Morgunblaðið - 17.08.2012, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 17.08.2012, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2012 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Nú stendur mikið fyrir dyrum á heim- ilinu, til að mynda vegna endurbóta, flutn- inga, eða gistiheimsókna. Sestu nú niður og farðu vandlega í gegnum fjármálin. 20. apríl - 20. maí  Naut Ef þú ert jákvæður og horfir fram á við reynist þér auðveldara að gera þær breyt- ingar sem þurfa að verða í lífi þínu. Slakaðu hvergi á því þú þarft á öllu þínu að halda. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Viðhorf þitt er að hallmæla ekki því sem þú hefur ekki prófað. Gefðu þér tíma til þess að víkka út sjóndeildarhring þinn. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú þarft að hafa þig allan við til þess að missa ekki hlutina úr böndunum. Leyfðu mönnum að gaspra; þeir gefast upp og þá kemur þinn tími. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Einhver kemur með góða hugmynd sem getur skilað þér árangri í starfi og aukið virð- ingu þína. Einnig skaltu koma nýjum hug- myndum á framfæri, ef þær kvikna. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú ert í sambandi við áhrifamikið fólk sem margir vilja þekkja. Að öðrum kosti fer þér best að bíða þess sem verða vill. Leitaðu þér ráðgjafar og haltu svo þínu striki. 23. sept. - 22. okt.  Vog Jákvætt hugarfar hefur ótvíræð áhrif á heilsuna. Reyndu að vera þolinmóður gagn- vart einhverjum sem reynir að skipta sér af einkamálum þínum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Sumir lofa gulli og grænum skógum án þess að meina hið minnsta með því. Ekki reyna að fá þitt fram með offorsi, bíddu heldur eilítið. Sambönd þín munu blómstra á árinu. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Taktu það rólega í dag. Kannski er ekki úr vegi að leggja spilin á borðið á næstunni. Reyndu að skyggnast undir yf- irborð hlutanna áður en þú tekur afstöðu. 22. des. - 19. janúar Steingeit Nú væri ekki úr vegi að fegra vinnuumhverfi sitt. Þú vilt hafa eitthvað spennandi og nýstárlegt fyrir stafni og helst vera á ferðalagi á ókunnum slóðum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú hefur mikið að gera og skalt ekki fara út í stórar framkvæmdir á heimilinu. Þú sérð sömu hlutina endurtaka sig aftur og aftur í vinnunni. 19. feb. - 20. mars Fiskar Leggðu þig allan fram og ekki hafa áhyggjur neikvæðu peningahliðinni. Margir vilja leggja stein í götu þína, en þú þarft ekki að yfirbuga þá til þess að ná árangri. Pétur Stefánsson veltir fyrir sérgangi tilverunnar: Ég get alveg sagt með sann, sýnt og við það staðið; að Bakkus dregur margan mann með sér niður í svaðið. Skáldkonan Theodóra Thorodd- sen orti á sínum tíma: Augun gerast vot og veik. Vitinu sumir farga. Svona eftir sælan leik svíkur Bakkus marga. „Útigangsmenn“ er yfirskrift brags sem Ágúst Marinósson orti fyrir mörgum árum eftir að hafa horft á þátt Jóns Ársæls um úti- gangsmenn í Reykjavík: Gæfuleysið lykur lotinn lúinn fölan drykkjumann. Hrasar valtur, viljinn brotinn vini fáa þekkir hann. Titrandi og tötrum búinn til að hefja annan slag. Telur aura trausti rúinn tekst hann á við nýjan dag. Þrútin augu ákaft beiða ásjár þeirra er mætir hann. Skyldi vilja einhver eyða aur í þennan tötramann. Dóm í augum flestra finnur fyrirlitning skömm og háð. Aumingi sem ekkert vinnur, aðeins drekkur, þar er skráð. Skeggjað andlit, röddin ráma róninn þekkist hvar hann fer. Hugur dofinn, drykkjan byrði dauðinn nálægt hvar sem er. Náttstað vindur nístir kaldan nýtist illa blundur hver. Martröð rýfur sundur svefninn sálarfargið róninn ber. Fyrrum átti hann fé og æru fróma virðing, hús og bíl, blíða konu, börnin kæru bjó þá yfir reisn og stíl. Pabba sinn þá börnin báðu best að leysa úr hverri þraut. Hann þau einan ávallt dáðu allt þar til hann hvarf á braut. Dæmið ekki drykkjumanninn dapurt líf hann sjálfur kaus. Lætur reka á lífsins hafi lifir við sitt drykkjuraus. Bakkus fékk hann, felldi í dróma framar ei hann gengur laus. Tárin renna um tærðar kinnar töpuð árin birtast hér, þegar róninn raunir sínar rekur dapur fyrir mér. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af Bakkusi, sælum leik og útigangsmönnum G re tt ir S m á fó lk H ró lf u r h ræ ð il e g i Fe rd in a n d G æ sa m a m m a o g G rí m u r HUNDUM FINNST GAMAN AÐ SYNDA. OG ÉG VEIT ÝMISLEGT FLEIRA VANDRÆÐALEGT UM ÞÁ. VÁ, HVAÐ RIGNIR MIKIÐ ... VONANDI FLÆÐIR EKKI YFIR ALLAN HEIMINN. ÞÚ ÞARFT EKKI AÐ ÓTTAST ÞAÐ. Í NÍUNDA KAFLA FYRSTU MÓSEBÓKAR LOFAÐI GUÐ NÓA ÞVÍ AÐ ÞAÐ MUNDI ALDREI GERAST AFTUR. TÁKN ÞESS LOFORÐS ER REGNBOGI. Æ, HVAÐ MÉR LÉTTIR VIÐ AÐ HEYRA ÞAÐ! RITNINGARTEXTAR HAFA STUNDUM ÞAU ÁHRIF. HVAR HEFUR ÞÚ VERIÐ ALLT MITT LÍF? ÞVÍ MIÐUR HERRA, HÉR ER VOPNABURÐUR STRANG- LEGA BANNAÐUR. VOPN? ÞETTA ERU EKKI VOPN! VIÐ ÆTLUM ALLIR AÐ FÁ NAUTASTEIK OG HÖFUM HEYRT AÐ ÞÆR SÉU SEIGAR! Víkverji er rétt að ná sér eftir Ól-ympíuleikana í London. Fékk tak í bakið eftir tapið á móti Ungverj- um í handboltanum og er eini Íslend- ingurinn sem vitað er um að hafi ekki gengið heill frá leikunum. x x x Víkverji byrjaði að hlaupa áður enhann kunni almennilega að ganga og hefur lengst af verið í góðu líkamlegu ástandi. Þó ekki í ár og það kom honum illilega í koll í liðinni viku. Þrátt fyrir að leikurinn við Ungverja í átta liða úrslitum leik- anna hafi verið spennandi og tekið á í sófanum heima er það engin afsökun fyrir því að geta sig varla hreyft í nokkra daga á eftir. x x x Undanfarin ár hefur Víkverji variðsumarfríinu að mestu erlendis, gengið þar af sér skóna og mætt end- urnærður á sál og líkama til baka. Að þessu sinni lét hann budduna og makann ráða för, fór í styttri fjöl- skylduferðir út frá Reykjavík og eina lengri norður í land til að byggja sig sem best upp fyrir Ólympíuleikana. Þrátt fyrir góðan ásetning var veðrið þess eðlis að ómögulegt var að hreyfa sig spönn frá rassi. Sumarsólin hérna virðist vera heitari en sólin í útland- inu og það lengsta sem Víkverji gekk var úr íbúð út á verönd eða úr íbúð ofan í heitan pott til þess að kæla sig. Styttra var úr sumarhúsi út í bíl og ekki var vegalengdunum fyrir að fara frá bílastæðum í viðkomandi verslanir. x x x Þetta hreyfingarleysi ásamt tölu-verðum akstri dró fyrrnefndan dilk á eftir sér. Skömmu eftir að leik- urinn var úti ætlaði Víkverji að kveikja á fartölvu sinni en sem hann settist læstist bakið og var Víkverji sem vinkill lengi á eftir. Verkjatöflur slógu á eymslin en ekki nóg til þess að Víkverji gæti þegar tekið upp heil- brigðari lífshætti og byrjað að ganga á ný. En nú er öldin önnur, Víkverji kominn á fulla ferð og ekki seinna vænna enda mesti viðburður í ís- lenskri íþróttasögu á morgun – sjálf- ur úrslitaleikurinn í bikarkeppni karla í fótbolta. Þá er eins gott að vera í góðu formi. víkverji@mbl.is Víkverji Orð dagsins: Á þeim degi munuð þér skilja, að ég er í föður mínum og þér í mér og ég í yður. (Jóh. 14, 20.) Dalvegi 6-8 201 Kópavogur Sími 535 3500 www.kraftvelar.is kraftvelar@kraftvelar.is Bjóðum haugsugur og taðdreifara frá Abbey í miklu úrvali Pantið tímanlega Sjálffyllibúnaður (valbúnaður) Vacuum dælur 11.000 og 13.000 ltr. Fjöðrun á beisli Fæst í mörgum stærðum Flotmiklir hjólbarðar 30,5R32 Vökvaopnun á dreifistút Efnisþykkt: 6mm stál Est’d. 1947

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.