Morgunblaðið - 04.08.2012, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 04.08.2012, Blaðsíða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2012 Tímans traðir verða æ óraunveru- legri eftir því sem frá líður, ég er farinn að fatta, mér til mikillar skelfingar að fyrir nálega kvartöld var ég að kaupa plötur úti í búð, þá nýjar. Getur það verið að það séu tuttugu og fjögur ár síðan ég rölti mér fjórtán ára gömlum út í Fálk- ann á Laugavegi og keypti mér tólf- tommu með Morrissey? Það er víst svo. Og í ár eru liðnir þrír áratugir síðan Howe Gelb standsetti sveit sína Giant Sand í Tucson, Arizona. Þrjátíu ár. Maður var farinn að trúa því að svona tölur væru bara frá- teknar fyrir Rolling Stones en ólík- legustu sveitir eru nú farnar að raka inn árunum. En Giant Sand hvað? Athugum þetta aðeins betur. Ameríka Téður Howe Gelb er fæddur í Pennsylvaníu en flutti til hinnar sól- bökuðu Arizona á áttunda áratugn- það kallar óneitanlega fram í hug- ann tvö önnur verk af svipuðum meiði, Southern Rock Opera eftir Drive-By Truckers og svo hina frá- bæru Thirteen Cities eftir Rich- mond Fontaine sem var reyndar unnin í samstarfi við nokkra með- limi úr Calexico og Giant Sand. Giant Giant Sand er skringilega skipuð sveit (var við öðru að búast er Gelb á í hlut?) en Brian Lopez, Gabriel Sullivan og Jon Villa eru allir með mexíkóskt blóð í æðum á meðan restin af bandinu er skipuð sex Dönum frá Árósum! Þess má geta að lokum að hið ágæta Fire Records hefur verið að endur- útgefa plötur Giant Sand að und- anförnu, alls sextán stykki og næst á dagskrá eru sólóplötur Gelbs. Ormarnir ógurlegu Stærð Howe Gelb stýrir nú risavaxinni útgáfu af sveit sinni Giant Sand. um og settist að í Tucson. Árið 1980 kom út plata með hljómsveitinni Giant Sandworms, skírð í höfuðið á skepnunum ógurlegu sem koma fyrir í vísindaskáldsögu Franks Herberts frá 1965 (síðar kvikmynd eftir David Lynch, 1984). Gelb átti síðar eftir að stytta nafnið í Giant Sand og sem slík gaf hún út plötuna Valley of Rain árið 1985. Eftir það hefur efnið flætt frá Gelb en hann fer með alræðisvald í sveitinni sem tekur á sig þær myndir sem passa best við listrænan innblástur Gelbs hverju sinni. Og úr hverju er sá blástur samsettur? Jú, Ameríka og alþýðlegar tónlistarstefnur hennar eru þarna undir; þjóðlagatónlist, blús, kántrí og jafnvel alþýðu- tónlistin sunnan landamæranna. Krafturinn kom svo frá neðanjarð- arrokki og pönki og var sveitinni í upphafi slengt í flokk með sýru- legnum þjóðlagarokkssveitum frá Kaliforníu, oftast kenndar við Pais- ley Underground stefnuna (Green on Red, Dream Syndicate, Rain Pa- rade og líka andlega skyldar sveitir eins og Thin White Rope). Gelb hef- ur þó reynst hafa nokkuð einstaka sýn á það hvernig gera á hlutina og t.a.m. er gæðasveitin Calexico runnin undan rifjum Giant Sand. Sveitin hafði þá mikil áhrif á jað- arkántrísenuna sem sprakk út upp úr 2000 og þá hefur Gelb og verið duglegur við að hræra í hin og þessi hliðarverkefni, nefni t.a.m. hina kántrílegnu The Band of Blacky Ranchette og hið nett súra Arizona Amp and Alternator. Sólóplöturnar eru þá nærfellt tuttugu! Risavaxin En snúningurinn sem hann hefur tekið í þetta sinnið er athygl- isverður og nafnið á verkefninu lýs- ir sumpart innihaldinu. Hér er sem- sagt komin risavaxin útgáfa af Giant Sand og platan, Tucson, kons- eptverk og einslags óður til bæj- arins sem Gelb hefur gert út frá í öll þessi ár. „Country rock opera“ kalla Gelb og hans menn þetta og »En snúningurinnsem hann hefur tekið í þetta sinnið er athygl- isverður og nafnið á verkefninu lýsir sum- part innihaldinu. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is  Nýjasta plata Giant Sand er eignuð Giant Giant Sand  Howe Gelb hefur rekið þessa merku sveit í þrjá áratugi Sýningin Að heiman verður opnuð í dag kl. 16 í Bergstaðastræti 4. Þar verða sýnd verk listamannanna Seung Hyun Woo, Karls Ómars- sonar og Hye Joung, frá Bretlandi, Íslandi og Suður-Kóreu. Sýningin stendur til 19. ágúst en hefur áður verið sett upp í Suður-Kóreu og Lundúnum. Listamennirnir eiga þessa þrjá staði sameiginlega og því mætti líta á þá sem tengipunkt verkanna. Hye Joung Park lærði við Listaháskóla Íslands og Slade í London en býr nú í Seúl, Karl lauk einnig námi frá LHÍ og University of the Arts í London en starfar nú í Seúl og Seung Hyun Woo er frá Suður- Kóreu, hefur dvalið á vinnustofum á Íslandi en starfar í London. „Segja má að listamennirnir kanni á eigin skinni hvaða þýðingu það hefur að tilheyra stað og finna stað tilheyra sér,“ segir Karl. Listsýning tengir þrjár þjóðir Höfuðskraut Einn gesta á sýning- unni í Lundúnum með verk á höfði. THE DARK KNIGHT RISES Sýnd kl. 3:50 - 7 - 10:20 (Power) Sýndkl.4-7-10:20(Power) KILLER JOE Sýnd kl. 8 - 10:20 Sýnd kl. 8 - 10:20 INTOUCHABLES Sýnd kl. 3:50 - 6 - 8 - 10:20 Sýnd kl. 4 - 6 - 8 - 10:20 ÍSÖLD 4 Ísl tal 3D Sýnd kl. 2 - 4 - 6 Sýnd kl. 2 ÍSÖLD 4 Ísl tal 2D Sýnd kl. 2 Sýnd kl. 2 MADAGASCAR 3 Ísl tal 3D Sýnd kl. 2 Sýnd kl. 2 BRAVE Ísl tal 3D Sýnd kl. 4 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar LAUGARDAGUR SUNNUDAGUR OG MÁNUDAGUR KOLSVÖRT SPENNUMYND FRÁ LEIKSTJÓRA THE EXORCIST OG THE FRENCH CONNECTION 40.000 MANNS! ÍSL TEXTI HHHH -FBL HHHH -MBL FORSÝNING -bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is ÍSL TAL Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGAR MERKTAR MEÐ RAUÐU POWE RSÝN ING KL. 10 :20 TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á 40.000 MANNS! BREYTTU ÖRLÖGUM ÞÍNUM! SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS KILLER JOE KL. 6 - 8 - 10.10 16 ÍSÖLD 3D KL. 2 (TILB.) - 4 - 6 / 2D 2 (TILB.) - 4 L TED KL. 10.10 12 INTOUCHABLES KL. 8 12 BRAVE FORSÝNING KL. 3.30 (ATH: SUN. & MÁN.) L DARK KNIGHT RISES KL. 1 (TILBOÐ) - 4.30 - 5.30 - 8 - 9 - 11.30 10 DARK KNIGHT RISES LÚXUS KL. 1 - 4.30 - 8 - 11.30 ÍSÖLD 4 3D ÍSL.TAL KL. 1 (TILBOÐ) - 3.20 - 5.40 L ÍSÖLD 4 2D ÍSL.TAL KL. 1 (TILB.) - 3.20 (LAU) 3.50 (SUN) TED KL. 8 - 10.20 12 SPIDER-MAN 3D KL. 1 (TILB.) - 5 (LAU) - 8 - 10.50 KILLER JOE KL. 8 - 10.20 16 ÍSÖLD 4 3D ÍSL.TAL KL.3 (TILBOÐ) - 5.50 L SPIDER-MAN 3D KL. 3 (TILBOÐ) - 6 - 9 10 INTOUCHABLES KL. 3(TILB) -3.30 -5.30 -6.30 -8 - 9 - 10.30 12

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.