Kjarninn - 31.07.2014, Page 38
01/01 SpES
01/01 spes kjarninn 31. júlí 2014
SpES Starfsmanni PETA meinað að fá sér einkanúmer með yfirlýsingu um ást á tófú.
Einkanúmerið ilvtOfu
þótti of klámfengið
y
firvöld Tennessee-ríkis í
Bandaríkjunum höfnuðu á
dögunum beiðni starfsmanns
PETA, sem eru bandarísk
samtök sem berjast fyrir
réttindum og velferð dýra, um einka-
númerið ILVTOFU, þar sem það þótti of
klámfengið.
Dýraverndunarsinninn Whitney Clark
hugðist sýna ást sína á tófú í verki með
því að setja einkanúmerið á bifreiðina
sína. Yfirvöld í Tennessee höfnuðu beiðni
hennar með þeim rökum að hægt væri að
túlka einkanúmerið á klámfenginn hátt.
Samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs hafa
fleiri starfsmenn PETA óskað eftir sama
einkanúmerinu í öðrum ríkjum Banda-
ríkjanna, án árangurs.
„Það eina sem ég vildi gera var að
dreifa vegan-boðskapnum með númera-
plötunni minni,“ er haft eftir Clark í
erlendum fjölmiðlum. „Það virtist rökrétt
að breyta númeraplötunni í eitthvað sem
ég trúi á.“
Á samfélagsmiðlum lagði fólk til að
Clark myndi breyta skilaboðunum yfir í
TOFULVR, en Clark ákvað engu að síður
að sækja bara um venjulega númeraplötu.