Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Page 33

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Page 33
Skráningargjald er 2.000 kr. og rennur óskert til Vildarbarna Icelandair. Skráning fer fram á www.icelandairgroup.is Ráðstefnan er öllum opin meðan húsrúm leyfir. Icelandair Group gegnir lykilhlutverki í þróun og uppbyggingu íslenskrar ferðaþjónustu. Í tilefni afmælisársins efnir félagið til ráðstefnu þar sem fjallað verður um stöðu greinarinnar og framtíðarmöguleika frá ýmsum hliðum af einstaklingum með ólíkan bakgrunn og sýn. HR. ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON, FORSETI ÍSLANDS: Áfangastaður á veraldarvísu Á undanförnum árum og áratugum hefur Ólafur Ragnar haft einstakt tækifæri til þess sem forseti Íslands að kynnast ólíkum skoðunum og viðhorfum til lands og þjóðar, meðal almennings og fjölmiðlafólks um allan heim og meðal helstu ráðamanna nær og fjær. Í erindi sínu mun hann greina frá reynslu sinni og sýn á þau áhrif sem sívaxandi áhugi á Íslandi hefur á sjálfsmynd þjóðarinnar og framtíð landsins sem ferðamannalands. MAGNEA ÞÓREY HJÁLMARSDÓTTIR, FRAMKVÆMDASTJÓRI ICELANDAIR HÓTELANNA: Upplifun, þjónusta og fagmennska í ferðaþjónustu Magnea gjörþekkir innviði hótel- og veitingareksturs hér á landi og hefur leitt félagið í gegnum miklar breytingar á undanförnum árum. Í erindi sínu mun hún stikla á stóru um helstu áskoranir sem nú blasa við ferðaþjónustu á Íslandi og nauðsynleg skref til að tryggja fyrsta flokks upplifun fyrir ferðamenn á Íslandi. EMILIANO DUCH, FORSTJÓRI COMPETITIVENESS.COM Í BARCELONA: Leiðir til að auka hagnað í ferðaþjónustu Emiliano er náinn samstarfsmaður Dr. Michaels Porter og einn helsti frumkvöðull og sérfræðingur heims í klasafræðum (e. cluster theory). Hann er gjörkunnugur aðstæðum íslenskrar ferðaþjónustu og hefur um árabil horft til möguleika greinarinnar í alþjóðlegri samkeppni. BJÖRGÓLFUR JÓHANNSSON, FORSTJÓRI ICELANDAIR GROUP: Næstu skref eru mikilvæg Áhrif Icelandair Group á ferðaþjónustu í landinu eru mikil og næstu skref félagsins skipta máli fyrir alla sem starfa í greininni. Björgólfur mun fjalla um hvernig byggja á upp ferðaþjónustu á heimsmælikvarða á Íslandi og hvernig áframhaldandi uppbygging Icelandair Group mun styðja við það markmið. Hann mun einnig gera grein fyrir þeirri þróun sem hann telur nauðsynlega í íslenskri ferðaþjónustu og hvernig Icelandair Group getur lagt sitt af mörkum til að efla áfangastaðinn Ísland. GREGG ANDERSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI HJÁ FERÐAMÁLARÁÐI NÝJA-SJÁLANDS: Lærum hvert af öðru Fyrir þá sem starfa í ferðaþjónustu á Íslandi er það næstum eins og að líta í spegil að hitta kollega frá Nýja-Sjálandi. Gregg hefur starfað bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum við að markaðssetja ferðamannalandið Nýja-Sjáland og hann mun deila reynslu sinni og hugmyndum. SØREN ROBERT LUND, ARKITEKT: Veturinn gerður vinsæll Þeir sem heimsótt hafa Kaupmannahöfn á undan- förnum árum átta sig á því að Tívolí, sem áður var ávallt lokað á haustin, dregur nú að sér milljónir gesta yfir vetrarmánuðina. Søren Robert hefur stýrt hönnun og þróun skemmtigarðsins undanfarin 15 ár. Hann hefur áhugaverðar hugmyndir um það hvernig arkítektúr og hönnun geta breytt upplifun og ferðaþjónustu hér á Íslandi. 75 ÁRA AFMÆLISRÁÐSTEFNA ICELANDAIR GROUP FRAMTÍÐARTÆKIFÆRI ÍSLENSKRAR FERÐAÞJÓNUSTU Þriðjudaginn 25. september 2012, kl. 13:00–17:00 á Hilton Reykjavík Nordica +

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.