Morgunblaðið - 17.08.2012, Page 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2012
Fjórða Step Up-kvikmyndin verður
frumsýnd í dag í Sambíóunum og
ber hún titilinn Step Up Revolution.
Í myndinni segir af ungri stúlku
sem dreymir um að gerast atvinnu-
dansari í Miami. Hún hittir fyrir
dansarann Sean en hann fer fyrir
danshópnum The Mob sem dansar
víða um borgina. Emily og Sean
fella hugi saman og færist fjör í
leikinn þegar til stendur að rífa
einn uppáhaldsdansstað hópsins.
Leikstjóri er Scott Spear og í aðal-
hlutverkum Kathryn McCormick,
Ryan Guzman, Adam G. Sevani,
Peter Gallagher, Stephen Boss og
Mia Michaels.
Metacritic: 43/100
Dansari Úr Step Up Revolution.
Step Up Revo-
lution frumsýnd
Stuttmyndin Hákot verður frum-
sýnd í dag kl. 18 í Tjarnarbíói en hún
er byggð á sögu steinbæjarins Há-
kots í Grjótaþorp-
inu í Reykjavík.
Myndin var tekin
upp í grænu rými
svo hægt væri að
breyta útliti bæj-
arins og er því
blanda leikins
efnis og tölvu-
gerðs. Höfundar
myndarinnar eru
Nína Cohagen,
Sigurður Traustason og Eva Sólveig
Þórðardóttir - sem eiga það sameig-
inlegt að hafa lokið námi við Marg-
miðlunarskólann - Dagur de’Medici
Ólafsson kvikmyndagerðarmaður
og Bryndís Hreiðarsdóttir mann-
fræðinemi en þau hlutu í fyrravor
styrk frá Evrópu unga fólksins,
styrkjaáætlun sem ætluð er ungu
fólki í Evrópu, til að gera myndina.
„Stuttmyndin er byggð á Hákoti
sem er gamall steinbær í Grjóta-
þorpinu og stendur þar enn. Við not-
uðum hann sem innblástur en í sögu-
þráðinn tvinnuðum við líka sögur af
fólki, minningum, skoðuðum ævi-
sögur og tókum viðtöl,“ segir Bryn-
dís. Þá hafi þau skoðað atburði 20.
aldarinnar og reynt að fá tilfinningu
fyrir hverju tímabili fyrir sig og
leyft ímyndunaraflinu líka að njóta
sín. Bryndís segir myndina hafa að
geyma fimm örmyndir. „Hver mynd
gerist á ákveðnum tíma. Þetta byrj-
ar 1893 og í rauninni eru þetta ör-
sögur af því fólki sem bjó í húsinu á
þeim tíma þannig að fólkið breytist
og húsið breytist og náttúrlega það
sem fólk er að kljást við líka.“
Íbúð sem var áður verkstæði
„Við vinkona mín, Nína, leigðum
rosa krúttlega íbúð á Bergstaða-
strætinu og komumst að því að þar
hafði verið verkstæði einhvern tíma.
Okkur fannst það svo magnað,
hvernig þessi krúttlega íbúð hafði
breyst og hvernig sama húsið hefði
átt sér mörg hlutverk og breyst í
gegnum tímann. Þá fórum við að
pæla í því hvort ekki væri gaman að
gera stuttmynd sem gæfi fólk inn-
sýn í sama húsið á ólíkum tíma,“
segir Bryndís um kveikjuna að
myndinni. Mikil vinna sé að baki,
rúmt ár, þar sem eftirvinnsla mynd-
arinnar hafi verið flókin. „Okkur
langar til að senda hana á hátíðir, ís-
lenskar stuttmyndahátíðir og er-
lendar líka. Svo erum við að vinna
að heimasíðu þar sem við ætlum að
sýna brot úr myndinni og vera með
fræðslu um Reykjavík á 20. öldinni,“
segir Bryndís. Á Facebook-síðu Há-
kots, facebook.com/hakotfilm, má
sjá myndir frá tökum.
helgisnaer@mbl.is
Saga Hrafnhildur Steindórsdóttir, einn þeirra 20 áhugaleikara sem léku í
stuttmyndinni. Hrafnhildur var sex ára þegar myndin var tekin.
Fimm örsögur af
íbúum Hákots
Stuttmynd um steinbæ í Grjótaþorpi
Bryndís
Hreiðarsdóttir
Júlía Margrét Alexandersdóttir
julia@mbl.is
„Þetta er stór viðurkenning fyrir
það sem ég hef verið að gera síðustu
árin og mikill heiður,“ segir Bene-
dikt Kristjánsson tenórsöngvari.
Benedikt hlaut styrk úr minning-
arsjóði Jean Pierre Jacquillat í gær
og tók við viðurkenningunni í Lista-
safni Sigurjóns Ólafssonar. Til-
gangur sjóðsins er að styrkja efni-
legt tónlistarfólk til að afla sér
aukinnar menntunar og halda á lofti
nafni Jean Pierre Jacquillat, fyrr-
verandi aðalstjórnandi Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands.
Náð miklum árangri
Benedikt hefur vakið athygli hér
heima og ytra en hann stundar nám
við tónlistarháskólann Hanns Eis-
ler í Berlín. Benedikt hlaut mikið lof
fyrir hlutverk sitt sem guð-
spjallamaðurinn í Jóhannesarpassíu
Bachs sem hann söng með Mót-
ettukór Hallgrímskirkju undir
stjórn Harðar Áskelssonar. Bene-
dikt var valinn bjartasta vonin á Ís-
lensku tónlistarverðlaununum í
flokki sígildrar tónlistar og sam-
tímatónlistar á síðasta ári en áður
hafði hann unnið til 1. verðlauna í
Internationaler Greifswalder Bach-
Gesang Wettbewerb keppninni.
Benedikt segir áhugann á söng
hafa kviknað fyrst í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð. „Ég var
líklega 17 ára þegar ég vissi að ég
vildi leggja sönginn fyrir mig. Nei,
mér fannst ég nú ekkert sérstaklega
góður söngvari þá en ég hafði trú á
að ég gæti orðið það og að ég hefði
það í mér að vinna ötullega að því.
Faðir minn gaf mér geisladisk með
klassískum söngvara og það má
segja að sá diskur og söngur með
kór Menntaskólans við Hamrahlíð
hafi vakið þennan áhuga í byrjun.
Kórinn er jafnframt einn minn helsti
áhrifavaldur.“
Ungur og önnum kafinn
Tenórsöngvarinn er 24 ára gamall
en söngnámið hóf hann við Söngskól-
ann í Reykjavík hjá Sibylle Köll og
lærði síðar hjá móður sinni, Margréti
Bóasdóttur. Benedikt varð jafnframt
hennar síðasti nemandi áður en hún
lagði kennarastarfið á hilluna. Fram-
haldsnámi í söng lauk hann fyrir 5 ár-
um frá Tónlistarskólanum í Reykja-
vík.
Benedikt hefur sem fyrr segir haft
svo mikið að gera í söngnum und-
anfarið ár að hann hefur þurft að hafa
sig allan við til að geta sinnt skól-
anum líka. Framundan er Hugo
Wolf-ljóðadúókeppni í Stuttgart sem
Benedikt og Bjarni Frímann Bjarna-
son taka þátt í í október.
„Það mætti halda að ég væri vinnu-
alki,“segir Benedikt og hlær. Í sept-
ember kem ég fram á Alte-Musik-
hátíðinni í Knechtstedten, ásamt
tríóinu La cara cosa. Ég er að syngja
í Fílharmoníunni í Berlín í nóvember
og svo í Noregi og Póllandi.“ Æfingar
eru hafnar fyrir stórt verkefni. Bene-
dikt fer með aðalhlutverk í barna-
óperu sem sett er upp í Staatsóper-
unni í Berlín, Das tapfere
Schneiderlein, eftir Wolfgang Mitte-
rer. Sýningar í desembermánuði
verða nær daglega. Milli jóla og ný-
árs syngur Benedikt svo fyrir Íslend-
inga í Hörpu með Mótettukórnum og
Herði Áskelssyni.
Þessa dagana er Benedikt í fríi
heima hjá foreldrum sínum í Skál-
holti en faðir hans, Kristján Valur
Ingólfsson, er vígslubiskup þar. „Ég
syng nú minna þegar ég er í fríi,
heima í Skálholti er ég með flygil og
dunda mér við að skoða einhverjar
nótur en svo er ég með önnur áhuga-
mál og horfi til að mynda mikið á fót-
bolta.“ Íslendingar eiga þess kost á
að heyra í söngvaranum en 7. og 13.
september syngur hann í Selinu á
Stokkalæk. Hann flytur lög eftir
Hugo Wolf og Franz Schubert og
Bjarni Frímann spilar á slaghörpu.
Fer með titilhlutverk
í barnaóperu í Berlín
Hlaut styrk úr minningarsjóði Jean Pierre Jacquillat
Morgunblaðið/Eggert
Styrkhafinn Benedikt Kristjánsson tenórsöngvari tók við styrk úr minning-
arsjóði fyrrverandi aðalstjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Breiðskífan
Cheek Mountain
Thief með
hljómsveitinni
Cheek Mountain
Thief kemur út í
dag á vegum
Kimi Records en
forsprakki
hljómsveit-
arinnar er breski tónlistarmað-
urinn Mike Lindsay úr hljómsveit-
inni Tunng. Platan hefur að geyma
tíu lög eftir Lindsay og er tónlistin
sögð folk-tónlist með „vægum sý-
ruáhrifum“. Ýmsir tónlistarmenn
lögðu hljómsveitinni lið við upp-
tökur, m.a. Mugison og Mr. Silla.
Platan kemur út í Evrópu í dag á
vegum breska útgáfufélagsins Full
Time Hobby.
Cheek Mountain
Thief gefin út
Mike Lindsay
Huldukonur í ís-
lenskri tónlist
nefnist við-
burður sem fram
fer í sal Kven-
réttindafélagsins
á Hallveig-
arstöðum á
Menningarnótt
kl. 15. Verður
þar sagt frá lífi
og starfi fjög-
urra íslenskra kventónskálda og
tónlist þeirra flutt en tónskáldin
eru Olufa Finsen, Guðmunda Niel-
sen, Ingunn Bjarnadóttir og María
Brynjólfsdóttir.
Dagskráin er meistaraverkefni
Sigurlaugar Arnardóttur í hag-
nýtri menningarmiðlun við Háskóla
Íslands.
Huldukonur í
íslenskri tónlist
Sigurlaug
Arnardóttir