Morgunblaðið - 17.08.2012, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2012
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
BM Mótun - Æfingakerfi Báru Magnúsdóttur
Ný námskeið að hefjast
Frjáls
aðgangur að
opna kerfinu
og tækjasal
Í BM Mótun er aðaláherslan lögð á styrk, liðleika og góðan
líkamsburð. Upphitun í tækjasal 20 mín., mótun 40 mín.
Aðeins 15 í hóp. Hentar öllum aldursflokkum.
8 og 16 vikna námskeið - mánudaga og miðvikudaga kl 16:05 og16:50
þriðjudaga og fimmtudaga kl 8:45 og 9:45.
Kennarar: Bára Magnúsdóttir og Þórdís Schram.
Verð: 8 vikur kr. 19.900 og 16 vikur kr. 29.900.
Barnagæsla - Leikland JSB
Velkomin í okkar hóp!
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Innritun í síma 581 3730
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
Líkamsrækt á rólegri nótunum
Ný námskeið að hefjast
Sérsniðin líkamsrækt fyrir konur 60 ára og eldri. Rólegri yfirferð,
sérvalin tónlist og skemmtileg stemning. Myndast hefur
einstaklega góður andi og vinskapur í þessum tímum.
Mánudaga og miðvikudaga kl 9:30
þriðjudaga og fimmtudaga kl 9:30
Verð: 8 vikur kr. 19.900 og 16 vikur kr. 29.900
Velkomin í okkar hóp!
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Frjáls
aðgangur að
opna kerfinu
og tækjasal
Innritun í síma 581 3730
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
RopeYoga
Heildrænt hug- og heilsuræktarkerfi. Sérstök áhersla lögð á miðjuna
– kvið og bak. Hentar öllum aldurshópum og líkamsgerðum. Þú finnur
strax árangur eftir fyrstu æfinguna án þess að reyna of mikið á þig.
Lokuð 8 vikna og 16 vikna námskeið 2x í viku í 60 mínútur:
Þriðjudaga og fimmtudaga kl 6:15, 7:20, 10:30 og 12:00 / Mánudaga og miðvikudaga kl 16:30
Verð: 8 vikur kr. 19.900 og 16 vikur kr. 29.900.
Barnagæsla - Leikland JSB
Velkomin í okkar hóp!
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Frjáls
aðgangur að
opna kerfinu
og tækjasal
Ný námskeið að hefjast
Innritun í síma 581 3730
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Við höfum alltaf haft ákveðnar
skoðanir á þessum málum en und-
anfarin þrjú ár hafa þær verið á
skjön við það sem forystan heldur
fram,“ segir Gísli Árnason, formaður
Vinstrihreyfingarinnar græns fram-
boðs í Skagafirði, en að undanförnu
hafa ýmsir forystumenn í röðum
flokksins stigið fram í fjölmiðlum og
mælst til þess að umsókn um inn-
göngu í Evrópusambandið verði
endurskoðuð.
„Við vitum í sjálfu sér ekkert á
hvaða vegferð Evrópusambandið er
og okkur hefur alltaf sýnst við vera
að sækja um aðild að sambandi sem
enginn veit hvernig lítur út eftir
örfáa mánuði,“ segir Gísli en að hans
mati er engin þörf á að skoða í pakk-
ann til að komast að því hvað í aðild
felst. „Evrópusambandið er ekki
með neinar sérlausnir fyrir okkur til
frambúðar.“
Erfiður vetur framundan
Gísli gagnrýnir forystu og þá eink-
um formann flokksins, Steingrím J.
Sigfússon, fyrir stefnu hans í aðild-
armálinu og segir hann nú þurfa að
íhuga stöðu sína fyrir komandi al-
þingiskosningar. „Í vetur lýstum við
yfir vantrausti á forystu flokksins og
ég sé ekki annað en að formaðurinn
þurfi að fara að íhuga stöðu sína í
ljósi þeirra atburða sem nú eiga sér
stað,“ segir Gísli.
Flokksráðsfundur Vinstri grænna
verður haldinn eftir rétt rúmlega
viku. Dagskrá fundarins liggur fyrir
en samkvæmt henni stendur ekki til
að ræða sérstaklega umsóknina að
ESB. Þetta gagnrýnir Gísli og bend-
ir á að það hljóti að verða erfitt að
koma í veg fyrir umræður um málið
einkum í ljósi fyrri ummæla þing-
manna og ráðherra.
Þá á hann von á því að komandi
kosningavetur verði erfiður m.a.
vegna skorts á trausti milli forystu
og almennra flokksmanna. „Mér
finnst þetta vera spurning um traust
og það er ekki lengur til staðar.“
Einungis orðin tóm?
Undanfarin ár hefur meirihluti
þingflokks Vinstri grænna stutt þau
skref sem stigin hafa verið í aðildar-
og aðlögunarferlinu að ESB. Sökum
þess óttast Gísli að yfirlýsingar þing-
manna og ráðherra þess efnis að
endurskoða eigi umsóknina séu ein-
ungis orðin tóm.
„Þessir sömu aðilar sem nú eru að
snúa við blaðinu eru nýbúnir að sam-
þykkja aðlögunarstyrki að samband-
inu [IPA-styrkir] og í maí þá höfn-
uðu þeir að þjóðin hefði aðkomu að
málinu svo ég sé engar breytingar
nema þessar yfirlýsingar,“ segir
Gísli og bætir við að eftir hrun hafi
stjórnmálaflokkum hér á landi gefist
ákveðið tækifæri til að breyta um
stefnur og áherslur. „En tækifærið
var ekki nýtt. Hér er enn sama
ábyrgðarleysið í stjórnmálum og áð-
ur – menn bera einfaldlega aldrei
ábyrgð á gjörðum sínum.“
Traust skortir á milli
forystu og flokksmanna
Gísli Árnason segir enn sama ábyrgðarleysið ríkjandi
Morgunblaðið/Ómar
Atkvæðagreiðsla Óðum styttist í flokksráðsfund Vinstri grænna en hann
verður haldinn á Hólum í Hjaltadal eftir rétt rúma viku.
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Störfum fer heldur fjölgandi hér á
landi að sögn Karls Sigurðssonar,
forstöðumanns upplýsingatækni- og
rannsóknarsviðs Vinnumálastofnun-
ar. Ef horft er á störf á fyrsta og öðr-
um ársfjórðungi eru þau töluvert
fleiri en á sama tíma í fyrra segir
Karl.
Þeim hefur fjölgað að jafnaði um
1.650 á fyrstu sex mánuðum ársins
miðað við sömu mánuði í fyrra sam-
kvæmt tölum úr vinnumarkaðs-
könnun Hagstofunnar.
Starfandi eru um 9.400 færri
núna, á öðrum ársfjórðungi 2012, en
yfir sama tíma árið 2008, mánuðina
fyrir hrun. Karl gerir þó ráð fyrir því
að starfandi á árinu 2012 verði um
tvöþúsund fleiri heldur en á því síð-
asta. Samkvæmt tölum á vef Hag-
stofunnar voru starfandi á fyrsta
ársfjórðungi 1.200 fleiri en í fyrra og
2.100 fleiri á öðrum ársfjórðungi.
Fram kom í Morgunblaðinu í gær
að þeim fer nú ört fjölgandi sem eru
utan vinnumarkaðar, en þeim hefur
fjölgað úr 31.800 manns í júní í
34.800 manns í júlí samkvæmt nýrri
vinnumarkaðsrannsókn Hagstof-
unnar. Aðstoðarframkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins sagði fjölgun
þeirra sem eru utan vinnumarkaðar
vera meginskýringuna á minnkandi
atvinnuleysi á milli ára og störfum
hefði ekki fjölgað.
Stór hópur af bótarétti
Atvinnuleysisprósentan hefur
lækkað í sumar m.a. út af átakinu
Vinnandi vegur og eðlilegrar árs-
tíðasveiflu á vinnumarkaði að sögn
Karls. Hann býst við því að prósent-
an lækki enn frekar í haust þegar all-
stór hópur sem er að klára bótarétt-
inn fer út af atvinnuleysisskrá, það
teljist hinsvegar ekki góð tíðindi.
„Það fer fyrst að reyna á þetta núna í
haust og vetur þegar fjögur ár eru
liðin frá hruni. Bótarétturinn er í
grunninn þrjú ár en var framlengdur
í fjögur ár þegar ekki rættist úr at-
vinnuástandinu eftir hrun. Sveitar-
félög eru uggandi yfir því að þau fái
aukinn fjölda til sín í haust sem sæk-
ir um framfærslu,“ segir Karl.
Önnur ástæða fyrir því að búist er
við lágri atvinnuleysisprósentu í
byrjun hausts er að skólafólkið fer af
vinnumarkaði og þá skapast rými
fyrir einstaklinga af atvinnuleysis-
skrá að fá vinnu. „Því fækkar á skrá
en það fer að ganga til baka í október
þegar þrengist um í byggingariðnaði
og ferðaþjónustu,“ segir Karl.
Aukin sveifla hjá konunum
Í júlí var atvinnuleysi meðal
kvenna 5,4% en á sama tíma í fyrra
var það 6,8%. Á fyrsta ársfjórðungi
2012 voru færri starfandi konur en á
árunum á undan en á öðrum
ársfjórðungi voru þær orðnar fleiri
að sögn Karls. Hann telur þessa árs-
tíðasveiflu í atvinnuleysi kvenna til-
komna vegna ferðaþjónustunnar.
„Ég ímynda mér að hin miklu um-
svif í ferðaþjónustunni hafi fjölgað
störfum fyrir konur á öðrum árs-
fjórðungi en þessi fækkun á fyrsta
ársfjórðungi stafi af samdrætti í op-
inberri þjónustu. Það hafa ekki verið
miklar árstíðasveiflur síðustu þrjú ár
hjá konum á atvinnuleysisskrá en
það virðist vera meira áberandi í ár.“
Ólíkar aðferðir
Vinnumálastofnun og Hagstofan
birtu bæði atvinnuleysistölur í vik-
unni. Vinnumálastofnun birtir tölur
um skráð atvinnuleysi en Hagstofan
niðurstöður úr úrtakskönnun meðal
landsmanna. Meiri sveiflur í atvinnu-
leysi sjást í tölum Hagstofunnar, t.d.
mældi stofnunin 8,5% atvinnuleysi í
maí á meðan það var 5,6% hjá Vinnu-
málastofnun. Í júlí mældist atvinnu-
leysi Hagstofunnar 4,4% á meðan
það var 4,7% hjá Vinnumálastofnun.
Karl segir um gjörólíkar mæling-
ar að ræða, Vinnumálastofnun fari
bara eftir skráningu hjá stofnuninni
á meðan Hagstofan er með úthringi-
úrtak. „Til þess að mælast atvinnu-
laus hjá Hagstofunni þarftu að vera
tilbúinn að taka vinnu og geta tekið
hana innan ákveðins tíma. Ungt fólk
er yfirleitt að klára skóla um miðjan
maí en fer ekki í vinnu fyrr en í júní
og þar af leiðandi mælist atvinnu-
leysi hjá Hagstofunni alltaf mjög
hátt í maí. Þessir einstaklingar koma
aldrei til okkar á atvinnuleysisskrá.
Atvinnuleysi kynjanna mælist líka
svolítið ólíkt. Ungar mæður eru oft
lengi á skrá hjá okkur en í úrtaki
Hagstofunnar mælast þær ekki at-
vinnulausar því þær þurfa að geta
tekið vinnu nánast samstundis, en
þar sem þær hafa ekki barnapössun
til þess mælast þær ekki atvinnu-
lausar hjá Hagstofunni,“ segir Karl.
Stór hópur klárar atvinnu-
leysisbótaréttinn í haust
Morgunblaðið/Ernir
Malbikun Staðan á vinnumarkaði
glæðist oft yfir sumartímann.