Helgafell - 01.11.1954, Page 60

Helgafell - 01.11.1954, Page 60
58 HELGAFELL Hér er kominn Hoffinn Guðmandur G. Hagalín — Bókfellsútgáfan 1954 Þetta bindi sjálfsævisögu Hagalíns er hið fjórða í röð'inni og mun að flestra dómi þeirra skemmtilegast. Hefst frásögnin að haustlagi, þar sem Hagalín stendur í Hafnarstræti, 17 ára gamall, og „glápir og gónir á hús og fólk og bíla, lágur, þrekvaxinn en þó holdgrannur stráklingur, hálsstutt- ur, en áberandi höfuðstór, hvíthærð- ur og síðhærður. Hann er nýkominn að vestan til undirbúnings væntan- legu náini í Menntaskóla Tteykjavík- ur og nær sagan yfir ])ann vetur og sumarið næsta. Er harla fróðlegt að fylgjast með höfundinum á könnun- arferðum hans í þessum nýstárlega heimi og lifa með honum hin fyrstu kynni af ýmsum þeim mönnum, er þá bar hæst í menningarlífi þjóðarinnar, en einkum bregður þó fyrir á þessari leið allfjölskrúðugum hópi ungra menntamanna, er síðar hafa komið við sögu, og á þó sú fvlking væntan- lega fyrir sér að stækka með næsta bindi, er að sinni munu verða hið síð- asta í þessum bálki. Hagalín sýnir l>að' enn í þessari bók hversu frábært sjón- minni hann hefur á persónur og at- burði, en sú gáfa hans er reyndar mð einsdæmum og blátt áfram lýgileg öll- um þeim, er ekki hafa sannreynt hana. Stundum hefur þótt á því bera, að þessi ágæti eðliskostur leiddi höfund- inn til fullmikillar nákvæmni í lýs- ingum smáatriða, en hvergi finnst mér slíks gæta í þessari bók, enda veit ég engan honum fremri í því að draga upp snöggar, ljóslifandi myndir, sem sérkenna viðfangsefnið á ótvíræðan og persónulegan hátt. 011 er ævisaga Hagalíns jöfnum höndum persónu- saga og aldarfarslýsing og einnig fvrii þá sök munu þessar bækur þvkja þvi fróðlegri sem lengra líður. T. G. íslenzkt gullsmíði Afmælisrit,, gefið út af skart- gripaverzlun Jóns Sigmunds- sonar við' lok hálfrar aldar starfsemi í okt. MCMLTV — Einkaútgáfa Afmælisrit eru síður en svo fágæt hér á landi, en hitt telzt til nýlundu að þau hafi á sér slíkan menningar- brag sem þessi fallega bók. Meginefni hennar er saga Islenzkrar gullsmíði frá öndverðu til vorra daga eftir Björn Th. Björnsson listfræðing og hefur eigi áður verið skrifað svo ýtarlega um þennan markverða þátt íslenzkrar listar og listiðnaðar. Björn er hug- kvæmur rithöfundur og ágætur stíl- isti, skrifar fallegt mál og klæðir jafn- an frásögn sína hugðnæmum búningi. Ef til vill hættir honum við að gerast á stöku stað' full skrúðmáll eins og þegar hann talar um að svo hafi virzt „sem röðull hins íslenzka kvensilfurs væri endanlega genginn til viðar“, bls. 51, en slík „hátíðlegheit“ koma reyndar svo sjaldan fyrir að vart er orð á þeim hafandi. Bitgerðinni fvlgir útdráttur á ensku auk þrjátíu og tveggja mynda af athyglisverðum list- munum og hafa þær verið gerðar sér- staklega fyrir þetta rit. Aðeins fá ein- tök bókarinnar munu vera til sölu og ættu bókasafnarar og listunnendur að tryggja sér hana í tíma, því slíkuni verður vitanlega mest eftirsjón að því að hafa látið hana ganga sér úr greip- um. T. G

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.