Morgunblaðið - 04.08.2012, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 04.08.2012, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2012 Alda Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur - Hér er góð rækt og góður andi! E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra f í s k h ö n n u n Hörð átök geisuðu í Sýrlandi í gær þegar allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti ályktun þar sem hernaður sýrlensku stjórnar- innar er fordæmdur og öryggisráð SÞ er gagnrýnt fyrir að ná ekki sam- komulagi um aðgerðir til að binda enda á blóðsúthellingarnar. Ályktunin var samþykkt með 133 atkvæðum gegn tólf og 31 ríki sat hjá. Markmiðið með ályktuninni er að knýja öryggisráðið til að ná sam- komulagi um aðgerðir gegn ein- ræðisstjórninni í Sýrlandi. Ályktun- in er ekki lagalega bindandi. Daginn áður hafði Kofi Annan, fyrrverandi framkvæmdastjóri SÞ, tilkynnt að hann hygðist segja af sér sem sérlegur sendimaður samtak- anna og Arababandalagsins til að koma á friði í Sýrlandi. Fréttaskýr- endur sögðu þetta augljósa viður- kenningu á því að friðaráætlun Sam- einuðu þjóðanna og pólitískar friðarumleitanir hefðu mistekist. Önnur ríki óbeinir þátttakendur í stríðinu Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri SÞ, sagði að átökin í Sýrlandi væru orðin að borgarastríði með óbeinni þátttöku annarra ríkja sem sæju stríðandi fylkingum fyrir vopnum. Annan gagnrýndi deilurnar innan öryggisráðsins sem hann sagði hafa hindrað sameiginlegar aðgerðir til að binda enda á blóðsúthellingarnar. Hann spáði þó því að Bashar al-- Assad Sýrlandsforseti léti af völdum „fyrr eða síðar“. Financial Times birti grein eftir Annan þar sem hann skoraði á stjórnvöld í Bandaríkjunum og Rússlandi að taka höndum saman til að bjarga Sýrlandi frá allsherjar- borgarastríði með tilheyrandi hörm- ungum fyrir íbúana. „Enn er hægt að bjarga Sýrlandi frá verstu hörm- ungunum,“ skrifaði hann. „En það krefst hugrekkis og styrkrar for- ystu, einkum af hálfu þeirra sem eiga fastafulltrúa í öryggisráðinu, meðal annars forsetanna Vladímírs Pútíns og Baracks Obama.“ Afsögn Annans leiddi til nýrrar hrinu ásakana. Bandaríkjastjórn sagði að Kínverjar og Rússar hefðu hindrað að friðarumleitanirnar bæru árangur með því að beita neitunar- valdi gegn þremur ályktunartillög- um í öryggisráðinu um refsiaðgerðir gegn stjórninni í Sýrlandi. Þýsk stjórnvöld sögðu einnig að andstaða Rússa og Kínverja við refsiaðgerðir hefði stuðlað að afsögn Annans. Sendiherra Rússlands hjá Sam- einuðu þjóðunum, Vítalí Tsjúrkín, sagði hins vegar að rússnesk stjórn- völd hefðu veitt Annan „mjög öflug- an stuðning“. Kínverska stjórnin kvaðst harma afsögn Annans og vilja að Sameinuðu þjóðirnar gegndu mikilvægu hlutverki í því að binda enda á átökin í Sýrlandi. Hersveitir einræðisstjórnarinnar beittu skriðdrekum í hörðum árás- um í suðurhluta höfuðborgarinnar Damaskus í gær og hörðum sprengjuárásum var haldið áfram í fjölmennustu borginni, Aleppo. Upp- reisnarmenn sögðust hafa náð helm- ingi Aleppo á sitt vald. bogi@mbl.is Reynt að knýja öryggisráð SÞ til að grípa til aðgerða  Allsherjarþing SÞ samþykkti ályktun þar sem öryggisráðið er gagnrýnt Árangurslausar friðarumleitanir 23. febrúar 2012 Kofi Annan skipaður sendimaður SÞ og Araba- bandalagsins til að koma á friði í Sýrlandi 21. mars Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun til að styrkja friðaráætlun Annans Helstu atburðir í tengslum við friðarumleitanir Sameinuðu þjóðanna frá því að Kofi Annan var skipaður sendimaður og þar til hann tilkynnti afsögn sína í fyrradag 16. júní Vopnahléseftirliti Sameinuðu þjóðanna hætt vegna harðnandi átaka 14. og 21 apríl Öryggisráðið samþykkir ályktanir sem heimila vopnahléseftirlit á vegum SÞ Rússar og Kínverjar féllust á eftirlitið eftir að hafa beitt neitunarvaldi gegn tveimur öðrum ályktunartillögum 19. júlí Kínverjar og Rússar beita neitunarvaldi gegn drögum að ályktun þar sem hótað er refsiaðgerðum gegn stjórn Sýrlands ef hún stöðvar ekki árásir öryggissveita 20. júlí Öryggisráðið samþykkir einróma að heimila eftirlit á vegum SÞ í 30 daga til viðbótar 25. júlí Aðalhernaðarráðgjafi SÞ, Babacar Gaye hershöfðingi, kemur til Damaskus og stjórnar eftirlitinu í stað Roberts Moods undirhershöfðingja 2. ágúst Annan segist ætla að láta af störfum sem sendimaður og kveðst ekki hafa fengið nægan stuðning frá öryggisráðinu Sýrlenskur piltur leikur sér á skriðdreka norðan við Aleppo, fjölmennustu borg Sýrlands Sænsk stjórnvöld sögðu í gær að stjórn Alexand- ers Lúk- ashenkós, for- seta Hvíta-- Rússlands, hefði vísað sendiherra Svíþjóðar í Minsk úr landi vegna starfa hans í þágu mannrétt- inda. Svíar ætla ekki að viðurkenna sendiherra sem stjórn Lúkashenkós skipaði nýlega í Stokkhólmi. Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, lýsti brottvísun sænska sendiherrans sem alvarlegu broti á reglum í samskiptum ríkja. „Ásak- anirnar á hendur sendiherranum eru algerlega tilhæfulausar,“ sagði hann. „Það er ekkert leyndarmál að Svíþjóð styður eindregið lýðræði og mannréttindi í Hvíta-Rússlandi og sendiherrann, Stefan Eriksson, starfaði í samræmi við þá stefnu sænsku stjórnarinnar.“ Alexander Lúkashenkó HVÍTA-RÚSSLAND Sendiherra Svía vísað úr landi vegna mannréttindadeilu Börn í hefðbundnum nepölskum búningum taka þátt í skrúðgöngu í tilefni af Gai Jatra-kúahátíðinni í Katmandú í gær. Fjölskyldur sem hafa misst ættingja fara í gönguna með kú, þar sem kýr eru álitnar vera heilög dýr og geta hjálpað sálum lát- inna að öðlast framhaldslíf. Kýr til hjálpar sálunum AFP Tónlistarkennari í Skotlandi var tekinn á beinið hjá aganefnd kenn- arasambandsins þar í landi eftir að hann hafði ítrekað logið til um ótrú- legustu hluti til þess að þurfa ekki að mæta í vinnuna. Kennarinn sagði yfirmönnum sínum meðal annars að hann hefði drepið stúlku í alvarlegu bílslysi, hann væri mið- ur sín vegna þess og gæti því ekki verið í vinnunni. Þetta reyndist hreinasta lygi, sett fram í þeim til- gangi að hann þyrfti ekki að mæta til vinnu. Í annað skipti sagðist hann vera tepptur á Íslandi vegna öskunnar frá Eyjafjallajökli, en við nánari eftirgrennslan kom í ljós að hann var í besta yfirlæti á heimili sínu í Glasgow. Að auki hefur hann hagað sér dólgslega á Facebook og kallað samkennara sína „tíkur“. Húðlatur kennari tekinn á beinið Lögreglan á frönsku Rivíerunni leitar nú úraþjófa sem leikið hafa lausum hala á svæðinu undanfarið og haft mikla fjármuni upp úr krafsinu. Á meðal þeirra sem lent hafa í þjófunum er rússneskur milljónamæringur sem tapaði úri að verðmæti 81 milljón króna. Þjófunum hefur tekist að stela úrum fólks, að verðmæti rúmri milljón evra eða um 150 milljónum króna. Verklag þjófanna virðist þaulskipulagt. Felst það í því að leita að einstaklingum með vegleg úr á hendi og elta þá að bílum þeirra. Þegar bílarnir aka af stað fer þjófur á bifhjóli upp að þeim og slær í hliðarspegil viðkomandi. Þegar ökumaðurinn teygir út hönd- ina til að laga spegilinn kemur ann- ar þjófur á bifhjóli og nær úrinu af handlegg hans. Talið er að sama gengi hafi stað- ið á bak við svipaða ránshrinu á sama svæði á árunum 2007 og 2009. FRAKKLAND Slóttugra úraþjófa leitað á Rívíerunni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.