Morgunblaðið - 04.08.2012, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2012
AFP
Í Afríku Clinton heilsar starfsmönnum bandaríska sendiráðsins í Dakar.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Ég mun tala um … sjálfbært sam-
starf sem skapar aukin verðmæti en
flytur þau ekki á brott. Það er skuld-
binding Bandaríkjanna við Afríku,“
sagði Hillary Clinton, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, í heimsókn
sinni til Dakar, höfuðborgar Sene-
gals, í vikunni en hún er í tíu daga
heimsókn í Afríku.
Kína fram úr Bandaríkjunum
Clinton nefndi ekki Kína er hún
vék að brottflutningi verðmæta en í
umfjöllun Washington Post um ræð-
una segir að augljóst sé að hún hafi
beint spjótum sínum að Kína.
Bent er á að þau tíðindi hafi orðið í
viðskiptasögu Afríku árið 2009 að
Kína hafi farið fram úr Bandaríkj-
unum sem helsta viðskiptaríki álf-
unnar. Þriðjungur olíuinnflutnings
Kína komi nú frá Afríku.
Washington Post segir Clinton
ekki hafa reynt að fegra nýlendu-
sögu vestrænna ríkja í Afríku.
„Þeir dagar að utanaðkomandi að-
ilar komi og flytji á brott auðæfi Afr-
íku í eigin þágu, og skilji þannig lítið
eða ekkert eftir, ættu að heyra lið-
inni tíð á tuttugustu og fyrstu öld-
inni,“ sagði Clinton og uppskar lófa-
tak í Cheikh Anta Diop-háskólanum
í senegölsku höfuðborginni.
Kínversku ríkisfjölmiðlarnir voru
ekki lengi að gagnrýna Clinton fyrir
þessi ummæli og sögðu hana ýmist
fáfróða um umsvif Kínverja í álfunni
eða horfa vísvitandi framhjá stað-
reyndum máli sínu til framdráttar.
Til dæmis sakaði Xinhua-frétta-
stofan Clinton um að reyna að reka
fleyg milli Afríku og Kína með sér-
plægni að leiðarljósi.
Mörg ríkja Afríku eiga mikið und-
ir góðum samskiptum við Kína og
má nefna að Kínastjórn hefur lofað
sem svarar 2.400 milljörðum króna í
lán til uppbyggingar á næstu árum.
Þegar Hu Jintao Kínaforseti skýrði
frá láninu sagði hann ríkjum Afríku
frjálst að fylgja eigin þróunarbraut.
Þótti hann með því láta lönd og leið
sjónarmið um að lánin ættu að vera
skilyrt því að lántökuríkin hefðu
mannréttindi í heiðri.
Átelur framgöngu Kínverja
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna reynir að afla bandamanna í Afríku
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Við fylgjumst grannt með miklum
áhuga Kínastjórnar á Íslandi. For-
sætisráðherra Kína kom í opinbera
heimsókn til Íslands í vor en lét
ógert að heimsækja Noreg af ástæð-
um sem eru vel kunnar. Það er
mikilvægt fyrir Íslendinga að halda
vel á spilunum og gleyma því ekki að
risaríki hafa alltaf hagsmuna að
gæta,“ segir Jan Magne Markussen,
stjórnandi óháðu rannsóknar-
stofnunarinnar Ocean Futures í
Ósló, og vísar til nóbelsdeilu Kína og
Noregs.
„Framkoma Kínastjórnar í garð
Norðmanna er ekki í þágu langtíma-
hagsmuna Kína enda eru Norðmenn
á meðal forysturíkja þegar rann-
sóknir og þekking á norðurslóðum
eru annars vegar.“
Spurður út í getu Kínverja til að
rannsaka norðurslóðir segir Mark-
ussen ljóst að þeir hafi úr hæfu fólki
að velja á hinum ýmsu sviðum.
Ýmislegt sé þó á huldu um fyrir-
ætlanir Kínverja í norðrinu.
Kínverjar skýri áform sín
„Við höfum óskað eftir fundi með
fulltrúum Kínastjórnar í tilefni af
ráðstefnu sem Ocean Futures og
hafnaryfirvöld í Narvik halda í apríl
á næsta ári, þar sem þeir skýri hvaða
áform Kínastjórn hafi í siglingum og
auðlindanýtingu á norðurslóðum,“
segir Markussen en stofnunin sem
hann veitir forstöðu sérhæfir sig í
málefnum heimshlutans.
„Kínastjórn er áhugasöm um að
nýta sér þau tækifæri sem myndu
skapast með opnun norðausturleið-
arinnar og horfir þá bæði til siglinga
og auðlinda. Óvissa er þó uppi um
hvort siglingin sé raunhæf og hvort
nýting auðlinda sé hagkvæm. Þá er
uppi óvissa um hin umhverfislegu
áhrif siglinga og auðlindanýtingar í
norðri. Tæknin til að nýta þessar
auðlindir er enn ekki nógu góð og
huga þarf að umhverfinu. Ef um-
hverfisslys yrði í heimshlutanum
kæmi það niður á Íslandi og Noregi.
Því verður að tryggja að hvers kyns
nýting sé örugg m.t.t. umhverfisins.
Kína er næsta risaríkið. Kína þarf
á hrávörum að halda til að viðhalda
hagvextinum. Margt er þó óvissu
háð. Hleypur spenna í samskipti
Kínverja og Rússa vegna
norðausturleiðarinnar? Ég er ekki
að segja að svo verði en þetta er eitt
af því sem er vert að skoða.“
Tryggja sér aðgang að olíu
Annar sérfræðingur í málefnum
norðurslóða er Oystein Tunsjo en
hann er dósent hjá norskri varnar-
málastofnun (IFS) sem er tengd há-
skóla á vegum norska hersins.
Tunsjo segir ýmsar blikur á lofti.
„Áhugi Kínverja á að tryggja sér
aðgang að olíu sem er síðan seld á
aðra markaði er hluti af strategískri
hugsun. Ef eitthvað yrði til að raska
olíuviðskiptum gætu Kínverjar siglt
með þessa olíu heim. Ef Bandaríkj-
unum og Kína lenti hins vegar sam-
an gæti bandaríski sjóherinn lokað
fyrir olíuflutninga sjóleiðina og þá
væri þessi baktrygging úr sögunni,“
segir Tunsjo um Kína og olíumálin.
Spurður hvort ekki sé viðbúið að
Kína muni fléttast æ meira inn í
utanríkismál annarra þjóða á kom-
andi árum, að því gefnu að ekki verði
bakslag í efnahagsmálum landsins,
svarar Tunsjo því til að „fyrirsjáan-
leg spenna í viðskiptum Bandaríkj-
anna og Kína geti leitt til einhvers
konar viðskiptastríðs“.
„Það mun bera meira á efnahags-
legri verndarstefnu og ágreiningur
gæti blossað upp á vettvangi
Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar.
Evrópusambandið og Bandaríkin
eru ekki í takt þegar efnahagsleg
samskipti við Kína eru annars vegar.
Það skortir á samhæfða stefnu í
Evrópu. Stóru ríkin í Evrópu, Bret-
land, Frakkland og Þýskaland, hafa
keppst við að semja við Kína á efna-
hagssviðinu. Þetta grefur undan
samhæfðri stefnu sambandsins
gagnvart Kína og gæti valdið spennu
í samskiptum Evrópu og Bandaríkj-
anna, ef til dæmis Frakkar og Þjóð-
verjar neita að styðja Bandaríkin og
kröfur þeirra um tollamúra gagn-
vart Kína. Á móti gætu Kínverjar
stillt ríkjum hverju upp á móti öðru.
Þessi þróun skiptir Íslendinga
máli því ef Ísland gengur í ESB mun
landið þurfa að taka upp stefnu sam-
bandsins á þessu sviði.“
Vilja vera vel undirbúnir
Tunsjo víkur að auðlindum.
„Kínverjar hafa eins og allar aðrar
þjóðir áhuga á að tryggja sér aðgang
að hrávörum. Þeir eru áhugasamir
um Grænland og vísindarannsóknir
og eru að koma sér fyrir til að verða
undir það búnir ef siglingaleiðir opn-
ast. Allt er þetta mikilli óvissu háð.
Áhuginn er dæmigerður fyrir
Kínastjórn. Kínversk ríkisfyrirtæki
eru út um allan heim að sækja í hrá-
vörur, olíu og gas. Kínversku
olíufyrirtækin leita tækifæra í lönd-
um eins og Súdan og Íran vegna
þess að vestrænir olíurisar á borð
við Shell og BP hafa tekið frá staðina
þar sem aðstæður til viðskipta eru
heppilegri.“
Íslendingar haldi vel á spilunum
Formaður norskrar rannsóknarstofnunar telur margt á huldu um áform Kínastjórnar í norðrinu
Sérfræðingur hjá rannsóknarsetri norska hersins spáir viðskiptadeilum milli Kína og Bandaríkjanna
AFP
Ísinn á Grænlandi Bráðnun íss á norðurslóðum og hugsanleg opnun norðausturleiðarinnar er nú mikið til umræðu. Kínastjórn horfir til auðlinda á svæðinu. Olía er talin leynast undir hafsbotni.
AFP
Bandarískt herskip Norski varnarmálasérfræðingurinn Oystein Tunsjo
telur bandaríska sjóherinn geta sett strik í olíustefnu Kínastjórnar.
Fáir sérfræðingar
» Spurður hversu mörgum
sérfræðingum Norðmenn hafi
úr að spila í málefnum Kína,
nánar tiltekið varnar- og
utanríkismálum, segir norski
varnarmálasérfræðingurinn
Oystein Tunsjo að sá hópur sé
ekki fjölmennur.
» T.d. séu mun fleiri sérfræð-
ingar í málefnum ESB í Noregi.
Skósalar, nánar tiltekið menn
sem framleiða og selja sandala,
í Senegal eru byrjaðir að taka
höndum saman gegn Kínverj-
um, eftir að ódýrar eftirlíkingar
af sandölunum frá Kína flæddu
yfir heimamarkað þeirra.
Fréttastofan AP segir frá
þessari óánægju en í fréttaskýr-
ingu um málið kemur fram að
kínverskir aðilar hafi stolið
hönnuninni og framleitt sand-
ala úr plasti í stað leðurs, á
kostnað heimamanna.
Einnig kemur fram að á mark-
aði í Dakar, höfuðborg Sene-
gals, sé farið að selja „afrískar
vörur“ sem búnar eru til í Kína.
Þá er sagt frá því að í norðan-
verðri Nígeríu hafi hálf milljón
manna misst vinnuna í fataiðn-
aði vegna ódýrs varnings frá
Kína. Heimamenn geti ekki
keppt við Kínverja um verð.
Undirbjóða
heimamenn
SAGA AF SKÓSÖLU