Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Qupperneq 4
Það ríkir mikil spenna og eft-
irvænting meðal sjálfstæðismanna
fyrir prófkjöri flokksins, sem nær
öruggt má telja að verði upp á
teningnum í flestum kjördæmum
landsins.
Ef marka má skoðanakannanir
hefur flokkurinn bætt við sig
miklu fylgi frá síðustu kosningum.
Það bendir til þess að þingmönn-
um flokksins muni fjölga verulega,
auk þess sem nokkrir þingmenn
hafa ákveðið að hætta þátttöku í
stjórnmálum.
Allt spilar þetta eflaust inn í
hversu margir eru að velta fyrir
sér framboði. Og víst er listinn á
þessari síðu ekki tæmandi.
Aðrir stjórnmálaflokkar standa
líka frammi fyrir vali á framboðs-
lista þessa dagana, en skoðana-
kannanir bera með sér að þar
verði þrengra um manninn.
arstjóri, og Erla Ósk Ásgeirsdóttir,
markaðsstjóri og varaþingmaður,
gefa ekki kost á sér.
Norðvesturkjördæmi
Mestur stuðningur virðist við að
tvöfalt kjördæmisráð velji listann,
þó að heyra megi á sumum viðmæl-
endum að þeir vilji prófkjör. Það
ræðst á kjördæmaráðsþingi í Borg-
arnesi 13. október.
Þingmaðurinn Einar Kr. Guð-
finnsson og Eyrún Ingibjörg Sig-
þórsdótttir, varaþingmaður og odd-
viti sjálfstæðismanna á Tálknafirði,
gefa kost á sér, en Ásbjörn Ótt-
arsson hættir þingstörfum.
Bergþór Ólason fjármálstjóri gef-
ur kost á sér hvor leiðin sem verður
farin og Ólafur Adolfsson lyfjafræð-
ingur fer ekki í grafgötur með
áhuga sinn. Halldór Halldórsson,
formaður Sambands íslenskra sveit-
arfélaga, segir frekar ólíklegt að
hann gefi kost á sér. „Ég ætla að
bíða eftir kjördæmisþinginu með að
kveða upp úr með hvað ég geri,“
segir Birna Lár-
usdóttir, fyrrv.
bæjar-
fulltrúi á Ísa-
firði. Þá
hyggjast
Kristinn Jón-
asson, bæj-
arstjóri í Snæ-
Reykjavík
Nær öruggt má telja að haldið verði
prófkjör í Reykjavík, en fulltrúa-
ráðið kemur saman um mánaða-
mótin og ákveður fyrirkomulagið á
því.
Ólöf Nordal, varaformaður flokks-
ins, gefur ekki kost á sér. Illugi
Gunnarsson, formaður þingflokks-
ins, hefur gefið út að hann stefni á
fyrsta sæti og samkvæmt heim-
ildum stefnir Guðlaugur Þór Þórð-
arson á forystusæti. Pétur H. Blön-
dal segist ekki búinn að taka
ákvörðun um hvort hann fari fram.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, odd-
viti sjálfstæðismanna í borgarstjórn,
hefur ákveðið að gefa kost á sér í
fyrsta sæti. Það kann að vera að
fleiri úr borgarstjórn skipti um vett-
vang, því borgarfulltrúarnir Kjartan
Magnússon og Áslaug Friðriksdóttir
velta einnig framboði fyrir sér.
Brynjar Níelsson hæstaréttar-
lögmaður veltir alvarlega fyrir sér
framboði og einnig Jakob F. Ás-
geirsson, rithöfundur, bókaútgefandi
og ritstjóri Þjóðmála. Þá eru að
hugsa sér til hreyfings Sigríður
Andersen, lögmaður og varaþing-
maður, Teitur Björn Einarsson hér-
aðsdómslögmaður, Hildur Sverr-
isdóttir, lögfræðingur og vara-
borgarfulltrúi, og Fanney Birna
Jónsdóttir lögfræðingur. Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borg-
fellsbæ, og Ásthildur Sturludóttir,
bæjarstjóri á Patreksfirði, ekki gefa
kost á sér.
Norðausturkjördæmi
Kjördæmaráðsþing verður haldið
um miðjan október og líklegt er að
lagt verði til að halda prófkjör.
Samkvæmt heimildum stefnir Krist-
ján Þór Júlíusson á efsta sætið, en
hann tilkynnir það ekki fyrr en á
kjördæmaþingi. Tryggvi Þór Her-
bertsson gefur út ákvörðun sína eft-
ir kjördæmaráðsþingið, en á kjör-
dæmaráðsþingi í vor hélt hann ræðu
þar sem hann sagðist ekki gefa kost
á sér nema haldið yrði prófkjör.
Arnbjörg Sveinsdóttir, fyrrver-
andi þingmaður, íhugar framboð og
eins Jens Garðar Helgason, fram-
kvæmdastjóri og oddviti sjálfstæð-
ismanna í Fjarðabyggð. Bergur
Þorri Benjamínsson viðskiptafræð-
ingur hyggst gefa kost á sér í eitt af
fimm efstu sætunum og María Mar-
inósdóttir, sölu- og markaðsfulltrúi
N4, bíður kjördæmisþings með
ákvörðun sína. Þá hefur verið nefnd
Elín Káradóttir frá Egilsstöðum,
sem á sæti í miðstjórn og stundar
nám í stjórnmálafræði við HÍ.
Suðurkjördæmi
Ekki er búið að ákveða fund í kjör-
dæmisráði sjálfstæðismanna í Suð-
urkjördæmi.
Ragnheiður Elín Árnadóttir gefur
áfram kost á sér í fyrsta sæti. Unnur
Brá Konráðsdóttir stefnir á annað
sæti og Árni Johnsen stefnir sam-
kvæmt heimildum á forystusæti.
Séra Halldór Gunnarsson í Holti
ætlar að gefa kost á sér. Eyþór
Arnalds, oddviti sjálfstæðismanna í
Árborg, veltir fyrir sér framboði.
Kjartan Ólafsson, fyrrverandi þing-
maður, útilokar ekkert og Geir Jón
Þórisson bíður með sína ákvörðun.
Vilhjálmur Árnason, lögreglumaður
og laganemi frá Grindavík, ætlar
fram. Aldís Hafsteinsdóttir, bæj-
arstjóri í Hveragerði, segist hins-
vegar ánægð í sínu starfi og Elliði
Vignisson, bæjarstjóri í Vestmanna-
eyjum fer hvergi.
Suðvesturkjördæmi
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, gefur kost á
sér í efsta sæti og aðrir þingmenn
kjördæmisins verða áfram í kjöri.
Elín Hirst, fjölmiðla- og sagn-
fræðingur, hefur tilkynnt að hún
sækist eftir þriðja sæti. Kjartan Örn
Sigurðsson bæjarfulltrúi fer fram.
Óli Björn Kárason varaþingmaður
veltir framboði fyrir sér. Einnig
Gunnar Birgisson, verkfræðingur og
fyrrverandi bæjarstjóri, og Friðjón
R. Friðjónsson almannatengill. Hild-
ur Dungal lögfræðingur gefur ekki
kost á sér.
FLEIRI ÞINGMENN?
Spilin stokkuð fyrir
prófkjör sjálfstæðismanna
ÞAÐ STEFNIR Í PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISMANNA Í FLESTUM KJÖRDÆMUM OG ÞEGAR ER LJÓST AÐ MIKIÐ VERÐUR UM NÝ ANDLIT Í FRAMBOÐI. ENDA
BENDA SKOÐANAKANNANIR TIL AÐ FLOKKURINN BÆTI VIÐ SIG ÞINGMÖNNUM. EN HVERJIR SKYLDU HALDA ÁFRAM OG HVERJIR BÆTAST Í HÓPINN?
Ný andlit í prófkjöri? Hér listi yfir þá einstaklinga sem ýmist hafaákveðið að gefa kost á sér í prófkjörum
sjálfstæðismanna eða eru að velta því fyrir sér.
Reykjavík
Áslaug
Friðriksdóttir
Brynjar
Níelsson
Fanney Birna
Jónsdóttir
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Hildur
Sverrisdóttir
Jakob F.
Ásgeirsson
Kjartan
Magnússon
Sigríður
Andersen
Teitur Björn
Einarsson
Bergþór
Ólason
Birna
Lárusdóttir
Eyrún Ingibjörg
Sigþórsdóttir
Halldór
Halldórsson
Ólafur
Adolfsson
Eyþór
Arnalds
Geir Jón
Þórisson
Séra Halldór
Gunnarsson
í Holti
Kjartan
Ólafsson
Vilhjálmur
Árnason
Arnbjörg
Sveinsdóttir
Bergur Þorri
Benjamínsson
Elín
Káradóttir
Jens Garðar
Helgason
María
Marinósdóttir
Elín
Hirst
Friðjón R.
Friðjónsson
Gunnar
Birgisson
Óli Björn
Kárason
Kjartan Örn
Sigurðsson
Norðvesturkjördæmi Norðausturkjördæmi
Suðurkjördæmi Suðvesturkjördæmi
„Þetta er starf sem hefur marga kosti, en svo
hefur það líka sínar slæmu hliðar.“
Pétur H. Blöndal
Þjóðmál
PÉTUR BLÖNDAL
pebl@mbl.is
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. 09. 2012