Morgunblaðið - 17.08.2012, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2012
Lyftarar og staflarar í yfir 600 útgáfum
EINSTAKT - hillulyftari sem getur líka unnið úti
▪ Rafdrifnir brettatjakkar með eða án palls. Allt að 5.350 mm lyftihæð
og 3.000 kg lyftigeta
▪ Tínslu- og þrönggangalyftarar með allt að 14.250 mm lyftihæð
▪ Rafmagns- og dísellyftarar með allt að 9.000 kg lyftigetu
▪ Hillulyftarar með allt að 12.020 mm lyftihæð
STUTTAR FRÉTTIR
● Stjórnmálamenn þurfa að vara sig á
því að yfirbjóða ekki hver annan þegar
kemur að fjárlagagerð kosningaársins
2013 og ganga greiðlega fram við að
borga niður skuldir ríkisins sem fyrst,
enda er það lykilforsenda þess að hægt
sé að afnema gjaldeyrishöftin. Þetta
segir í markaðspunktum Arion banka.
Greiðsluuppgjör ríkissjóðs á fyrri helm-
ingi ársins gefi tilefni til hóflegrar bjart-
sýni; niðurstaðan sé betri en í áætl-
unum og minni halli á handbæru fé frá
rekstri. Er ítrekuð nauðsyn þess að
safna upp tekjuafgangi svo hægt sé að
greiða niður skuldir en 1 af hverjum 6
krónum ríkissjóðs fer í vaxtagjöld.
Vara við yfirboðum
● Seðlabankinn mun halda stýrivöxtum
sínum óbreyttum á vaxtaákvörð-
unarfundi bankans hinn 22. ágúst
næstkomandi, að mati Greiningar Ís-
landsbanka og ráðgjafar- og greininga-
fyrirtækisins IFS. Þróun helstu hagvísa
undanfarnar vikur, ásamt því sem fram
kemur í fundarferð peningastefnu-
nefndar í lok júnímánaðar, gefur til
kynna að slaki peningastefnunnar sé
horfinn og virkir raunstýrivextir séu nú
jákvæðir um 0,57%. Verðhjöðnun var
einnig meiri í júlí en reiknað var með.
Íslandsbanki og IFS spá
óbreyttum stýrivöxtum
Bandarísk yfirvöld hafa stefnt sjö
bönkum, meðal annars bresku bönk-
unum HSBC og Royal Bank of Scot-
land, vegna Libor-vaxtasvindlsins.
Yfirmenn bankanna verða yfirheyrð-
ir á næstunni af embætti saksóknara
í New York ríki og Connecticut, að
því er fram kemur í frétt Breska rík-
isútvarpsins (BBC). Í kjölfar yfir-
heyrslna og gagnaupplýsinga munu
yfirvöld taka ákvörðun um hvort rétt
sé að ákæra bankanna fyrir glæp-
samlegt athæfi.
Aðrir bankar sem verða boðaðir í
yfirheyrslur eru Barclays, Citigro-
up, Deutsche Bank, JPMorgan og
UBS. Í frétt Daily Telegraph er haft
eftir einum sérfræðingi að það hafi
komið á óvart að öllum bönkunum
hafi verið stefnt samtímis.
Rannsóknin byggist á grun um að
minnsta kosti einn bankanna hafi átt
í samstarfi við breska bankann
Barclays, sem var sektaður nýverið
um 290 milljónir punda fyrir að hafa
beitt ólögmætum aðferðum við að
hafa áhrif á Libor millibankavexti.
hordur@mbl.is
AFP
Kauphöll Libor-vaxtasvindlið teygir anga sína víða og liggja fjölmargir
bankar undir grun um að hafa átt í samstarfi við Barclays í Bretlandi.
Bönkum stefnt
vegna vaxtasvindls
Bandarísk yfirvöld stefna 7 bönkum
bréfin. Og því er erfiðara að fá lán
fyrir hlutabréfakaupum í Össuri.
Þetta þýðir að ekki býðst að fjár-
festa fyrir lánsfé í færeysku félögun-
um í Kauphöllinni ásamt Hampiðj-
unni, HB Granda, Nýherja og
Century Aluminum Company.
Í Kauphöllinni eru fá félög og um-
fang viðskiptanna með bréfin eru alla
jafna lítil. Það er því ekki stór hluti af
hlutabréfakaupunum skuldsettur.
Umfangið af skuldsettu kaupunum er
ekki svipur hjá sjón miðað við hvern-
ig þetta var fyrir hrun, segir miðlari.
Það eru ansi margir fjárfestar t.d.
brenndir eftir uppsveifluna. Stærstu
eigendur fyrirtækjanna eru alla jafna
lífeyrissjóðir og fjárfestingarsjóðir
og þeir fjármagna þessar stöður sín-
ar í nær öllum tilfellum með eigin fé.
Lánskjörin eru, að sögn miðlara,
um 2,5-3,5% ofan á daglánavexti
Seðlabankans. Miðlari segir að það
geri um 7,5%-8% óverðtryggða vexti,
og annar nefnir að hlutabréfin þurfi
því að hækka töluvert yfir árið svo að
þetta borgi sig. Þeir segja að þessi lán
geti gefið vel í aðra hönd fyrir banka,
svo lengi sem skynsamlega sé að
þeim staðið.
Nokkur áhugi hefur myndast fyrir
skuldsettum fjárfestingum í hluta-
bréfum við skráningu félaga á hluta-
bréfamarkað, t.d. Haga og Iceland-
air. En aftur á móti var ekki mikið um
það við skráningu fasteignafélagsins
Regins, sem þýðir að menn hafa ekki
þorað að veðja á að bréfin myndu
hækka töluvert í kringum skrán-
inguna.
Raunar hafa menn einnig verið að
slá lán til að fjárfesta í skuldabréfum,
en mikil velta hefur verið á skulda-
bréfamarkaðnum eftir hrun. Það er
ódýrara að fjármagna skuldabréfin,
en vextirnir eru um 1% ofan á grunn-
vexti. Miðlarar segja að margir hafi
fjárfest fyrir lánsfé í skuldabréfum
eftir hrun. Árið 2010 töpuðu slíkir
fjárfestar töluverðum fjárhæðum,
eftir að Seðlabankinn tilkynnti um
vaxtaákvörðun sem kom fjárfestum á
óvart, fjárfestar töpuðu og bankarnir
tóku bréfin til sín með veðkalli. Miðl-
ari segir að ýmsir spákaupmenn hafi
tekið sér frí eftir það og hafi ekki sést
á markaðnum síðan.
Hægt að slá lán til að kaupa
í fjórum félögum í Kauphöll
Eftir hrun þurfti að leggja fram 50% eigið fé en hefur nú lækkað í um 25%
Þvottur Fyrirtækjum fer fjölgandi í Kauphöllinni og því er ágætt að hún sé skínandi fín. Fjárfestar bíða eftir að
Eimskip komi á markaðinn í haust – spennandi verður að sjá hvort margir spákaupmenn muni slá lán fyrir bréfum.
Morgunblaðið/RAX
Lán til hlutabréfakaupa
» Hægt er að taka 75% lán til
hlutabréfakaupa í fjórum fé-
lögum í Kauphöll.
» Fjárfestar verða að leggja
fram tryggingar.
» Þetta eru Icelandair, Marel,
Reginn og Hagar.
» Fjárfestar gátu tekið 50%
lán eftir hrun en svo hefur eig-
infjárframlagið lækkað í 25%.
BAKSVIÐ
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Bankarnir lána enn til kaupa á hluta-
bréfum í félögum í Kauphöllinni. Al-
mennt þarf að leggja fram um 25%
eigið fé til að taka lánin. Viðskiptavin-
irnir verða að leggja fram tryggingar
fyrir láninu, yfirleitt eru það pening-
ar. Eftir bankahrun urðu fjárfestar
að leggja fram um 50% eigið fé til að
taka slík lán, svo lækkaði hlutfallið í
33% og fyrir ári bauðst fjárfestum að
fjórfalda fjármuni sína til að fjárfesta
í fjórum félögum í Kauphöllinni. Það
eru því nokkur skráð félög sem ekki
er hægt að slá lán í bönkum til að
kaupa. Það eru einkum spákaup-
menn, en ekki t.d. stofnanafjárfestar,
sem kaupa hlutabréf með lánum en
umfang slíkra viðskipta er ekki mik-
ið, en hlutabréfamarkaðurinn er lítill.
Stærstu eigendur félaganna, þ.e.
lífeyrissjóðir og fjárfestingarsjóðir,
eru yfirleitt ekki skuldsettir. Þetta
segja verðbréfamiðlarar við Morgun-
blaðið.
Fyrirtækin sem auðveldast er að fá
lán til að kaupa í eru Marel, Iceland-
air, Hagar og Reginn. Það er vegna
þess að mesta lífið er í viðskiptum
með þau. Ef illa gengur og bréfin
lækka á að vera tiltölulega auðvelt að
selja bréfin. Össur er stórt félag í
Kauphöllinni og ætti í ljósi þess að
það er stórt arðbært alþjóðlegt félag,
að vera töluverð viðskipti með það–- á
íslenskan mælikvarða. Aftur á móti
er félagið einnig skráð í dönsku kaup-
höllina og viðskiptin hér eru í raun
byggð á undanþágu. Það er til að
mynda ekki viðskiptavakt með bréf-
in, það tryggir enginn banki að það
séu einhver lágmarksviðskipti með
!"# $% " &'( )* '$*
++,-.+
+./-,,
+0+-1.
+,-/23
01-14.
+/-.43
+00-2
+-4++5
+.1-32
+25-,,
+01-+
+..-24
+0+-23
+,-.1+
01-++/
+/-,14
+00-/2
+-4+5
+.1-..
+2/-2
015-.45/
+01-3,
+..-,+
+0+-/.
+,-.4,
01-+/5
+/-,4/
+03-1.
+-4012
+.+-20
+2/-.+
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á