Morgunblaðið - 17.08.2012, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2012
ixÄØÜztÄÄtÜ fÇçÜà|ä≠ÜâÜ g≠á~âÜ@FC8 tyáÄA
Sími 568 5170
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Við búum í Reykjakoti 2, skammt
hér frá og höfum séð sívaxandi
straum ferðamanna. Hér hefur
vantað upplýsingar og margir hafa
komið við hjá okkur til að spyrja,“
segir Magnea Jónasdóttir sem opn-
ar í dag veitingastaðinn Dalakaffi í
Hveragerði, við bílastæði göngu-
leiðarinnar upp í Reykjadal. Hún
og Þorsteinn Hannibalsson, eigin-
maður hennar, voru við lokaund-
irbúning í gær og smiðir að smíða
útipallinn.
Liðlega þriggja kílómetra
gönguleið er frá bílastæðunum við
Hengladalaá inn að heitu laugunum
í Klambragili í Reykjadal. Vinsæld-
ir leiðarinnar hafa vaxið mjög síð-
ustu ár og eru bílastæðin oft full og
lagt með veginum. Hópar erlends
göngu- og hjólafólks eru áberandi
og einnig er dalurinn vinsæll
áfangastaður í hestaferðum.
Ekki er vitað hversu margir
leggja leið sína í Reykjadal. Magn-
ea segir að slegið hafi verið laus-
lega á fjöldann í hópum fyrir
tveimur árum. Þá hafi verið áætlað
að í þeim hafi verið 5-7 þúsund
manns. Þá eru ótaldir þeir sem
koma á eigin vegum. Gestirnir eru
því að minnsta kosti á annan tug
þúsunda, jafnvel fleiri.
Magnea og Þorsteinn hafa
fundið fyrir því að fólk þyrstir í
upplýsingar. Þá hafa engin salerni
verið við bílastæðin en úr því er
bætt nú með því að Hveragerðis-
bær setur upp almenningssalerni
við kaffihúsið.
Hefst með þrautseigjunni
„Markmið mitt er að bæta
upplifun fólks af staðnum og svæð-
inu í heild,“ segir Magnea um kaffi-
húsið sem er í gömlum sumar-
bústað sem þau fluttu á staðinn.
Hún er nemi í umhverfisskipulags-
fræðum og hyggst leggja sitt af
mörkum til að bæta umgengni um
svæðið. Það gerir hún fyrst og
fremst með því að vera á staðnum,
sjá hvernig umferðin gengur fyrir
sig og veita upplýsingar.
Magnea og Þorsteinn voru á
hlaupum í gær að ná sér í síðustu
leyfin til að geta opnað í dag. Það
hafðist. „Ég er svolítið eins og hún
amma mín sem kom vestan af
fjörðum og náði alltaf sínu fram
með þrautseigjunni. Hún fór með
prjónadótið og kaffibrúsann á bæj-
arskrifstofuna og sagðist bara
hinkra eftir áheyrn. Með þessari
aðferð fékk ég fimmtán vottorð á
tveimur klukkustundum,“ segir
Magnea.
Starfsemin í Dalakaffi er ekki
fastmótuð, hún verður þróuð eftir
þörfum gestanna. Þar verður súpa í
boði auk heitra og kaldra drykkja
og meðlætis, léttvíns og bjórs.
„Göngu-, hjóla- og hestafólkið vill
fá eitthvað hollt og staðgott þegar
það kemur úr ferðinni,“ segir
Þorsteinn.
Sat hinum megin við borðið
„Ég er kaffisnobbari en hef
setið hinum megin við borðið hing-
að til. Vil bara gott kaffi. Svo finnst
mér ekki taka því að búa til vondan
mat, það tekur jafn langan tíma og
búa til góðan,“ segir Magnea.
Dalakaffi verður opið fram í
miðjan október og eftir það verður
hægt að taka á móti hópum sem
panta fyrirfram. Síðan hefst rekst-
urinn af krafti að nýju með vorinu.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Dalakaffi Magnea Jónasdóttir og Þorsteinn Hannibalsson vilja þjóna gestum Reykjadals sem best.
Kaffisnobbari með eigið hús
Magneu Jónasdóttur í Hveragerði finnst ekki taka því að búa til vondan mat
Hún er að opna kaffihús til að þjóna gestum gönguleiðarinnar inn í Reykjadal
Bíll við bíl Bílastæðin við Hengladalaá eru oft yfirfull og gesti þyrstir í upp-
lýsingar fyrir ferð og veitingar að göngu lokinni.
Fatimusjóðurinn
á Íslandi hefur
lagt fram fimm
milljónir króna til
aðstoðar fórnar-
lömbum átak-
anna í Sýrlandi.
Rauði krossinn á
Íslandi veitti
styrknum viðtöku
í dag og munu Al-
þjóða Rauði
krossinn og Rauði hálfmáninn í Sýr-
landi nýta féð til að aðstoða óbreytta
borgara sem orðið hafa illa úti
vegna átakanna þar í landi. „Þetta
eru mest framlög frá einstaklingum
hér á Íslandi sem vilja hjálpa venju-
legu fólki sem er skyndilega lent í
miðri styrjöld og hefur þurft að flýja
heimili sín. Mér er því sérlega um-
hugað um að við gerum eitthvað til
að hjálpa Sýrlendingum á þessum
erfiðu tímum,“ segir Jóhanna Krist-
jónsdóttir, stofnandi og forsvars-
maður sjóðsins.
Á síðustu þremur vikum hafa Al-
þjóða Rauði krossinn og Rauði hálf-
máninn í Sýrlandi dreift sjúkra-
gögnum og séð um 100.000 manns á
átakasvæðum fyrir m.a. mat og
hreinu drykkjarvatni. pfe@mbl.is
Aðstoða fórnar-
lömbin í Sýrlandi
Aðstoð Forsvars-
menn sjóðsins.
Sunna Pam Olaf-
son-Furstenau frá
Mountain í Norð-
ur-Dakóta í
Bandaríkjunum
fer um landið
næstu daga á veg-
um Þjóðrækn-
isfélags Íslend-
inga í Vesturheimi
og flytur erindi í
máli og myndum sem hún nefnir
„The Love of Iceland in America“.
Fyrsta kynningin verður í Ráðhús-
inu í Reykjavík á Menningarnótt, á
morgun klukkan 18. Síðan verður
hún í Húsinu á Eyrarbakka á sunnu-
dag kl. 18, á Egilsstöðum þriðjudag-
inn 21. ágúst, Vopnafirði 22. ágúst,
Húsavík 24. ágúst, á þjóðræknisþingi
á Akureyri 25. ágúst, Hofsósi 27.
ágúst, Sauðárkróki 28. ágúst, Blöndu-
ósi 29. ágúst, Ísafirði 31. ágúst, Stykk-
ishólmi 3. september og í Borgarnesi
4. september.
Ást Bandaríkja-
manna á Íslandi
Sunna Pam Olaf-
son-Furstenau
Haldin verður hátíð í Innbænum á
Akureyri á sunnudag undir yf-
irskriftinni Danskur sunnudagur í
Innbæ.
Fram kemur í tilkynningu að
hugmyndin sé sótt í gamla ljós-
mynd sem tekin var í garðveislu hjá
Oddi C. Thorarensen apótekara
upp úr aldamótunum 1900.
Íbúar í Innbænum, fyrirtæki og
stofnanir standa að hátíðinni ásamt
Akureyrarbæ. Dagskráin hefst kl.
13 og stendur til 17. Á milli kl. 14 og
16 verður gestum boðið heim í
garða íbúanna og að þiggja veit-
ingar. Hljóðfæraleikarar verða á
svæðinu og ganga milli garðanna
og skemmta gestum og gangandi.
Einn munu félagar úr Karlakór Ak-
ureyrar-Geysi ganga um svæðið og
syngja. Félagar úr Stangveiðifélagi
Akureyrar leiðbeina ungum veiði-
mönnum við Tjörnina og eru þeir
sem vilja taka þátt í því beðnir að
koma með veiðistangir með sér. Þá
verður boðið upp á örkennslu í
dönsku.
Danskur sunnudag-
ur í Innbænum
Morgunblaðið/Kristján
Vígsluathöfn fer á sunnudag fram
við sumarbúðir KFUM og KFUK á
Hólavatni í Eyjafirði.
Tilefnið er að nú í sumar var tek-
ið í notkun nýtt 210 fermetra hús á
staðnum
Athöfnin hefst klukkan 14. Að
lokinni vígslu verður árleg kaffi-
sala sumarbúðanna.
Nýbygging vígð
við Hólavatn
Skriðuklausturshátíð verður haldin
í Fljótsdal um helgina en nú er lok-
ið tíu ára rannsókn á rústum hins
forna Ágústínusarklausturs sem
þar stóð á 16. öld.
Katrín Jakobsdóttir mennta-
málaráðherra mun opna fullfrá-
gengið minjasvæði. Þá verður guðs-
þjónusta í rústum kirkjunnar og
mun Agnes M. Sigurðardóttir, bisk-
up Íslands, prédika.
Um helgina kemur einnig út bók
eftir Steinunni Kristjánsdóttur um
rannsóknina á klaustrinu að Skriðu
en um er að ræða einhvern um-
fangsmesta uppgröft á Íslandi hin
síðari ár.
Skriðuklausturs-
hátíð um helgina
Morgunblaðið/Ómar