Morgunblaðið - 04.08.2012, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 4. Á G Ú S T 2 0 1 2
Stofnað 1913 181. tölublað 100. árgangur
GAMAN AÐ TAKA
ÞÁTT Í FRAMFÖR-
UM ANNARRA
ÓLYMPÍULEIKAR
Í MÁLI OG
MYNDUM
ÆFIR SKYLM-
INGAR FYRIR
THE BORGIAS
SUNNUDAGSMOGGINN LEIKUR LEIGUMORÐINGJA 37SYNGJANDI SKÓLI 10
Á toppnum Árni Hjörvar Árnason
bassaleikari The Vaccines.
„Við byrjum ekki á túr og hættum
á túr. Við erum alltaf á túr,“ segir
bassaleikarinn Árni Hjörvar Árna-
son í viðtali við Sunnudagsmogg-
ann. Íslendingar geta verið stoltir
af afrekum bassaleikarans en
hljómsveit hans, The Vaccines, var
kjörin fjórða vinsælasta hljómsveit
Bretlands á síðasta ári og lög
þeirra klífa hvern vinsældalistann á
fætur öðrum.
Árni Hjörvar ræðir um rokk-
stjörnulífernið, tónleikaferðalag
með Red Hot Chili Peppers, að-
dáun föður síns á Botnleðju og
ástæðu þess að hann gat ekki verið
með hljómsveitinni á tvennum tón-
leikum í sumar. Hann hefur líflega
sögu að segja eftir tæplega tveggja
ára tónleikaferðalag.
Á toppi
breskra vin-
sældalista
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samningur Karl Steingrímsson og
hollenski fjárfestirinn Klaas Hol.
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Hollenskur fjárfestir, Klaas Hol, hef-
ur keypt tólf íbúðir af 24 í Tryggva-
götu 18 af Karli Steingrímssyni.
Hann keypti sex íbúðir í maí og
gengið verður frá kaupum á sex til
viðbótar í dag. Karl segir að nú sé
einungis eftir að selja fimm íbúðir í
húsinu. Fyrir skömmu hafi Norð-
menn, sem fóru fjárfestingaleið
Seðlabankans, keypt tvær og Íslend-
ingar hafi einnig keypt íbúðir í
blokkinni.
„Þetta er Svarta perla Reykjavík-
ur,“ segir Hol, sem á fasteignafélag í
Hollandi, í samtali við Morgun-
blaðið. Aðspurður hvað hann hygg-
ist gera við íbúðirnar tólf segist Hol
álíta þær skynsamlega fjárfestingu
en hann sé ekki búinn að ákveða
næstu skref. Hann útilokar ekki að
fjárfesta hér enn frekar, en tíminn
verði að leiða það í ljós. Þeir vilja
ekki gefa upp kaupverðið en hjá
fasteignasölunni Mikluborg er
tveggja herbergja íbúð í húsinu, 113
fermetra, auglýst á 85 milljónir kr.
Hol fjárfesti í íbúðunum því hann
átti íslenskar krónur sem voru fast-
ar hér á landi vegna gjaldeyrishaft-
anna. Árið 2008 nýtti hann sér hve
háir vextir voru á Íslandi, keypti ís-
lenskar krónur og lagði inn á banka-
reikning. Hann var í viðskiptum við
Kaupþing í Brussel. Í kjölfar banka-
hrunsins læstust krónurnar hans
inni í bankanum í sjö mánuði. Þegar
hann fékk aftur aðgang að þeim
blasti við nýtt vandamál: Gjaldeyr-
ishöft. Hol flaug því til Íslands til að
kanna aðstæður, segist hafa séð já-
kvæð teikn á lofti og hófst handa við
að leita að flottum byggingum til að
fjárfesta í.
Kaupir tólf lúxusíbúðir
Hollenskur fjárfestir keypti í „Svörtu perlu Reykjavíkur“ við Tryggvagötu
MHollendingur keypti »20
Margir höfuðborgarbúar voru á leið út á land í gærkvöldi en
myndin var tekin á Suðurlandsvegi. Þegar rætt var við Ólaf
Gíslason, lögregluvarðstjóra á Krókhálsi, um níuleytið sagði
óvenjusnemma af stað til að lenda ekki í langri bílalest með
tilheyrandi töfum. Einnig hefði góð veðurspá sennilega ýtt
undir ferðahuginn, fólk vildi lengja helgina.
hann allt hafa gengið vel og var ekki kunnugt um nein um-
ferðaróhöpp. Veruleg umferð hefði verið þegar á fimmtudag
og giskaði Ólafur á að margir hefðu að þessu sinni lagt
Lögðu óvenjusnemma af stað til að forðast bílalestir
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Veiðin í helstu
laxveiðiám lands-
ins gengur mis-
vel. Rangárnar
eru langefstar
þetta árið.
Þekktar veiðiár
eru aðeins svipur
hjá sjón. Komnir
eru 715 laxar á
land í Norðurá en voru 1.775 á
sama tíma í fyrra og 1.652 árið
2010. Sömu sögu er að segja af
Blöndu sem hefur skilað 707 löxum
en skilaði 1.569 árið 2011 og 2.453
árið 2010.
Í Þverá/Kjarrá voru komnir 559
laxar 1. ágúst en í fyrra 1.272 og ár-
ið þar áður 2.641 á sama tíma. »16
Þekktar ár eru að-
eins svipur hjá sjón
Flugrekendur hér á landi hafa mikl-
ar áhyggjur af áhrifum af auknum
álögum ríkisins á flugreksturinn.
Árni Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Flugfélags Íslands, segir að sú
hækkun sem varð í apríl sl. hafi klár-
lega dregið úr fjölda farþega í innan-
landsflugi.
„Þetta eru ýmsir samverkandi
þættir en eingöngu vegna gjalda-
hækkana þá hefur verðlag þurft að
hækka um 7-10%. Við það bætist
hátt eldsneytisverð og margt fleira.
Innanlandsflugið
er mjög viðkvæmt
fyrir verðbreyt-
ingum. Ég hef
mestar áhyggjur
af að þessi þróun
virðist ætla að
halda áfram,“ seg-
ir Árni og bendir
á að í nýrri sam-
gönguáætlun sé
gert ráð fyrir 150 milljóna króna
auknum álögum á innanlandsflugið,
til viðbótar við það sem nú þegar hafi
verið gert. Fyrir Flugfélag Íslands
gæti kostnaður vegna gjalda hins op-
inbera farið úr 450 milljónum kr. á
þessu ári í 600 milljónir árið 2013.
Yrði það þreföldun gjalda á nærri
fjórum árum.
Árni segir ýmsan stjórnsýslu- og
umsýslukostnað hafa bæst við og
þetta geti haft mikil áhrif, ekki síst á
minni flugrekendur. Auknum álög-
um sé velt út í verðlagið og farþegum
fækki. bjb@mbl.is »4
Farþegum fækkar eftir aukin
gjöld í innanlandsfluginu
Árni
Gunnarsson
Álögur á flugrekendur hafa þrefaldast á nærri fjórum árum