Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Side 22
*Heimili og hönnunInnlit á fallegt heimili Erlu Tryggvadóttur útvarpskonu við Elliðavatn
E
ins og nafnið gefur til kynna liggja íslensk tengsl að baki nafni
Finnsdottir Design en konan á bak við merkið er hin hálf-
íslenska Þóra Pia Finnsdóttir. „Á heimili ömmu minnar við
Otrateig var stofuskápur fullur af glermunum sem mér fundust
alltaf svo spennandi,“ segir Þóra um innblásturinn að línu heimilismuna,
sem lagði grunninn að Finnsdottir Design.
Í dag framleiðir Finnsdottir Design m.a. vasa, ljós, ker, skartgripi,
lampa og fleira. Fjallað hefur verið um keramikmuni Þóru í ýmsum hönn-
unar- og lífstílsblöðum á Norðurlöndum, t.d. hinu danska Bolig, en þeir
þykja stílhreinir bera vott um fágaðan smekk.
Handgerir alla skartgripi sjálf
Í upphafi sá Þóra alfarið um hönnun allra vara fyrirtækisins.
Reksturinn vatt hins vegar fljótlega upp á sig og gekk vinkona
hennar, hönnuðurinn Anne Hoff, fljótlega til liðs við hana. Í
dag sjá þær saman um alla hönnun Finnsdottir Design.
„Þetta hefur gengið mjög vel og hratt líka,“ segir Þóra.
„Kannski aðeins of hratt á köflum,“ bætir hún við létt í
bragði. Þóra handgerir sjálf alla skart-
gripi en eftir að eftirspurn eftir stærri
munum á borð við lampa og ljós tók að
aukast afréð hún að láta keramikverk-
stæði í Portúgal sinna þeirri framleiðslu.
Íslandsferð í kortunum
Framundan hjá Þóru er áframhaldandi
vinna við uppbyggingu fyrirtækisins,
ásamt því sem hún sinnir fjölskyldunni,
en hún býr ásamt manni sínum og
þremur börnum í Frederiksberg í Kaupmannahöfn. „Ég flutti til Dan-
merkur þegar ég var þriggja ára og hef búið þar síðan,“ segir Þóra sem
þó hefur haldið góðum tengslum við fjölskyldu sína hér heima.
Spurð að því hvort leiðin liggi eitthvað til Íslands segir Þóra það alltaf
á döfinni, þótt rekstur og barnauppeldi hafi heldur dregið úr tíðni ferða
undanfarið. „Ég vonast þó til að komast til Íslands næsta sumar,“ segir
hún.
Þóra Finnsdóttir
HÁLFÍSLENSK HÖNNUN GERIR ÞAÐ GOTT
Innblástur úr skápnum hennar ömmu
FALLEGAR KERAMIKVÖRUR FINNSDOTTIR DESIGN HAFA VAKIÐ ATHYGLI Í DANMÖRKU OG VÍÐAR UNDANFARIN MISSERI.
Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is
* NÁM Þóra byrjaði á að læra líffræði en skipti svoyfir í keramik í Danmarks Design Skole.
* MÝRIN selur hönnun Þóru hér á landi en hún fæsteinnig í Illums í Danmörku auk verslana í Svíþjóð, Noregi,
Hollandi, Þýskalandi og Bandaríkjunum.
* VEFUR www.finnsdottir.dk
Kertastjakar sem hægt er að
setja saman á mismunandi vegu.
OYOY er nýtt danskt hönnunarfyrirtæki sem leggur áherslu á heimilis-
vörur þar sem formið, notagildið, litir og góður efniviður er í fyrirrúmi.
Innblásturinn kemur frá sígildum norrænum stíl með áhrifum frá ein-
faldri japanskri hönnun og að lokum er kryddað með fallegum litum. Út-
koman verður stílhrein og á köflum litrík hönnun.
Það er alltaf gaman þegar ný og fersk hönnunarfyrirtæki koma fram á
sjónarsviðið með sinn eigin stíl en samt innan norrænu hefðarinnar.
Aðalhönnuður OYOY er Lotte Fynboe, sem er menntuð frá TEKO í
Herning með áherslu á innanhúss- og húsgagnahönnun. Einkennisorð
hennar eru meira er minna og hefur hún líka sagst vera undir miklum
áhrifum frá minningum úr æsku. Það er eitthvað barnslegt og einfalt við
þessa hönnun sem er svo heillandi. Fynboe segir að hlutirnir sem við röð-
um í kringum okkur eigi að veita okkur orku og gleðja okkur, sem er
ágætis takmark í sjálfu sér. ingarun@mbl.is
Leikur að æskuminningum
Tvö vinsælustu mynstrin hjá OYOY í vet-
ur eru sexstrendingar og tíglar.
Á www.oyoy.dk má sjá lista yfir vef-
verslanir sem selja vörurnar.