Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Page 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Page 2
Í fókus 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. 09. 2012 Mannlífið hverfist um sauðkindina þessa dagana. Það er líf og fjör í réttum um allt land og einn af þeim hamingjuríku blettum tilverunnar var í landrétti í Áfangagili á fimmtu- dag. „Þetta gekk fínt,“ segir Kristinn Guðnason í Árbæjarhjáleigu. Hann er fjallkóngur og var raunar fylgt eftir í sumar af þýskri sjónvarpsstöð, sem vinnur að heimildarmynd um þessa íslensku hefð. „Við fengum gott veður og það er nú það sem ræður úrslitum í þessu.“ Það var mikið af fólki og segir Kristinn gleðilegt að því fari fjölgandi eins og fénu. „Heimtur eru góðar og það kemur eitthað af fé af afréttunum í kring. Við erum í smölun í í Rangárvallaafrétti, en okkur finnst ólíklegt að það sé nokkuð fé eftir.“ pebl@mbl.is AUGNABLIKIÐ Morgunblaðið/RAX ALLT FYRIR SAUÐKINDINA FÓLKI OG FÉ FJÖLGAR Í RÉTTUM. GÓÐAR HEIMTUR OG VEÐURBLÍÐA Í ÁFANGAGILI. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Útgefandi Óskar Magnússon Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Þetta er ekkert flókið – þetta er bara erfitt, sagðivinkona mín um daginn. Þótt þessi orð hafi ekkiátt við um blaðaútgáfu þá eiga þau ágætlega við. Að gefa út helgarblað sem fólk vill lesa er að mörgu leyti hörkuvinna, það er á vissan hátt erfitt. En í raun ekki svo flókið. Það er gömul saga og ný að fólk vill lesa, sjá og heyra sögur af öðru fólki. Við erum forvitin um ann- arra hagi og við viljum heyra góðar sögur. Þær geta ver- ið tregafullar eins og frásögnin af leit Benjamíns H.J. Eiríkssonar að Veru Hertzsch. Þær geta fyllt okkur trú á hið góða eins og viðtalið við móðurina í Kópavogi sem horfir fram á veginn þrátt fyrir að tveir synir séu greindir með ólæknandi sjúkdóm. Við viljum vita hvert af öðru og okkur er ekki sama hvað verður um náung- ann. Svo er líka allt í lagi að hlæja og hafa gaman af líf- inu eins og forsíðufyrirsætan Gussi minnir okkur á. Myndir skipta máli og við stöndumst ekki mátið að rifja annað veifið upp gamlar myndir, eins og ný myndagáta ber vott um. Þrjár kynslóðir leikara hafa túlkað sömu karaktera í verkinu Á sama tíma að ári og við birtum myndir af þeim öllum. Það er ekkert flókið við það að segja góðar sögur, þótt það geti verið vandasamt. Þær geta komið úr heimi tískunnar, verið heilsutengdar eða ferðasögur. Við sem höfum lagt nótt við dag við að koma út nýju og endurbættu Sunnudagsblaði Morgunblaðsins velt- um okkur upp úr öllum hliðum daglegs lífs og leitumst við að varpa sögum af því fram á síðum blaðsins. Les- endur verða svo að meta hvernig til tekst. Eyrún Magnúsdóttir RABBIÐ Sögur af fólki fyrir fólk Laugardagur kl. 12-17, Hausthúll- umhæ Samtakanna ’78, í húsnæði samtakanna á Laugavegi 3. Þar verður meðal annars flóamarkaður, listamenn að selja verk sín, kaffi og vöfflur til sölu. Fjölskylduhjálp Ís- lands verður með glæsilegan vintage kjólamarkað og allt söluandvirði rennur óskipt til Fjölskylduhjálp- arinnar. Bókasafn ’78 verður með sektar- og samviskubitslausan dag. Í tilkynningunni segir: ef þú liggur á bókum, dvd eða öðru efni frá- bókasafninu okkar geturðu komið og laumað því í „nafnlausa“ kassann og sloppið við sektir og samviskubit. VIÐBURÐIR HELGARINNAR Hausthúllumhæ Laugardagur kl. 22 á Café Rosen- berg. „Komum heiminum í lag“ að- gangseyrir er 1000 krónur. Fram koma m.a. Jón Jónsson, Friðrik Dór og Védís Hervör. Með tónleikunum er sleginn lokatónninn í átakinu „Þróunarsamvinna ber ávöxt“ sem staðið hefur frá því á mánudag. Að átakinu standa m.a. ABC barna- hjálp, Afríka 20:20, Barnaheill – Save the Children á Íslandi, Barna- hjálp Sameinuðu þjóðanna – UNI- CEF á Íslandi, Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, Hjálparstarf kirkjunnar. Tónleikar Laugardagur kl. 13–18 „Evrópa fórnarlambanna: Kommúnisminn í sögulegu ljósi“ Alþjóðlega ráðstefna í Náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands, Öskju, stofu 132. Aðalræðumaður verður franski sagnfræðiprófess- orinn Stéphane Courtois, ritstjóri Svartbókar kommúnismans, sem kom út hjá Háskólaútgáfunni 2009. Þrír erlendir fyrirlesarar tala á ráð- stefnunni. Aðgangur ókeypis og öll- um heimill. Kommúnismi

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.