Helgafell - 01.11.1954, Blaðsíða 22
20
HELGAFELL
léreftinu byggir hann upp nýjan dýrðlegan veruleika, sem við e£ til vill
eigum erfitt með að skilja við fyrstu sýn. — En svo sannarlega sem lífið
sjálft er ívaf og uppistaða allra listaverka, í hvaða formi sem þau birtast,
svo gefur andinn einn efmnu það líf, sem gerir verkið að listrænm tján-
ingu. Því hver sem hugmyndin eða fyrirmyndm er, þarf verkið að vera
gætt lífsanda sköpunargleðinnar, eða því sem ég vil leyfa mér að kalla
hina fjórðu ,,dimension“, — hina fjórðu vídd eða svið hstaverksins. —
Með öðrum orðum: víðfeðmi andans, hvort heldur hann leitar inn á
rökkurlönd dulhyggjunnar, að ínnsta kjarna og dýpstu uppsrettu allrar
tilveru, — eða hann velur sér viðfangsefni úr efnisheiminum. — Eða
listamaðurinn beinlínis byggir sér sinn eigin heim af innri sýn skapandi
hugmyndaflugs, — gefur verkinu æðaslög lífsins, lnta skapgerðarinnar —
já, glóð tilfinninganna, því allt verður þetta svo undarlega lítils virði, ef
maður ekki — á bak við efnið finnur hjarta slá.