Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Page 13
mánuði og voru á miklu stærri skala
en ég hafði gert mér grein fyrir. Ég
missti reyndar af skólaútskriftinni í
LAMDA en tilgangurinn með þessu
öllu saman var að vinna við leik-
listina svo fjölskylda mín skellti sér
bara á útskriftina. Það er ansi gott
að hafa eitthvað fyrir stafni eftir að
maður útskrifast, maður öðlast
sjálfsöryggi við það og sér að maður
stefnir í rétta átt.
Núna eru verkin að rata til áhorf-
enda eftir eins árs vinnu. Flest
verða sýnd í sjónvarpi og kvik-
myndahúsum í haust en annað
seinna í vetur. Ég held að kröfurnar
sem ég geri til sjálfrar mín í augna-
blikinu séu aðallega að skila vinnu
minni með ágætri sæmd.“
Nú eru foreldrar þínir í sama fagi
og þú, hafa þeir gefið þér einhver
ráð?
„Aðallega það að vera sjálfri mér
samkvæm. Þau skilja starfið þar
sem þau eru í sama fagi og þess
vegna er ómetanlegt að geta leitað
ráða hjá þeim. Stundum þarf maður
að geta loftað um hluti sem skipta
alls engu máli og þá er gott að eiga
fólk að sem segir: „Þetta skiptir
engu máli, þetta starf er bara
svona. Og þú veist það.““
Hugsarðu oft um það að þú sért
heppin?
„Ég er mjög þakklát fyrir tæki-
færin sem ég hef fengið svo kemur
bara í ljós hvert leiðin liggur. Þetta
byrjar alla vega vel. Það er ekki
hægt að búast við að hlutir gerist af
sjálfu sér, það þarf að hafa fyrir
þeim. Stundum vinn ég sex daga
vikunnar frá fimm á morgnana til
tíu á kvöldin og þá er afar mikil-
vægt að viðhalda orku allan þann
tíma ef maður ætlar ekki að taka
þetta á sprettinum. Ég held ég
skelli mér frekar í langhlaup.“
Morgunblaðið/Kristinn
23. 09. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
Hera vinnur nú við sjónvarpsþætt-
ina Da Vinci’s Demons þar sem
Leonardo da Vinci er aðal-
persónan. „Þetta er mjög nútíma-
leg en þó ævintýraleg sýn á þetta
spennandi tímabil á Ítalíu,“ segir
Hera. „Áhorfandinn fylgist með
þessum merkilega manni verða að
eins konar ofurhetju, vopnaðan
uppfinningum sínum og listinni á
tímum mikilla umbyltinga.“
Mögulegt er að framhald verði á
þessum þáttum og þá mun Hera
hefja aftur tökur í apríl á næsta ári.
Áður kemur hún til Íslands og leik-
ur í kvikmyndinni Vonarstræti sem
Baldvin Z leikstýrir.
NÆSTU VERKEFNI
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
2
-1
9
2
7
Skannaðu QR kóðann
og sæktu appið frítt
í símann þinn
EINN SMELLUR
og þú tekur stöðuna
með nýja Arion appinu