Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Side 21

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Side 21
Erlendis hafa húlahringir verið að komast aftur í tísku, nú meira hjá fullorðnu fólki en börnum og er svo komið að heilu samfélögin hafa skapast í kringum það að húla. Öldu fannst tími til kom- inn að ná þessari vakningu í húla hérlendis og smita fleiri af húlahringjaæðinu og útskýrir hér nánar eðli þess að húla. Hægt er að húla á ýmsa vegu, til dæmis eins og sirkuslistamenn gera, en þá byggist allt á því að gera ýmsar brellur og oft með mörgum húlahringjum. Ennfremur hefur húladans komið sterkur inn síðustu árin. Þá er yfirleitt notast við einn húlahring og hugsað meira um flæði og hreyfingar með hringnum við tónlist en brellurnar eru frekar aukaatriði. Alda hefur margsinnis komið fram í sýningum Sirkuss Íslands með hringina sína. Framan af var hún í sirkusstílnum en að undanförnu hefur hún fengið áhuga á húladansinsum. Námskeiðið í Kram- húsinu er samsuða þessara ólíku stíla sem hún hefur stundað, þar sem grunntækni og brellur eru kenndar auk þess sem lögð er áhersla á flæði og hreyfingar í hringnum við tónlist. Brellur og húladans skólabakgrunn og bara allt í einu komin í sirkusstörf. Ég hafði aldrei verið á sviði fyrr en eftir þrítugt. Það þurfti að ýta á mig, það var erfitt að stíga fyrstu skrefin. En svo er þetta bara svo gaman.“ Það þarf ekkert nema húlahringi til að stunda þessa íþrótt og þá getur Alda útvegað nemendum sínum. Annað sem til þarf er bara þægileg föt og líka nóg pláss. „Ég hef gert þetta heima með því að ýta til húsgögnum en svo á sumrin er ég bara úti í garði,“ segir hún en ennfremur æfir sirkusinn daglega hjá Ár- manni. Nú er komið að stóru spurningunni: Hvað getur þú húlað með mörgum hringjum í einu? „Við eigum eitthvað hátt í þrjátíu hringi og ég get alveg húlað með þeim öllum,“ segir hún. Fjórir tímar eru eftir af húlanám- skeiðinu en Alda vonast eftir því að halda áfram enda hafa við- tökurnar verið góðar en áhugasamir geta fylgst með fréttum á kramhusid.is og sirkusislands.is. Þetta er bara brot af þeim húlahringjum sem Alda getur húlað með í einu. 23. 09. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21 Hreyfing og heilsa Margir bregða á það ráð að fjárfesta í fitu- brennslutöflum þegar loksins á að taka almenni- lega á því í ræktinni eða missa nokkur kíló. Slíkar töflur fást í ýmsum formum og litum og geta verið góðar og gildar en kosta óneitanlega skildinginn. Náttúrulegra ráð til að auka brennslu fitu í lík- amanum er að hræra örlitlum cayenne pipar út í vatn eða te og drekka einu sinni til tvisvar á dag. Varað er við því að byrja á of miklu magni. ¼ úr teskeið út í fullt glas af vatni er hæfilegt til að byrja með en með tímanum má auka skammtinn upp í heila teskeið og jafnvel tvær fyrir þá allra hörðustu. Hafa ber þó í huga að engin húsráð koma í staðinn fyrir almenna skynsemi eins og að hreyfa sig reglulega, stilla ruslfæði í hóf og hafa gaman af lífinu. AFP CAYENNE PIPAR ÚT Í VATN EÐA TE Eykur fitubrennslu * Drekka nægan vökva alla daga, sérstaklegavatn og gott te. * Muna að þvo hendurnar reglulega til að komaí veg fyrir smit. * Neyta fæðu sem styrkir ónæmiskerfið. Þarmá nefna gulrætur, appelsínur, dökk ber, rauðrófur, lauk, paprikur, feitan fisk, omega 3, fræ og hnetur, hreint jógúrt sem inniheldur góða meltingargerla * Borða ríkulega af grænmeti og ávöxtum ognota heitar grænmetissúpur. * Heitt bað með ilmkjarnaolíum s.s. euca-lyptus eða tee tree olíu gerir sitt gagn. * Ótal lækningajurtir eru áhrifaríkar gegn kvefiog flensum s.s. ætihvönn, engifer, blóðberg, ca- yenne pipar, lakkrísrót, vallhumall, hvítlaukur, sól- hattur, ólífulauf. Það er óþarfi að láta kvefið koma aftan að sér þegar fer að kólna. AFP VIÐ GETUM GERT GERT HEILMARGT SJÁLF TIL AÐ FORÐAST HAUSTSLEN OG KVEFPESTIR, SEGIR ÁSDÍS RAGNA EINARSDÓTTIR GRASALÆKNIR. 6 góð ráð við kvefi Listhúsinu Laugardal, 581 2233 · Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 · Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 · laugardaga 12.00 - 16.00 12 mánaðavaxtalausargreiðslur* *3,5% lántökugjald Ný sending af hágæða sængurverasettum iBOAS RAFDRIFNIR Leður hægindasófar og stólar i l NÝT T

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.