Morgunblaðið - 04.08.2012, Blaðsíða 20
VIÐTAL
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Hollenskur fjárfestir, Klaas Hol,
hefur keypt tólf íbúðir af 24 í
Tryggvagötu 18 af Karli Steingríms-
syni. Hann keypti sex íbúðir í maí og
sex í dag. „Þetta er Svarta perla
Reykjavíkur,“ segir Hol. Karl segir
að nú eigi einungis eftir að selja
fimm íbúðir í húsinu. Fyrir skömmu
hafi Norðmenn, sem fóru fjárfest-
ingaleið Seðlabankans, keypt tvær
og Íslendingar hafi einnig keypt
íbúðir í húsinu. Hol útilokar ekki að
fjárfesta hér enn frekar, en tíminn
verði að leiða það í ljós.
Þeir vilja ekki gefa upp kaupverð-
ið en hjá fasteignasölunni Mikluborg
er tveggja herbergja íbúð í húsinu,
113 fermetra, auglýst á 85 milljónir
króna.
Íbúðirnar í húsinu eru 70-200 fer-
metrar að stærð, auk 330 fermetra
íbúðar á efstu hæð. Aðspurður hvað
hann hyggist gera við íbúðirnar tólf
segist Hol álíta þær skynsamlega
fjárfestingu en sé ekki búinn að
ákveða næstu skref. Í Hollandi á
hann fasteignafélag. „Ég fjárfesti í
fasteignum og á þær til langs tíma.
Yfirleitt tími ég ekki að selja þær,“
segir hann.
Hol fjárfesti í íbúðunum því hann
átti íslenskar krónur sem voru fast-
ar hér á landi. Árið 2008 nýtti hann
sér hve háir vextir voru á Íslandi,
líkt og margir aðrir erlendir fjár-
festar, og keypti íslenskar krónur og
lagði inn á bankareikning. „Hér voru
mjög háir vextir og mér þótti þetta
skynsamlegt. Ég keypti mjög mikið
af krónum. Tveimur vikum fyrir
bankahrun færði ég t.d. krónur fyrir
eina milljón evra á reikninginn en
við bankahrunið læstust peningarnir
mínir inni í Kaupþingi í Brussel. Ég
tapaði háum fjárhæðum við geng-
ishrun krónunnar. Sjö mánuðum
seinna voru peningarnir lausir. En
þá blasti við nýtt vandamál: Gjald-
eyrishöft. Ég flaug til Íslands og
kannaði aðstæður. Vegna Icesave-
deilunnar sögðu margir að ég ætti
að láta það eiga sig að fjárfesta á Ís-
landi en ég sá mörg jákvæð teikn á
lofti í efnahagslífinu og fór að leita
að flottum byggingum til að fjár-
festa í. Það er nefnilega sá angi við-
skiptalífsins sem ég kann best á.
Þegar ég kom auga á Tryggvagötu
18 hugsaði ég með mér: Sá sem
byggði þetta hús er listamaður! Ég
kolféll fyrir gæðum byggingarinnar
og natninni sem lögð var í smáat-
riðin,“ segir Hol. Listamaðurinn er
Karl.
„Það sem mér finnst mikilvægast
að sjá er hve jákvætt fólkið er. Ég
finn fyrir kraftinum og unga fólkið
er sjálfsöruggt og tilbúið í að end-
urreisa efnahagslífið. Þegar ég kom
hingað fyrir fjórum árum var mikið
svartnætti yfir fólki en nú hafið þið
risið upp úr öskunni eins og fuglinn
Fönix.“
Karl segir að fasteignamarkaður-
inn hafi tekið vel við sér, mun betur
en annars staðar í Evrópu. Auk þess
sem mikill gangur sé í leigumark-
aðnum. „Ég er mjög ánægður með
að hafa selt Klaas íbúðirnar. Ég finn
fyrir mikilli eftirspurn eftir íbúðum í
húsinu eftir söluna og á fimmtudag-
inn seldum við tvær íbúðir til Norð-
manna. Fasteignamarkaðurinn í
Reykjavík er að taka við sér. Í mið-
bænum fer eftirspurn eftir góðum
eignum vaxandi,“ segir hann.
Framkvæmdir við húsið hófust
árið 2006. „Við fjölskyldan lögðum
mikið í húsið. Við lágum lengi yfir
þessu. Ester eiginkona mín t.d.
saumaði gardínur í heilt stigahús en
þau eru fjögur. Klaas sér þessa
natni sem við lögðum í það,“ segir
Karl. Aðspurður segir hann að fjár-
hagslega sé niðurstaða verkefnisins,
að reisa húsið, ásættanleg. „Við
sjáum fram á að fara vel frá þessu.
Við lögðum mikið í þetta á sínum
tíma og erum að endurheimta eitt-
hvað af því til baka. Þetta hefur tek-
ið tíma,“ segir hann.
Það munaði minnstu að af kaup-
unum yrði ekki – vegna deilna um
þvottavél og þurrkara. Vegna mis-
skilnings taldi Hol að tækin fylgdu
með í kaupunum og ætlaði að hætta
við þegar í ljós kom að svo var ekki.
Samið var um að Karl og Hol myndu
deila kostnaðnum við kaupin á heim-
ilistækjunum. „Hol er algjör nagli;
ákveðinn í samningum og hugar að
hverju smáatriði. Ég ber mikla virð-
ingu fyrir honum. Hann er mjög
duglegur og fór til dæmis sjálfur og
keypti þvottavélarnar og þurrkar-
ana. Hann byrjaði með tvær hendur
tómar, eins og ég,“ segir Karl.
Hollendingur keypti 12 lúxusíbúðir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Veglegt Það eru 24 íbúðir í húsinu. Þær eru 70-200 fermetrar að stærð, auk 330 fermetra íbúðar á efstu hæð.
„Þetta er Svarta perla Reykjavíkur“
Fastur með íslenskar krónur á Ís-
landi Norðmenn keyptu tvær íbúðir í
Tryggvagötu 18 á fimmtudaginn
Eigendur hússins, Karl Steingrímsson og Klaas Hol. Það munaði minnstu
að af kaupunum yrði ekki vegna deilna um þvottavél og þurrkara.
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2012
● 250% aukning varð á 3G-niðurhali
í júlí hjá fjarskiptafyrirtækinu Tali í
kjölfar þess að fyrirtækið lækkaði
verð á þjónustunni, samkvæmt
fréttatilkynningu frá Tali.
„Góð afkoma var af rekstri Tals
fyrstu sex mánuði ársins. EBIDTA-
hagnaður var 104 milljónir miðað við
27 milljónir á sama tíma á síðasta
ári. Hagnaður af rekstri hefur nærri
fjórfaldast miðað við fyrstu sex mán-
uði ársins 2011 og tekjur aukist um
7%.“
Hagnaður Tals fyrstu sex
mánuðina fjórfaldaðist
● Atvinnuleysi í Bandaríkjunum fór úr
8,2%í 8,3% í júlí samkvæmt nýjum töl-
um frá atvinnumálaráðuneyti Banda-
ríkjanna, en störfum hefur eftir sem áð-
ur fjölgað um 163 þúsund milli mánaða.
Eru þetta umskipti eftir að störfum
fækkaði þrjá mánuði í röð, en engu að
síður ekki nægjanlega mikil aukning til
að vinna gegn atvinnuleysinu. Störfum
fjölgaði mest í þjónustu, framleiðsluiðn-
aði og matar- og drykkjariðnaði. Frétta-
veita Dow Jones hafði spáð um 100
þúsund nýjum störfum.
163.000 ný störf
● Japanski bílaframleiðandinn
Toyota hagnaðist mikið á öðrum árs-
fjórðungi og er nú kominn aftur á
toppinn yfir selda bíla í ár, upp fyrir
General Motors og Volkswagen.
Heildarsala Toyota og dótturfélaga
þess, Lexus, Daihatsu og Hino, jókst
um 34% á fyrri hluta ársins miðað
við sama tíma í fyrra og seldust 4,97
milljónir bíla. Til samanburðar seldu
keppinautarnir General Motors 4,67
milljónir og Volkswagen 4,45 millj-
ónir. Hagnaður félagsins jókst gífur-
lega, en á öðrum ársfjórðungi fór
hann úr um 15 milljónum Bandaríkja-
dollara upp í 3,71 milljarð Bandaríkja-
dollara.
Toyota á toppinn á ný
STUTTAR FRÉTTIR
!"# $% " &'( )* '$*
+,-.,/
+/0.11
++2.22
+2./+3
+2.240
+0.0/+
+,,.00
+.4342
+/+.-/
+10.15
+,-.40
+/0.2
+,-.31
+2./0+
,-.-+5
+0./33
+,3.++
+.41-1
+/+.5,
+10./0
,-0.+-//
+,-./5
+//.35
+,-.52
+2.2,2
,-.-04
+0.//4
+,3.14
+.4112
+/,.+5
+1/.,/
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Viðskiptavinir Kjaran
eru lítil og stór
fyrirtæki, stofnanir og
prentsmiðjur sem eiga
það sameiginlegt að
gera kröfur um gæði
og góða þjónustu.
bizhub C35 er sannkallað fjölnotatæki
bizhub C35 er prentlausn sem hentar flestum fyritækjum.
Prentari, ljósritunarvél, faxtæki og skanni í einu nettu tæki sem
prentar 30 blaðsíður á mínútu, hvort sem er í svart-hvítu eða lit.
Kynntu þér rekstrarkostnaðinn því hann kemur á óvart. Þú þarft
ekki annað tæki en bizhub C35.
Verð: 379.900 kr.
Konica Minolta fjölnotatækin eru margverðlaunuð fyrir
hönnun, notagildi, umhverfisvernd og áreiðanleika.
Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is