Morgunblaðið - 04.08.2012, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2012
✝ Guðjón BirkirKristjánsson
fæddist í Bolung-
arvík 3. ágúst
1925. Hann lést á
hjúkrunarheimili
Sólvangi í Hafn-
arfirði 23. júlí
2012.
Foreldrar Guð-
jóns voru Kristján
Hálfdánarson, f. í
Hvítanesi, Ögurhr.
,N-Ís. 29. október 1893 d. 14.
október 1933 og Ingibjörg
Kristín Guðjónsdóttir, f. á
Kirkjubóli, Valþjólfsdal, V-Ís.
25. júní 1893, d. desember 1942.
Guðjón átti sex systkini:
Þýskalandi. Börn Guðjóns og
Kristínar eru: Andrés Einar
Guðjónsson, f. 23. mars 1965,
maki Þórhildur Tómasdóttir, f.
1974. Dætur þeirra eru Christa
Björg, f. 19. október 2006 og
óskírð, f. 24. júlí 2012. Fyrri
eiginkona Andrésar er Elfa
Björg Jónsdóttir, f. 1967. Synir
þeirra eru Guðjón Kristinn, f.
25. febrúar 1985, Einar Daði, f.
1. febrúar 1995 og Axel Bóas, f.
10. janúar 1998. Ingi Tómas
Guðjónsson, f. 22. desember
1967, fyrrverandi sambýliskona
Aðalheiður Hauksdóttir, f.
1968. Börn hans af fyrri sam-
búð eru Páll, f. 19. apríl 1999
og Guðjón, f. 20. september
2002.
Barnabarnabarn Guðjóns og
Kristínar er Elvar Björn Guð-
jónsson, sonur Guðjóns Kristins
Andrésonar.
Útför hefur farið fram í
kyrrþey.
Kristján Friðgeir
Kristjánsson, f.
1918, d. 1999, Daði
Steinn Krist-
jánsson, f. 1920, d.
1982, Einar Hálf-
dán Kristjánsson, f.
1921, d. 1992, Jón-
atan Kristjánsson,
f. 1922, Sigurlína
Kristjánsdóttir, f.
1927 og Jóhanna
Erna Kristjáns-
dóttir, f. 1929, d. 2004.
Hinn 1. júní 1957 giftist Guð-
jón eftirlifandi eiginkonu sinni,
Kristínu Vilhjálmsdóttur, hét
áður Christa Seebürger, fædd
29. maí 1935 í Cuxhaven,
Nú þegar ég kveð þig, pabbi,
er það ekki bara með sorg
heldur einnig gleði yfir því að
hafa haft þig í öll þessi ár. Þið
mamma ásamt Jóhönnu systur
þinni og Ellert mági þínum
reistuð hús hlið við hlið í Móa-
barði 28b og 30b í Hafnarfirði.
Þar ólst ég upp innan um
frænda og frænkur. Eins man
ég hvað þú fórst oft að heim-
sækja Einar bróður þinn að
Flókagötu en það var oftast
eftir sundferðir í Sundhöllina
með okkur Andrési bróður,
enda bjó Einar um 200 m frá
sundlauginni.
Sjórinn átti alltaf hug þinn
enda varstu alinn upp við sjó-
inn í Bolungarvík, misstir for-
eldra þína ungur og fórst ungur
á sjó til að sjá fyrir þér. Þú
sigldir á bátum, síðutogurum
og fraktskipum og síðast eign-
aðist þú trillu, fyrst með bróður
þínum Einari og síðar með mér
eina sem við smíðuðum saman
frá grunni. Þú varst góður sjó-
maður enda kom aldrei neitt
fyrir þig þegar þú varst á sjó.
Þú hafðir gott útsýni yfir hafið
að heiman og spáðir mikið í
veðrið, hvort yrði sjófært eða
ekki. Yfirleitt var það eld-
snemma á morgnana sem við
fórum á sjó saman frá Hafn-
arfirði, annaðhvort á grásleppu,
línu eða handfæri og vorum við
þá komnir aftur í höfn um há-
degi.
Ég hef ekki bara misst góð-
an og yndislegan pabba heldur
einnig trúnaðarvin sem alltaf
var hægt að tala við. Þú studdir
mig með góðum ráðum.
Bless, pabbi.
Ingi Tómas Guðjónsson.
Elsku pabbi, nú er þínu
verkefni hér meðal okkar lokið,
þú kvaddir svo skyndilega. Erf-
itt er að meðtaka að svo sé.
Mér er minnisstætt hvað
pabbi hafði gaman að hafinu og
hvað honum þótti gott að anda
að sér sjávarloftinu. Hann hóf
sjómennsku ungur að árum og
einnig löngu síðar þegar hann
eignaðist trillu með bróður sín-
um, trillan var seld síðar. Hafið
togaði í og pabbi smíðaði sér
trillu ásamt Inga syni sínum.
Stundum fór ég með pabba á
sjóinn, þar lærði ég margt sem
viðkemur veiðiskap og sjó-
mannsstörfum. Pabbi horfði oft
til hafs frá heimili sínu að Móa-
barði og spáði í hvernig viðraði
til sjós. Pabbi starfaði í ál-
verinu í Straumsvík og reri út á
trillum bæði sér til gamans og
einnig var það hans aukavinna.
Þegar pabbi fór á eftirlaun þá
blundaði enn í honum að fara á
sjó, félagar hans sem hann
hafði kynnst í trilluútgerð sinni
áttu sumir enn trillu og hann
fékk að fara með þeim og það
gaf honum mikið. Það blunduðu
ávallt í honum sjómannsstörf
og allt sem að þeim sneri.
Þegar ég hóf búskap og hafði
ekki mikið fé milli handanna þá
var hann ávallt reiðubúinn að
lána mér, þegar ég ætlaði að
borga til baka þá sagði hann oft
að ég þyrfti eingöngu að greiða
sér að hluta til, pabbi lét mig
ósjaldan fá eins mikið af ýsu
eins og ég vildi. Þannig var
hann pabbi ávallt reiðubúinn að
hjálpa til og mátti ekkert aumt
sjá. Pabbi kenndi mér að ávallt
ætti maður að greiða skuldir
sínar, hann var þannig gerður
að það væri forgangur að
skulda helst ekki neitt og neita
sér frekar um munað en að
taka lán. Elsku pabbi, þú
kenndir mér einnig að betra er
að eiga fyrir því sem maður
ætlar að kaupa sér.
Pabbi var ávallt vinnusamur,
ósérhlífinn og var ótrúlega elju-
samur. Mér er minnistætt þeg-
ar hann var kominn á eftirlaun,
hvað hann hafði gaman af því
að labba í Kænuna og hitta fé-
laga sína. Einnig hvað hann
hafði gaman af fuglunum sem
voru í garðinum á Móabarði,
gaf þeim oft korn og annað að
éta. Hann fylgdist vel með
háttum þeirra í garðinum og
sagði oft við mig að honum
þætti gaman að sjá þá togast á
við ánamaðkana í grasflötinni.
Honum þótti einnig vænt um
krumma og henti ýmsu góðgæti
til hans á bílskúrsþakið. Hann
hafði yndi af að púsla og gat
setið við það tímunum saman,
gleymdi stundum að borða og
horfa á fréttirnar í sjónvarpinu
sem hann mátti yfirleitt ekki
missa af.
Pabbi hafði verið veikur síð-
ustu árin, og þegar heilsunni
fór að hraka ört þá dvaldi hann
í góðu yfirlæti á Sólvangi í
Hafnarfirði. Viljum við þakka
starfsfólki þar innilega fyrir
góða umönnun. Einnig er virð-
ingarvert hvað bróðir hans,
Jónatan, var duglegur að koma
til pabba og spjalla við hann
um gamla tíma og annað; vilj-
um við þakka honum það.
Pabbi hafði ávallt gaman af
hundum og núna síðustu árin
ljómaði hann allur þegar ná-
granninn kom með hundinn
sinn í heimsókn.
Elsku pabbi, þín er sárt
saknað, þakka þér fyrir öll árin
sem við höfum átt saman.
Hinsta kveðja.
Þinn sonur,
Andrés Einar Guðjónsson
og fjölskylda.
Guðjón B.
Kristjánsson
✝ Sigríður Krist-ín Bjarnadótt-
ir, kennari og
deildarstjóri við
Brekkuskóla á Ak-
ureyri fæddist 13.
febrúar 1957. Hún
lést 22. júlí 2012 á
Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri.
Foreldrar henn-
ar eru Bjarni
Gestsson og Ester
Kristjánsdóttir. Sigga Stína
giftist Stefáni Sig-
urðssyni í ágúst
1975. Börn þeirra
eru Ester og Sig-
urður og barna-
börnin Nanna
Björk og Ída Ösp.
Systkini hennar:
Freyja, Elín, Sól-
veig og Gestur
Valdimar.
Útför Sigríðar
Kristínar fór fram
í kyrrþey.
Það var sumarið 1972. Við
Sigga vorum 15 ára, höfðum verið
bekkjarsystur frá sjö ára aldri og
vorum nú orðnar miklar vinkon-
ur. Í minningunni var alltaf sól-
skin og gleði þetta sumar og ekki
vantaði uppátækin. Við, ásamt
þriðju vinkonunni, Evu, fengum
að standsetja að innan lítinn sum-
arbústað, Voga, í eigu fjölskyldu
minnar, eftir síendurtekin
skemmdarverk. Allur frítími
okkar fór í Voga. Það var hannað,
skrapað í hverja panel-rauf, mál-
að, húsgögn lökkuð, gardínur og
púðar saumaðir. Það var mikil
þolinmæði í Siggu að hafa okkur
Evu syngjandi og gaulandi allan
daginn við vinnuna en hún var
alltaf jafn yfirveguð við sína
vinnu. Þar kom vel í ljós vand-
virkni hennar og verklagni sem
kom mér ekki á óvart, enda hafði
hún alltaf verið best í bekknum í
handavinnu. Vogar hafa síðan
verið yndislegt athvarf stórfjöl-
skyldu minnar og varla hefur
þurft að lagfæra húsið að innan í
40 ár – svo vel var unnið.
Við tókum líka tvö gömul hjól
og gerðum úr þeim langt tveggja
manna hjól, lökkuðum það rautt
og þutum um bæinn á „Rauðu
hættunni“. Næstu árin var allt
málað sem við náðum í, herbergið
hennar gert svart og mitt dökk-
brúnt, við litla hrifningu foreldr-
anna. Í gömlu bréfi úr sveitinni
sagðist hún vera að mála útihús-
in, þá 16 ára. Henni var vel
treystandi til þess.
Þegar kom að landsprófsárinu
átti að raða í bekki eftir stafrófs-
röð. Þá myndum við ekki lenda í
sama bekk. Hún fann ráð við því.
Hún bað skólastjórann að nota
nafnið Kristín við uppröðunina.
Hann varð við þeirri ósk. Þannig
lentum við saman í 3.B.
Snemma í menntaskóla hitti
hún stóru ástina í lífinu, „hann
Stefán minn“. Hún þroskaðist
fljótt, 18 ára var hún komin með
mann og litla dóttur. Hún sinnti
náminu vel. Við vorum áfram í
sama bekk til stúdentsprófs en
hittumst nú sjaldnar utan skól-
ans. Síðan skildi leiðir vegna
framhaldsnáms.
Leiðir okkar lágu aftur saman
þegar ég flutti heim um síðustu
aldamót eftir langa dvöl í Svíþjóð.
Við settumst að í Grænumýri,
gömlu götunni hennar Siggu.
Foreldrar hennar bjuggu enn í
nr. 17 og Sigga og Stebbi bjuggu
nú í smekklega uppgerðu húsi á
móti okkur, gömlu KEA-búðinni.
Mikið var notalegt að setjast
þarna að. Þegar skóli barnanna
byrjaði minnti dóttir mín mig á
hve dýrmætt það er að eiga ræt-
ur einhvers staðar. Sigga var ein
af þessum rótum, gömul vinkona
mömmu sem var líka frábær
stærðfræðikennari í skólanum
þeirra, Brekkuskóla, og bjó á
móti okkur. Þetta veitti henni
mikið öryggi í nýjum skóla. Í Sví-
þjóð höfðu börnin mín aldrei upp-
lifað að einhver þekkti mömmu
og pabba frá fyrri tíð, hvað þá afa
og ömmu.
Árin í Grænumýri hafa liðið
hratt. Við Sigga höfum sést næst-
um daglega, vinkað hvor í aðra og
átt margar góðar spjallstundir.
Ekki grunaði mig að hún myndi
kveðja okkur svona fljótt, þótt
hún hafi haft illkynja sjúkdóm í
nokkur ár. Það var þó ekki hann
sem varð henni að falli, heldur
heilablæðing.
Við Siggi, Sólveig, Albert,
Kristín, Axel og Fríða kveðjum
Siggu með söknuði og þakklæti
og sendum fjölskyldunni allri
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Hildur Gísladóttir.
Sigríður Kristín
Bjarnadóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar end-
urgjaldslaust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar
eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um
innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á
Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja
viðeigandi lið.
Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi
þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birt-
ing dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan
skilafrests.
Lengd | Hámarkslengd minningargreina er 3.000
slög. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum.
Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu kveðju, 5-15
línur.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem að-
standendur senda inn. Þar kemur fram hvar og hve-
nær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær
hann lést og loks hvaðan og hvenær útförin fer
fram.
MinningargreinarSendum
frítt
hvert á land sem
er
Helluhrauni 12 • Hafnarfjörður • 544 5100 • www.granithusid.is
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug og heiðruðu
minningu okkar ástkæru móður, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
ELÍNAR ÞORSTEINSDÓTTUR
frá Skógum,
sem lést miðvikudaginn 11. júlí.
Þórunn Þórhallsdóttir, Vilhjálmur Þór Pálsson,
Iða Brá Þórhallsdóttir, Hrafn Antonsson,
Margrét Þórhallsdóttir, Pálmar Örn Þórisson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir til hinna fjölmörgu sem
auðsýndu okkur samúð vegna fráfalls okkar
ástkæra
SIGFÚSAR AUSTFJÖRÐ
HALLDÓRUSONAR
og heiðruðu minningu hans á margvíslegan
hátt.
Stuðningur ykkar og vinsemd eru ómetanleg.
Halldóra Þ. Halldórsdóttir, Baldur F. Sigfússon,
Örn Baldursson, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir,
Anna Helga E. Baldursdóttir, Kári Sigurðsson.
✝
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför
INGU MARÍU PÁLSDÓTTUR,
Stúllu,
Lækjarhvammi 5,
Búðardal.
Hilmar Óskarsson,
Auður Ásdís Jónsdóttir, Guðmundur Hreiðarsson,
Unnur Ásta Hilmarsdóttir, Ásgeir Salberg Jónsson,
Anna Lísa Hilmarsdóttir, Brynjar Bergsson,
Óskar Páll Hilmarsson, Sunneva Ósk Ayari,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
GUÐJÓNS ÞORKELS HÁKONARSONAR,
Kristnibraut 49,
Reykjavík,
sem lést sunnudaginn 15. júlí.
Sérstakar þakkir til starfsfólks krabbameinsdeilda 11E og 11B
á Landspítala.
Helga Ívarsdóttir,
Ívar Guðjónsson, Urður Njarðvík,
Sævar Guðjónsson, Guðrún Jónsdóttir,
Guðný Svandís Guðjónsdóttir, Halldór Guðfinnsson,
Viðar Guðjónsson, Ástríður Viðarsdóttir
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýndan hlýhug og
samúð vegna andláts og útfarar elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
KRISTBJARGAR HRÓLFSDÓTTUR,
Þjórsártúni.
Guð blessi ykkur öll.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Valgerður Ölvisdóttir, Gunnar Snorrason,
Lilja Ölvisdóttir, Emil Kristófersson,
Kristjana Ingibjörg Ölvisdóttir, Jón Ármann Sigurðsson,
Karl Ölvisson, Jóhanna Hilmarsdóttir,
Guðrún Gyða Ölvisdóttir, Guðmundur Unnar Agnarsson,
Hrólfur Ölvisson, Irma Sjöfn Óskarsdóttir.