngur Íslands árið 2013
væri hin tiltölulega óþekkti Jón Árni Ágústsson, með
tæpar 412 milljónir króna í skatta. Það sem útskýrir
þetta mikla fjárflæmi hjá Jóni er sala hans á stórum
hlut í Invent Farma. Kaupandinn var Framtakssjóður
Íslands (FSÍ) og kaupverðið er talið hafa verið um
tíu milljarðar króna, samkvæmt vb.is. Kaupin vöktu
athygli enda á hlutverk FSÍ, sem er í eigu lífeyrissjóða
og ríkisbankans, að vera að móta endurreisn íslensks
atvinnulífs. Invent Farma starfar einungis á Spáni þótt
eigendurnir sem seldu séu að mestu Íslendingar.
af nEtinu
Samfélagið segir
XPIU«WW'9XPD²O¸JUHJOXVWMµULQQKDù
hætt vegna þrýstings frá Hönnu Birnu
kjarninn 31. júlí 2014
facebook twitter
kristinn Haukur guðnason
Það er ótrúlegt að Hanna Birna sé ekki búin að
segja af sér. Ísland getur vart talist réttarríki
lengur.
Þriðjudagurinn 29. júlí 2014
sólveig adaMsdóttir
Og enn situr Hanna Birna !!!
Ef þessi frétt er rétt þá er þetta skandall fyrir
Ísland, reyndar ekki sá fyrsti, því miður.
Sá sem valdið hefur til að setja hana af getur ekki annað
lengur en tekið til starfa.
Þriðjudagurinn 29. júlí 2014
ástþór MagnÚsson
Skiptir engu máli hversvegna hann skipti um
starf við þurfum ekki ráðherra sem er sífellt
með allt niðrumsig
Þriðjudagurinn 29.júlí 2014
Bjarkey olsen @Bjarkey Olsen
http://www.dv.is/frettir/2014/7/29/haettir-
vegna-radherrans/ 7O]PHMX®QM,·RRY&MVRY
vera kominn - eða búinn?
Þriðjudagurinn 29. júlí 2014
Halldor Halldorsson @DNADORI
Ofmat að Stefán hafi hætt útaf Hönnu Birnu,
en djöfull er það pottþétt að hún hafi verið með
læti útaf rannsókninni.
Þriðjudagurinn 29. júlí 2014
þóra tóMasdóttir @thoratomas
@logreglustjori beitti Hanna Birna þig
þrýstingi vegna lekamálsins? Reyndi hún að
hafa afskipti af rannsókninni? Kallaði hún þig
á teppið?
Þriðjudagurinn 29. júlí 2014
01/01 Samfélagið SEgiR