Morgunblaðið - 17.08.2012, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2012
Páll Fannar Einarsson
pfe@mbl.is
Leit að sprengju í rússnesku far-
þegaflugvélinni, sem lent var í Kefla-
vík í gærmorgun vegna sprengjuhót-
unar, lauk um þrjúleytið í gær.
Engin sprengja fannst í vélinni.
Rætt var við hvern og einn farþega
og fengu tveir farþeganna réttar-
stöðu sakbornings meðan á því stóð.
Þeim var síðar sleppt eftir skýrslu-
töku. Farþegarnir, 238 talsins, voru
allir fluttir af landi brott með annarri
flugvél en þeirri sem leitað var í
verður síðar flogið til Rússlands.
Airbus flugvél frá rússneska flug-
félaginu Aeroflot, með 255 manns
innanborðs, lenti laust fyrir klukkan
hálf sjö á Keflavíkurflugvelli í gær-
morgun vegna sprengjuhótunar.
Vélin var á leið frá New York til
Moskvu, en allir björgunaraðilar á
suðvesturhorninu voru settir í við-
bragðsstöðu. Vegna öryggislending-
arinnar var unnið eftir flugslysa-
áætlun og flugverndaráætlun
Keflavíkurflugvallar. Aðgerðum
stjórnaði lögreglustjórinn á Kefla-
víkurflugvelli en mikill viðbúnaður
var vegna aðgerðarinnar.
Fengu ábendingu um sprengju
Lögregluyfirvöld í Bandaríkjun-
um fengu ábendingu um að fimm
ferðatöskur með sprengiefnum væru
um borð í rússnesku flugvélinni sem
lenti á Keflavíkurflugvelli í gær-
morgun. Að sögn BBC fékk lögregl-
an vestanhafs símtal frá manneskju
sem ekki vildi láta nafns síns getið
þar sem varað var við því að fimm
ferðatöskur væru um borð í vélinni
sem innihéldu sprengiefni.
Sprengjuhótunin og svartaþoka
ollu minni háttar töfum á millilanda-
flugi á Keflavíkurflugvelli í gær-
morgun, en litlar sem engar tafir
urðu á brottförum.
Sprengjuleit var síðan sett af stað
í flugvélinni í gær og leitað var í öll-
um krókum og kimum vélarinnar
með aðstoð tækjabúnaðar og hunda
en engin sprengja fannst.
Engin sprengja fannst um borð
Farþegaþotu nauðlent á Keflavíkurflugvelli Tveir farþegar höfðu réttarstöðu grunaðra um tíma
Ljósmynd/Páll Ketilsson
Aðgerð Leit lauk um þrjúleytið í gær en engin sprengja fannst í vélinni.
„Það er verið að
skoða málið innan
ráðuneytisins, út-
færslu á tillögunum
og hvernig er hægt
að innleiða þetta,“
segir Guðbjartur
Hannesson velferð-
arráðherra um af-
drif tillagna starfs-
hóps um húsnæð-
isbætur. Í maí skilaði vinnuhópurinn
af sér skýrslu sem fól í sér tillögur sem
fela m.a. í sér eitt húsnæðisbótakerfi
fyrir alla, óháð búsetuformi. Í skýrsl-
unni kemur fram að mikill munur sé á
stuðningi ríkisins eftir því hvort fólk á
húsnæði eða leigir.
„Markmiðið er að jafna stöðu leigj-
enda og húseigenda. Tillagan gerir
ráð fyrir því að þetta yrði gert á 3-4
árum að minnsta kosti. Kerfinu verð-
ur ekki komið á í einu vetfangi. Vinna
við kostnaðarmat og frekari skoðun
er í gangi. Við höfum verið í sam-
skiptum við formann vinnuhópsins
og verðum það áfram.“
Aðspurður um framhald málsins
segir Guðbjartur að reynt verði að
koma einhverjum breytingum inn í
fjárlög nú í vetur. „Við munum reyna
að innleiða fyrstu skref ef ekkert
óvænt kemur upp á.“ Guðbjartur var
ekki fáanlegur til að gefa upp í
hverju slík skref gætu falist.
heimirs@mbl.is
Koma breytingum
í fjárlög í haust
Vísir að nýju húsnæðisbótakerfi?
Guðbjartur
Hannesson
Flestir skólar landsins hefja kennslu í næstu viku
og því eru margir farnir að huga að því að kaupa
bækur fyrir skólann. Á skiptibókamörkuðum
geta námsmenn skipt gömlum skólabókum sem
þeir nota ekki lengur og fengið aðrar í staðinn,
nýjar eða notaðar, en á þessum árstíma fer ver-
tíðin venjulega á fullt. „Umferðin er smám sam-
an að aukast. Nú fer þetta að byrja af alvöru og
það verður örugglega brjálað að gera um
helgina. Við fáum mjög marga framhalds-
skólanema og svo mæta líka margir ungir
krakkar með foreldrum sínum,“ segir starfs-
maður Griffils, en skiptibókamarkaðir eru mikið
sóttir á haustin og var töluvert af fólki þegar
blaðamaður Morgunblaðsins kíkti við. pfe@mbl.is
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Skiptimarkaðir landsins komast á fullt skrið um helgina
Helgi Hjörvar, formaður efnahags-
og viðskiptanefndar Alþingis, gerir
ráð fyrir því að erindi Guðlaugs
Þórs Þórðarsonar, alþingismanns,
um yfirlýsingar Fjármálaeftirlits-
ins (FME) um björgun Sjóvár, verði
tekið fyrir á fundi nefndarinnar í
næstu viku. „Það er sjálfsagt að
taka þetta til skoðunar og fá Fjár-
málaeftirlitið, og þá sem komu að
þessari ákvörðun á sínum tíma, til
þess að fara í gegnum þetta sem
þau sendu frá sér,“ segir Helgi.
Hann segir að hann muni kalla
eftir því að fá þær upplýsingar sem
óskað er eftir. „Það var orðið tjón
þarna og hvernig átti að vinna úr
því var ein af mörgum ákvörðunum
sem þurfti að taka eftir hrunið,“
segir Helgi. ingveldur@mbl.is »21
Sjálfsagt að kanna
björgun Sjóvár
Vonir standa til þess meðal lánveit-
enda og fulltrúa lántakenda að dóm-
ar verði kveðnir upp fyrir áramót í
þeim ellefu prófmálum sem þessir
aðilar völdu til að varpa ljósi á þann
ágreining sem skapast hefur um úr-
vinnslu mála vegna gengistryggðra
lána.
Guðlaugur Þór Þórðarson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, sem á
sæti í efnahags- og viðskiptanefnd
Alþingis, hefur lagt til að nefndin
kalli til sín hagsmunaaðila vegna um-
ræðu um innheimtu ólögmætra
gengislána. Guðlaugur leggur einnig
til að lögmennirnir Sigurvin Ólafsson
og Lúðvík Bergvinsson verði kallaðir
á fund nefndarinnar en í grein þeirra
sem birtist í vikunni lýsa þeir m.a.
áhyggjum sínum af innheimtu áð-
urnefndra lána og hættu á hugs-
anlegri bótaskyldu ríkisins.
„Ég vil ekki kveða upp úr um það
fyrr en ég hef heyrt röksemdir
þeirra og farið betur yfir málið aft-
ur,“ segir Guðlaugur aðspurður um
hvort stjórnvöld eigi að beita sér fyr-
ir gerð samninga um afborganir á
meðan óvissa ríkir um stöðu þessara
lána, en þeir Lúðvík og Sigurvin
kalla einmitt eftir inngripum stjórn-
valda í grein sinni. „Það er af-
skaplega mikilvægt að efnahags- og
viðskiptanefnd sé með virkt eftirlit.
Það getur verið auðvelt að valda
miklum skaða með innheimtu á lán-
um sem síðan reynast ólögmæt.“
Beðið eftir niðurstöðu
Svanborg Sigmarsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi Umboðsmanns skuldara,
segir að ekki hafi verið kallað eftir
aðgerðum stjórnvalda varðandi til-
högun afborgana meðan á óvissu
stendur. „Við höfum ekki talið það
heppilegt að kalla eftir nýjum lögum
því þau síðustu hentuðu ekki vel. Við
töldum heppilegra að bíða eftir
niðurstöðu dómsmála.“
heimirs@mbl.is
Skoði innheimtu gengislána
Dómar í prófmálum falla hugsanlega fyrir áramót
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Hæstiréttur Margir bíða eftir nið-
urstöðu mála um gengislán.
,,Þessi ummæli eru athyglisverð og
við munum skoða það hvort í þeim
felist vísbendingar um háttsemi sem
þurfi að skoða eitthvað nánar. Við
munum síðan taka afstöðu til þess í
framhaldinu hvort þetta kalli á ein-
hverjar athuganir,“ sagði Páll Gunn-
ar Pálsson, forstjóri Samkeppniseft-
irlitsins, um ummæli Hermanns
Guðmundssonar, fráfarandi for-
stjóra N1, í Viðskiptablaðinu í gær.
Hermann sagði þar að N1 hefði
haft burði til að lækka eldsneyt-
isverð en samt sem áður ákveðið að
virða það ástand sem var á mörk-
uðum og ráðast ekki á misvel sett
samkeppnisfyrirtæki.
Stjórn N1 hefur sent frá sér yfir-
lýsingu þar sem áréttað er að farið
sé í einu og öllu eftir lögum og
reglum og að eðlileg samkeppni ríki
á eldsneytismarkaði hér á landi.
aslaug@mbl.is
Ummæli um bens-
ínverð könnuð