Morgunblaðið - 17.08.2012, Síða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2012
✝ Ólafía JónínaGísladóttir
fæddist á Hóli,
Ólafsfirði, 15. ágúst
1928. Hún lést á
Garðvangi 5. ágúst
2012.
Foreldrar henn-
ar voru Gísli Stefán
Gíslason frá Minn-
holti í Fljótum f. 5.
desember 1897, d.
26. mars 1981 og
Kristín Helga Sigurðardóttir frá
Vík í Héðinsfirði f. 6. júní 1897, d.
10. september 1986.
Ólafía átti 10 systkini og af
þeim eru 7 látin, þau Anna Lilja,
Sigurður Halldór, Björn, Ingi-
björg Soffía, Ásta og Guðrún Sól-
rún.
Eftirlifandi systkini eru: Gísli
Kristinn, Halldóra Guðrún, Pet-
rea Aðalheiður og Guðmundur
Jón.
Ólafía giftist 6. júní 1958 Há-
koni Þorvaldssyni frá Vík-
urbakka á Árskógsströnd í Eyja-
firði, f. 8. ágúst 1930. Foreldrar
hans voru Þorvaldur Árnason f.
on Örn, móðir þeirra er Margrét
Arnbjörg Valsdóttir. Ingvi Þór,
maki Eyrún Jana, dætur þeirra
eru tvíburarnir Hildur Rún og
Hekla Sif. Fyrir átti Ingvi Þór
Arnór Inga, móðir hans er Berg-
lind Skúladóttir. Erna Há-
konardóttir, unnusti Óli Ragnar
Alexandersson. 3) Hilmar f. 26.
júlí 1963, maki Þórunn Guð-
mundsdóttir f. 16. apríl 1966.
Dætur þeirra eru Þórdís Birna
og Sunna Dís.
Óla, eins og hún var kölluð,
ólst upp á Hóli í Ólafsfirði og
lauk skyldunámi sínu þar. Hún
fór í húsmæðraskólann á Löngu-
mýri, þar eignaðist hún Birgi.
Árið 1953 liggur leiðin til Kefla-
víkur á vetrarvertíð og þar kynn-
ist hún eiginmanni sínum og sett-
ust þau síðar að í Keflavík. Þar
fæddust börn þeirra Hildur og
Hilmar. Á starfsævi sinni var Óla
að mestu leyti heimavinnandi
meðan börnin voru að alast upp
en síðar vann hún við fiskverkun
bæði í eigin atvinnurekstri og hjá
öðrum. Sem ung kona starfaði
hún við síldarsöltun á Siglufirði
og Ólafsfirði. Hjúskaparár sín
bjó hún í Keflavík, lengst af að
Háaleiti 19 en flutti á Vall-
arbraut 10 árið 2005.
Útför Ólafíu fer fram frá Ytri-
Njarðvíkurkirkju í dag, 17. ágúst
2012, kl. 13.
22. apríl 1900, d. 16.
september 1988 og
Sigríður Þóra
Björnsdóttir f. 2.
nóvember 1903, d.
24. nóvember 1984.
Ólafía og Hákon
eignuðust tvö börn
saman en fyrir átti
Ólafía einn son með
Vilhjálmi Þórhalls-
syni: 1) Birgir f. 14.
apríl 1950, maki
Ólafía Sigríður Friðriksdóttir f.
30. október 1948. Fyrir átti
Ólafía Sigríður dæturnar Sig-
rúnu Öldu, maki Snorri Snorra-
son, börn þeirra eru Dagmar,
Birgir Snorri og Stefán Rúnar og
Hafdísi, maki Árni Brynjólfur
Hjaltason, börn þreirra eru Frið-
rik, Guðrún Lára og Ólafía Sig-
ríður. Saman eiga þau Kristínu
Helgu. 2) Hildur Guðrún f. 6. des-
ember 1958, maki Hákon Örn
Matthíasson f. 9. desember 1956.
Þeirra börn eru Hákon Ólafur,
maki Kolbrún Ída, dóttir þeirra
er Telma Lind, fyrir átti Hákon
Ólafur tvíburana Val Þór og Ar-
Elsku mamma mín, þá er kom-
ið að kveðjustund. Hugurinn hef-
ur reikað undanfarna daga og
minningarnar eru margar, falleg-
ar og góðar sem ég á og mun
geyma í hjarta mínu. Síðustu árin
þín voru þér erfið elsku mamma
og sárt fyrir okkur að horfa á.
Pabbi stóð eins og klettur við hlið
þér, hélt í höndina á þér og studdi
allt til loka.
Þér þakka ég móðir, fyrir trú og
tryggð.
Á traustum grunni var þín hugsun
byggð.
Þú stríddir, unz stríðið enda var.
Og starf þitt vott um mannkærleika
bar.
Hvíl þig, móðir, hvíl þig, þú varst
þreytt.
Þinni hvíld ei raskar framar neitt.
Á þína gröf um mörg ókomin ár.
Ótal munu falla þakkartár.
(J.M.B.)
Ég sendi stelpunum á Selinu
innilegt þakklæti fyrir hvað þið
reyndust mömmu vel og léttuð
henni lífið síðustu árin. Einnig vil
ég þakka starfsfólkinu á Garðv-
angi, þar sem mamma dvaldi síð-
ustu mánuði, fyrir góða umönnun
og hlýhug í hennar garð.
Takk fyrir allt elsku mamma
mín.
Guð geymi þig.
Þín,
Hildur.
Elsku Óla mín, nú er að
kveðjustund komið. Kveð ég hér
yndislega og góða konu sem hef-
ur reynst mér vel.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Ég minnist Ólu með mikilli
gleði og kveð hana með þakklæti í
huga.
Þinn tengdasonur,
Hákon Örn.
Elsku amma mín, það er með
söknuði sem ég kveð þig.
Síðustu ár hafa verið skrýtin
en margar minningar rifjast upp
þegar ég hugsa til þín amma mín.
Allar frábæru stundirnar á Háa-
leitinu hjá þér og afa þar sem ég
var mikið hjá ykkur. Og einnig
tíminn sem ég bjó í kjallaranum
hjá ykkur, þar var stjanað í
kringum mig eins og ég byggi á
lúxus hóteli. Þakklátur er ég fyrir
að við fjölskyldan fórum öll með
þér og afa í þína síðustu utan-
landsferð til Spánar 2008 þegar
veikindi þín voru á byrjunarstigi.
Elsku amma mín, ég mun aldr-
ei gleyma þegar ég kom til þín
nokkru dögum áður en þú kvadd-
ir og varst farinn að veikjast mik-
ið, þegar ég hélt í hönd þína og þú
kreistir mína hönd og ég sagði að
það vantaði sko ekki kraftinn í
þessar hendur og þú hlóst og
brostir svo breitt. Mér finnst það
vera forréttindi að hafa verið hjá
þér meira og minna síðustu tvo
sólarhringana á Garðvangi áður
en þú kvaddir þennan heim.
Elsku amma mín, ég trúi því að
nú sértu komin á góðan stað og
getur aftur farið að vera þú sjálf.
Elsku amma, ég kveð þig með
söknuði og miklu þakklæti.
Hér að hinstu leiðarlokum
ljúf og fögur minning skín.
Elskulega amma góða
um hin mörgu gæði þín.
Allt frá fyrstu æskudögum
áttum skjól í faðmi þér.
Hjörtun ungu ástúð vafðir
okkur gjöf sú dýrmæt er.
Hvar sem okkar leiðir liggja
lýsa göfug áhrif þín.
Eins og geisli á okkar brautum
amma góð, þótt hverfir sýn.
Athvarf hlýtt við áttum hjá þér
ástrík skildir bros og tár.
Í samleik björt, sem sólskinsdagur
samfylgd þín um horfin ár.
Fyrir allt sem okkur varstu
ástarþakkir færum þér.
Gæði og tryggð er gafstu
í verki góðri konu vitni ber.
Aðalsmerkið: elska og fórna
yfir þínum sporum skín.
Hlý og björt í hugum okkar
hjartkær lifir minning þín.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Þinn
Hákon Ólafur.
Í dag kveð ég bestu ömmu í
heimi hana Ólafíu Jónínu Gísla-
dóttur með miklum söknuði og
gríðarlegu þakklæti fyrir að hafa
kynnst eins yndislegri konu eins
og hún amma Óla var. Á mínum
yngri árum eyddi ég ófáum
stundum hjá ömmu og afa á Háa-
leiti 19, þar leið mér alltaf svo vel
og hún amma tók alltaf svo vel á
móti litla ömmugullinu sínu.
Hvert skipti sem komið var á
Háaleitið til þeirra vantaði ekki
kræsingarnar handa manni enda
kom maður á hverjum einasta
degi til ykkar í hádegismat, það
var alltaf nóg á borðum. Stundum
kom ég með allan vinkonuhópinn
með mér en það fannst þér ekki
verra því þér þótti svo gaman að
gefa svöngum munnum að borða
og það gladdi þig ennþá meira því
meira sem var borðað.
Þú hugsaðir alltaf svo vel um
ömmubörnin þín öll, enda sóttust
þau í að vera hjá ykkur afa og þú
varst alltaf svo glöð að fá okkur.
Svo fannst ykkur afa svo gaman
að ferðast en þið fenguð ekki oft
að fara tvö saman því alltaf var
ein lítil hnáta með í ferð. Það var
alltaf svo gaman með ykkur.
En síðastliðin ár hafa verið erf-
ið eftir að þú hvarfst smátt og
smátt inn í heim Alzheimer-sjúk-
dómsins. Síðastliðinn mánuður
hefur verið mér erfiður. Það var
erfitt að horfa upp á ömmu sína
hraka í veikindunum með hverj-
um deginum. En síðasta skiptið
sem ég kom til þín á Garðvang
þegar þú varst vakandi er mér
mjög minnisstætt því þá var sól-
ríkur dagur og okkur mömmu
fannst tilvalið að fara með shake
handa þér, það gladdi mitt litla
hjarta hvað þú varst glöð að fá ís
og það var eins og þú hefðir aldrei
fengið neitt eins gott.
Elsku amma, þó söknuðurinn
sé mikill og erfitt sé að kveðja þig
þá veit ég að þér líður vel núna.
Minning þín lifir ávallt í hjarta
mér.
Þú ert besta amma mín
Alltaf svo sæt og fín
Heimilið þitt var svo flott
Og hjá þér var allt svo gott
Alltaf þegar eitthvað var að
Varstu alltaf til í að leysa það
Stundum við vorum saman tvær
Og afi var alveg orðinn ær
Því við höfðum alltaf svo gaman
Þegar við vorum saman
Þér þótti gaman að rúnta
Og líka þig að punta
Þú elskaðir afa að öllu hjarta
Og ekki var hann að kvarta
Þú varst svo góð amma
Ég vona að ég verði eins góð
mamma
Að lokum þakka ég þér
Fyrir allt sem þú gafst mér
Og nú er komið að kveðjustund
Því þú ákvaðst að fá þér
fegurðarblund.
(E.H.)
Ég elska þig amma mín.
Þín ömmustelpa.
Erna.
Í dag kveð ég ömmu mína,
Ólafíu Jónínu Gísladóttur. Ég
varði mörgum stundum hjá
ömmu Ólu og afa Konna þegar ég
var yngri enda var maður alltaf
velkominn á Háaleitið. Amma sá
til þess að maður fengi nóg að
borða og yfirleitt borðaði ég yfir
mig. Um tíma bjó ég hjá ömmu og
afa á Háaleitinu. Ég flutti í kjall-
arann ásamt Arnóri Inga syni
mínum. Hótel amma er besta hót-
el sem ég hef verið á. Ég skildi
stundum eftir sokka og buxur á
gólfinu og ekki brást það að þeg-
ar ég kom heim að loknum vinnu-
degi var búið að taka fötin af gólf-
inu, skipta á rúminu og búið að
þrífa og strauja fötin mín, hún var
meira að segja búin að strauja
nærbuxurnar mínar og sokkana.
Amma vildi alltaf að við feðgar
borðuðum hjá henni og ekki
leiddist Arnóri að fara upp til
ömmu löngu til þess að fá sér
brúnköku sem var auðvitað besta
brúnkakan í heiminum.
Amma veiktist svo af alzheim-
er árið 2005. Líkamlega var
amma alltaf frekar hraust en
sjúkdómurinn ágerðist smátt og
smátt. Afi minn er hetja, hann
hefur hugsað um hana allan
þennan tíma eða þar til hún fór á
Garðvang í byrjun júní síðastlið-
inn. Amma byrjaði í hvíldarinn-
lögn en fékk síðan fast pláss í júlí.
Þegar ég kom til ömmu mánu-
daginn 30. júlí sl. hafði rofað að-
eins til hjá henni. Hún þekkti mig
og talaði svolítið við mig. Hún tal-
aði um það að hún væri bráðum
að fara og hún mundi hitta mig að
handan.
Hún kyssti mig svo í bak og
fyrir og vinkaði þegar ég fór.
Fimmtudaginn 2. ágúst kvaldist
amma mikið og voru henni gefin
verkjalyf svo að hún gæti slakað
á, hún sofnaði og vaknaði ekki aft-
ur. Við vöktum yfir henni næstu
sólarhringana og var það svo að
morgni sunnudagsins 5. ágúst að
hún kvaddi. Það var mikill friður
með henni þegar hún fór.
Ég vil þakka starfsfólkinu á
Garðvangi fyrir frábært starf og
að hafa hugsað vel um ömmu
þessa mánuði sem hún var hjá
þeim. En elsku amma mín, ég
mun alltaf elska þig og ég veit að
þú átt eftir að passa öll lang-
ömmubörnin þín eins og þú pass-
aðir okkur hin. Ég mun hugsa vel
um afa. Takk fyrir allt og við
sjáumst að handan.
Ingvi Þór Hákonarson.
Langamma góð
Ég kveð þér eitt ljóð
Til að tjá mína ást til þín
Þú ert mín stytta og stoð
Skilur kærleikans boð
Þá ég trúi þér vel
Því hver manneskja sér
Hversu reynd og gáfuð þú ert
Þú hefur þolað svo margt
Enginn lúxus né skart
En lífið er mikils vert
Þú ert fyrirmynd mín
Ég oft hugsa til þín
Þú hefur svo fallega sál
Þú ert stór partur af mér
Og ég vonandi af þér
Að dýrka þig er sko minnsta mál
Elsku langamma Óla, þín verð-
ur sárt saknað. Hvíldu í friði.
Þín langömmubörn,
Arnór Ingi, Hildur Rún
og Hekla Sif.
Elsku besta amma langa okk-
ar.
Okkur finnst mjög leiðinlegt að
þú sért farin frá okkur, en við vit-
um að þér líður núna vel á himn-
um og ert ekki veik lengur. Við
fengum alltaf eitthvað nammi hjá
þér þegar við komum í heimsókn,
oftast súkkulaðirúsínur og okkur
fannst það rosalega gaman. Við
elskum þig amma langa.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Þín langömmubörn,
Aron Örn, Valur Þór
og Telma Lind.
Á sólríkum sunnudagsmorgn-
inum 5. ágúst sl. kvaddi Óla
frænka eins og hún var ávallt
kölluð af öllum í fjölskyldu minni.
Óla frænka var mér mjög kær
enda hluti af mínu lífi alla tíð. Þær
systur mamma mín og Óla voru
alla tíð mjög nánar, en báðar fóru
þær ungar á vertíð suður og
fundu þar sína maka og settust
báðar að í Keflavík. Þær voru
mjög duglegar að rækta samband
fjölskyldnanna og voru að ég held
í daglega í sambandi meðan
heilsa þeirra leyfði, Óla frænka
og hennar fjölskylda voru t.d.
alltaf með okkur á öllum gleði- og
sorgarstundum í lífi okkar, öllum
stórveislum og afmælum, jafnvel
eftir að mín börn fóru að halda
veislur voru þau að sjálfsögðu
með.
Óla frænka hefur reynst mér
vel í gegnum árin og áttum við
margar góðar stundir saman,
sem ég er mjög þakklát fyrir.
Það var mér þungbært þegar
hún greindist með þennan erfiða
sjúkdóm alzheimer og að horfa á
hana hverfa frá okkur smátt og
smátt alveg eins og gerðist hjá
mömmu en það tók svo stuttan
tíma hjá Ólu minni, en ekki leið ár
á milli andláts þeirra systra.
Óla var húsmóðir af bestu gerð
og hlúði vel að sínum, enda var
mjög vel hugsað um hana í henn-
ar veikindum og Konni minn, þú
átt heiður skilinn fyrir hvað þú
hafðir óþrjótandi þolinmæði og
hafðir hana alltaf fína og sæta,
einmitt það sem hún hefði viljað.
Hún hafði mjög gaman af að
ferðast og gerðu þau hjónin mikið
af því bæði hérlendis sem erlend-
is. Þó stóðu ferðirnar í Ólafsfjörð-
inn alltaf upp úr, en hér á árum
áður var pakkað niður í tösku á
vorin og farið með börnin í fjörð-
inn fagra þar sem létt var undir
með foreldrum í heyskapnum og
farið aftur suður eftir réttir á
haustin þegar við börnin þurftum
að fara í skóla.
Ég get ekki annað en minnst á
æðruleysi þeirra bræðra Hákons
Óla og Ingva Þórs sem sátu hjá
ömmu sinni ásamt fleiri aðstand-
endum þangað til yfir lauk. Hafið
þökk fyrir það.
Sár er kveðjustundin
samt hef ég þá trú
að við hittumst aftur
þá endar lífsins brú.
Ég vil gefa þér allt það aftur
sem áður gafstu mér
kærleikann, traustið og trúna
og tryggðina í hjarta þér.
Það skal fylgja þér ferðina löngu
uns finnumst við á ný
á sólbjörtum sumarlöndum
þar sjást ekki haust eða ský.
(Ragna Steinunn Eyjólfsdóttir.)
Elsku Konni, Biggi, Hildur,
Hilmar og fjölskyldur ykkar,
sendi ykkur mínar innilegustu
samúðarkveðjur. Megi góður guð
styrkja ykkur og styðja.
Ingibjörg Magnúsdóttir.
Ólafía Jónína
Gísladóttir
HINSTA KVEÐJA
Elsku amma mig langar
að kveðja þig með þessu
fallega ljóði.
Í dagsins önnum dreymdi mig
þinn djúpa frið, og svo varð nótt.
Ég sagði í hljóði: Sofðu rótt,
þeim svefni enginn rænir þig.
(Steinn Steinarr.)
Þín verður sárt saknað.
Hvíldu í friði.
Kristín Helga.
Hún móðuramma mín Katrín
Aðalbjörnsdóttir hefði orðið 90
ára í dag en hún dó fyrir aldur
fram árið 1986 aðeins 64 ára göm-
ul. Hún ólst upp í Reykjavík, var
dóttir Aðalbjörns Stefánssonar
prentara og kjarnorkukonunnar
Þorbjargar Grímsdóttur sem lifði
ömmu mína og komst á 105. ald-
ursár.
Amma ólst upp í 8 systkinahópi
á Skólavörðustígnum í Reykjavík
en örlögin drógu hana austur í
Rangárvallasýslu þar sem hún
kynntist afa mínum og nafna,
Kjartani Einarssyni trésmið frá
Sperðli í Vestur-Landeyjum. Afi
lést einnig um aldur fram á gaml-
Katrín
Aðalbjörnsdóttir
✝ Katrín Að-albjörnsdóttir
andaðist 10. júlí
1986. Hún
fæddist í Reykja-
vík 17.
ágúst 1922.
Katrín var dóttir
hjónanna Þor-
bjargar
Grímsdóttur frá
Seli, og Aðalbjörns
Stefánssonar
prentara.
ársdag 1961 aðeins
39 ára gamall. Afi
var gæðamaður var
mér sagt, prúður og
traustur og var það
efalaust ömmu mikill
harmur að missa
mann sinn svo ung
frá tveimur ungum
börnum. Amma
þraukaði þó án alls
félagslegs kerfis en
með eigin rammleik
og festu kom hún börnum sínum
til manns og eru afkomendur
hennar orðnir á þriðja tuginn.
Mín æska einkenndist af mikl-
um samskiptum við ömmu. Við
bræður vorum ávallt velkomnir á
Hvolsvöll til hennar og það nýtt-
um við okkur og sóttum mikið til
hennar. Amma vann mikið enda
ekki annað í boði og fór ég oft með
henni að skúra í Hvolnum og í
Landsbankanum en eftir þá vinnu
alla tóku við endalausar gæða-
stundir helgi eftir helgi jafnt á
vetri sem sumri. Amma Kata var
minn allra besti vinur og ég elsk-
aði hana og virti og sakna hennar
alveg stöðugt þó langt sé um liðið.
Við fjölskyldan fundum fyrir
endalausri væntumþykju og ást
og tími var eitthvað sem amma
átti nóg af.
Amma var trúföst og staðföst
og tók ég hana mér til fyrirmynd-
ar eins vel og ég gat og ef eitthvað
á bjátaði þegar ég eltist þá leitaði
ég til hennar, hún var mín sanna
fyrirmynd og hetja. Allar stund-
irnar eru mér sem gull-stundir í
minningunni, nógur tími, nóg að
borða, skemmtileg barnatónlist í
stofunni, fótbolti í garðinum,
brauð með malakoffi, hláturrok-
urnar, pólitísk umræða eða hvað-
eina sem vert var að fara yfir. Hún
var hreint út sagt dásamleg mann-
eskja. Við gerðum samkomulag
um að ég héldi með Val úr Reykja-
vík líkt og hún enda ólst hún upp
með Alberti Guðmundssyni og
bróðir hennar Þorbjörn eða Tobbi
var mikill Valsmaður. Ég fékk
hana í staðinn til þess að halda
með Arsenal enda lék Albert með
Arsenal um tíma.
Amma var mikil sjálfstæðis-
kona og trúði kjörorði flokksins
stétt með stétt og þetta meðtók ég
með öllu. Ég vil á þessum tíma-
mótum þakka henni uppvaxtarár-
in mín sem hún á alveg skuldlaust
ásamt mínum yndislegu foreldr-
um. Einn minn mesti gleðidagur í
lífinu var þegar ég hafði aðstöðu
til þess að gefa einni af mínum
fjórum dætrum nafn hennar og
ber hún það nafn með reisn. Minn-
ing hennar lifir að eilífu, ég elska
þig amma mín.
Kjartan Björnsson.