Morgunblaðið - 17.08.2012, Page 44
FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 230. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Hannes Smárason og Brynja …
2. Ógleymanleg augnablik …
3. Russell Crowe: Ísland rokkar
4. Fjögur vandræðaleg lógó
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hljómsveitin Ljótu hálfvitarnir
fagnar Menningarnótt um helgina
með tvennum tónleikum, í kvöld og á
morgun, á Café Rosenberg við Klapp-
arstíg. Tónleikarnir hefjast klukkan
22 bæði kvöldin.
Morgunblaðið/Kristinn
Ljótir hálfvitar
leika á Rosenberg
Guðrún Ósvíf-
ursdóttir fær nú
loksins að fara til
útlanda. Sýningin
Kjartan eða
Bolli?, leikgerð
Hallveigar Thor-
lacius byggð á
Laxdælu verður á
dagskrá leik-
húshátíðar 18. og 19. ágúst í Store
Liane í Svíþjóð og á hátíð í Turku í
Finnlandi í október. Sýningin var á
fjölum Þjóðleikhússins á liðnu leikári.
Guðrún Ósvífurs-
dóttir fer loks utan
Hápunktur dagskrár Listasafns
Reykjavíkur á Menningarnótt verður
gjörningur spænska listamannsins
Santiago Sierra í Hafn-
arhúsinu kl. 20. Hann
tilheyrir gjörningaröð
Sierra, Destroyed
Word, og felur í sér
eyðileggingu ál-
skúlptúrs sem
myndar bók-
stafinn L og
er 3,6 metra
hár.
Bókstafurinn „L“
eyðilagður
Á laugardag Austan og norðaustan 8-15 m/s, hvassast með SA-
ströndinni. Skýjað N- og A-til og dálítil súld með ströndinni, en
annars bjart með köflum. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á V-landi.
Á sunnudag og mánudag Austanátt og dálítil væta S- og A-til.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Dálítil rigning eða súld S- og A-lands, en
annars bjartviðri. Hiti 10 til 23 stig, hlýjast SV-til.
VEÐUR
Þór/KA vann gríðarlega mik-
ilvægan sigur á Breiðabliki í
Pepsideild kvenna í knatt-
spyrnu í gærkvöld, 2:1, og er
þar með komið með sex
stiga forskot á toppi deild-
arinnar þegar aðeins fjórar
umferðir eru eftir. Liðinu
dugar að vinna Aftureldingu
og Selfoss á heimavelli og
gera jafntefli við Fylki í loka-
umferðinni til að koma Ís-
landsbikarnum til
Akureyrar í fyrsta sinn. »4
Fyrsti titillinn
blasir við Þór/KA
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson
er að gera góða hluti á golfmóti í
Horsens í Danmörku sem er hluti af
Áskorendamótaröðinni. Eftir tvo
hringi er Birgir Leifur
í fimmta sæti en
hann er tveimur
höggum undir
parinu. »1
Góð spilamennska
hjá Birgi Leifi
Landsliðsmaðurinn Alfreð Finnboga-
son skrifaði í gærkvöld undir samn-
ing til þriggja ára við hollenska úr-
valsdeildarliðið Heerenveen. Alfreð,
sem hefur farið á kostum með
sænsku meisturunum í Helsinborg,
verður í læri hjá engum öðrum en
Marco Van Basten, sem gerði garðinn
frægan með hollenska landsliðinu,
Ajax og AC Milan á árum áður. »1
Alfreð í læri hjá Van
Basten hjá Heerenveen
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Guðrún Sóley Gestsdóttir
gudrunsoley@mbl.is
Áheitasöfnun vaskra hlaupara í
Reykjavíkurmaraþoni er orðin að
vinsælli hefð og drýgir framtakið
sjóði góðgerðafélaga umtalsvert á
ári hverju. „Alls eru 3.135 góð-
gerðahlauparar búnir að skrá sig
og við það bætast 19 boðhlaupslið
sem einnig hlaupa til góðs,“ segir
Gerður Þóra Björnsdóttir starfs-
maður Reykjavíkurmaraþons.
Þegar fréttin er skrifuð hafa
safnast 28.628.926 krónur sem
skiptast á milli 133 góðgerða-
félaga, en á sama tíma í fyrra
höfðu safnast 25.872.441 kr. „Við
erum ánægð með þátttökuna og
spennt fyrir hlaupinu,“ segir
Gerður Þóra.
Áheitasöfnunin stendur fram á
mánudag og að sögn Gerðar
standa vonir til þess að heildar-
upphæð nái 40 milljónum. „Við
búumst við að 40 milljónir muni
safnast, en alls söfnuðust 43 millj-
ónir í fyrra og þá var áheitasöfn-
unin á svipuðu róli og í ár. Lang-
mest kemur inn á lokasprettin-
um,“ segir Gerður Þóra.
Bætt forskráning
Reykjavíkurmaraþon bauð upp
á nýjung í greiðslufyrirkomulagi
áheita í ár. „Nú var í fyrsta skipti
hægt að millifæra áheit, en fyrri
ár var bara hægt að borga með
kreditkorti eða SMS-greiðslu.
Núna ættu því allir að geta heitið
á hlaupara,“ segir Gerður Þóra.
Almenn þátttaka í hlaupinu er
með besta móti í ár. „Meiri for-
skráning er í ár en í fyrra, en nú
hafa alls 10.358 manns skráð sig
til leiks, en á sama tíma í fyrra
höfðu 9.788 nýtt sér forskrán-
inguna,“ segir Gerður Þóra en á
hverju ári kjósa margir að skrá
sig þegar nær dregur hlaupi.
Þeim gefst kostur á að skrá sig á
skráningarhátíð hlaupsins í dag
milli kl. 10:00 og 19:00. Aldrei
hafa fleiri útlendingar skráð sig til
þátttöku. „Erlendir þátttakendur
hafa aldrei verið fleiri en í ár þeg-
ar skráðir eru 1.588 af 61 þjóð-
erni. Aldrei hafa þátttakendur af
jafn mörgum þjóðernum verið
skráðir til leiks,“ segir Gerður
Þóra.
Met í þremur vegalengdum
Fleiri met falla í ár. „Í mara-
þon, hálft og 10 km eru þegar
skráðir fleiri en tóku þátt í þeim
vegalengdum í fyrra en þá var
sett þátttökumet í þessum vega-
lengdum,“ segir Gerður. Veðurspá
fyrir keppnisdag er með besta
móti og mun sólin skína á hlaupa-
garpana ef spár rætast.
Safna krónum í hverju skrefi
Áheitasöfnun í
Reykjavíkurmara-
þoni gengur vel
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Sprett úr spori Alls hafa 3.135 góðgerðahlauparar þegar skráð sig í Reykjavíkurmaraþon sem fram fer á morgun.
Hver veit nema hlaupadrottningin sem brokkaði Ægisíðuna í gær hafi verið að undirbúa sig fyrir góðgerðahlaup.
Eins og gefur að skilja eru góðgerðafélögin sem heit-
ið er á hæstánægð með framlög góðgerðahlaup-
aranna. „Félögin eru mjög sátt með framlögin og
sækja í að vera með ár eftir ár. Mörg þeirra sýna
ánægju sína í verki, ýmist með því að fylgjast með
hlaupinu og hvetja þátttakendur eða senda þeim
skilaboð á hlaupastyrkur.is,“ segir Gerður Þóra og
bætir við að félögin sýni stuðning sinn með ýmsum
hætti. „Eitt félag lét til að mynda framleiða sérmerkt
buff fyrir sína hlaupara.“ Starfsfólk félaganna sýnir
líka gjarnan metnað í hvatningarstörfum. „Oft mynd-
ast mikil stemning innan hvers félags gagnvart því
að hvetja sína hlaupara, og fjölmennir hópar starfsmanna mæta og
hvetja þá áfram,“ segir Gerður.
Félögin sýna þakklæti í verki
HVETJA HLAUPARANA ÁFRAM
Gerður Þóra
Björnsdóttir