Morgunblaðið - 04.08.2012, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 04.08.2012, Blaðsíða 14
VIÐTAL Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is „Sælgæti, sígarettur, og vindlar,“ hrópuðu sölustrákar á Melavellinum gamla um miðja síðustu öld. Einn af þeim sem gengu þar um með vörur var Gunnar Snorrason, kaupmaður og síðar formaður Kaupmanna- samtakanna, sem þá var á ferming- araldri að stíga sín fyrstu spor í verslun, en samhliða sölustörfunum á knattspyrnuvellinum vann Gunnar í búð á Njálsgötu. Í kjölfarið byrjaði Gunnar, fimm- tán ára gamall, að vinna í Teigabúð- inni í Laugarneshverfinu hjá Jó- hanni Jónssyni kaupmanni. Fjórum árum síðar keypti hann verslunina og var þá orðinn að verslunareig- anda, aðeins nítján ára gamall, sem þótti ungur aldur. „Ég keypti hana þess vegna í félagi með Stefáni Run- ólfssyni, formanni Ungmennafélags Reykjavíkur, en ég æfði frjáls- íþróttir á þeim árum. Tveimur árum síðar mátti ég eiga hana einn og keypti hana því. Ég rak síðan búðina til ársins 1960.“ Úr Teigunum lá leið Gunnars í Vogana þar sem hann keypti búðina Vogaver ásamt meðeiganda sínum Árna Kjartanssyni, en Valdimar Gíslason átti húsnæðið með þeim. Gunnar og Árni ráku síðan versl- unina þar fram til ársins 1975 þegar Gunnar færði sig um set upp í Breið- holt, sem þá var verið að byggja upp. Efldi verslun í efra-Breiðholti Gunnar fékk úthlutaða lóð í Hóla- hverfi í Breiðholtinu árið 1973, þar sem hann lét reisa stórmarkaðinn Hólagarð sem var opnaður 8. júní 1975. Hverfið var þá að slíta barns- skónum. Gunnar segir að ekki hafi allir verið sáttir við það að hann fékk úthlutaða lóð og fór Þjóðviljinn mjög geyst gegn henni. „Þetta varð að pólitísku moldviðri,“ segir Gunnar, en viðskiptavinirnir tóku versluninni opnum örmum þrátt fyrir það. Fjölskylda Gunnars tók slaginn með honum í Hólagarði, en öll fjögur börn hans og Jónu Valdimarsdóttur eiginkonu hans, unnu á einum tíma eða öðrum í versluninni. Elst er Anna Lilja, en hún er í dag hjúkr- unarfræðingur og doktor í stjórnun og starfar sem ráðuneytisstjóri í vel- ferðarráðuneytinu. Næstur er Sig- urður, sem á í dag Kjötsmiðjuna, en hann varð hægri hönd Gunnars í Hólagarði. Brynja Björk er hjúkr- unarfræðingur og deildarstjóri á Landspítalanum, eins og yngsta barn Gunnars og Jónu, Ásta. Gunn- ar og Jóna eiga nú 12 barnabörn og 3 barnabarnabörn. „Án fjölskyld- unnar hefði mér varla tekist þetta, því að þetta var ekki létt verk að reisa verslun frá grunni í nýju hverfi og vera á sama tíma formaður Kaupmannasamtakanna,“ segir Gunnar, en hann tók við formennsku í þeim árið 1973, sama ár og honum var úthlutað lóðinni. Gunnar og Hólagarður settu mark sitt á verslun í Breiðholtinu næstu fimmtán árin, eða til ársins 1990. Gunnar leigði svo kjörbúðina út til Hagkaupa þangað til hann seldi alla fasteignina árið 1998. Líkt og fyrr sagði varð Gunnar formaður kaupmannasamtakanna 1973 og gegndi hann því embætti næstu tíu árin, til 1983. „Á þessum árum voru samtökin virk og mjög áberandi í fjölmiðlum, þar sem mörg baráttumál kaup- manna voru tekin upp. Verðlags- málin voru stærst þar, en einnig þurfti að sinna ýmsum öðrum mál- um, skattamálum, tollamálum, samningamálum og barátta til þess að losna við ýmiskonar höft.“ Á þessum tíma voru höft á verð- lagi, og hið opinbera ákvað verðlag á flestum vörum. Þessu vildu kaup- menn breyta. „Í þeirri baráttu vís- uðum við gjarnan í fleyg orð Jóns Sigurðssonar forseta, „Verslunin er undirrót velmegunar lands og lýðs þegar hún er frjáls,“ segir Gunnar, en hann vill ekki eigna sér einum þann árangur að höftin voru afnum- in um 1983. Mjólkurmálið kostaði baráttu Þá er enn ótalið mjólkurmálið. Mjólk var þá ekki seld í almennum verslunum, heldur í sérstökum mjólkurbúðum í eigu Mjólkursam- sölunnar. Gunnar segir að það hafi kostað mikla baráttu að breyta því en sérstök nefnd innan Kaupmanna- samtakanna vann að því máli. „Þá var ekki spáð góðu ef kaup- mennirnir færu að selja mjólkina. Það voru skrifaðar greinar um það í blöðin að heilbrigðiseftirlitið þyrfti að vera vakandi yfir sölu mjólkur í almennum verslunum. En ætli ein- hver myndi vilja hverfa til baka til þessa tíma?“ Gunnar heldur áfram í vinnu þrátt fyrir að vera kominn á níræðisald- urinn, en hann hjálpar syni sínum á skrifstofu Kjötsmiðjunnar. „Þegar menn hafa verið í „action“ alla ævi þá er betra að hafa eitthvað til að starfa við meðan heilsan leyf- ir.“ Hann sinnir einnig félagslífinu. „Við hittumst enn nokkrir af gömlu kaupmönnunum mánaðarlega í kaffi og köllum okkur þá lávarðadeild- ina.“ Verslunarmaður frá fermingu  Gunnar Snorrason, fyrrverandi formaður Kaupmannasamtaka Íslands, varð áttræður í byrjun júlí  Reisti Hólagarð og rak í fimmtán ár  Barðist fyrir frjálsu verðlagi og mjólk í almennar verslanir Morgunblaðið/RAX Verslun, mál og vog Gunnar Snorrason, fyrrverandi formaður Kaupmannasamtaka Íslands, á skrifstofu sinni í Kjötsmiðjunni. Ljósmynd/Kaupmannasamtök Íslands Opnun Hólagarðs í júní 1975 Frá vinstri: Gunnar og Jóna, Sigurður sonur þeirra, Gyða Björnsdóttir, Einar Ólafsson og Anna Lilja dóttir þeirra. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2012 „Kaupmönnum á horninu hefur farið fækkandi. Það er miður, því þetta voru nokkurs konar fé- lagsmiðstöðvar á sínum tíma,“ segir Gunnar og bætir við að sótt hafi verið að hverfabúð- unum úr ýmsum áttum. „Í fram- haldi af þeim komu sjálfs- afgreiðsluverslanir og þar á eftir stórmarkaðir, sem er ákveðin þróun,“ segir Gunnar. „Það er sjónarsviptir að kaup- manninum á horninu og hverfa- búðunum og það mætti vera meira í bland við stærri versl- anir, því það komast ekki allir sem vilja í stórmarkaðina. Hverfabúðir eru reyndar að koma aftur núna, sem er jákvæð þróun.“ Gunnar segir að annars staðar á Norðurlöndunum sé verslun blandaðri en hér og fólk tali þar gjarnan um kaupmann- inn sinn. Það hafi raunar verið svipað á fyrri tíð á Íslandi. „Maður kynntist fjölskyldunum vel. Persónuleg samskipti voru meiri í þá daga.“ Hefur farið fækkandi HVERFABÚÐIR Laus íbúð í Eirhömrum, öryggisíbúðum Eirar í mosfellsbæ Í Eirhömrum eru 53 öryggisíbúðir, þar sem veitt er heima- og hjúkrunarþjónusta Í Eirhömrum er matsalur og félagsmiðstöð Öryggisvakt er allan sólahringinn 30 manna hjúkrunarheimili er í byggingu sem tengt verður öryggisíbúðunum Upplýsingar veittar hjá Eir hjúkrunarheimili í síma 522-5700 á skrifstofutíma • • • • • Eirhamrar - Öryggisíbúð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.