Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Síða 59

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Síða 59
Þrautir og gátur 23. 09. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59 LÁRÉTT 1. Góður maður í Blóðbankanum. (8) 4. Sjávarhúðpoki færir okkur lotur sérkennilegu beinfiskanna. (11) 9. Bý til Norðurlandabúa (7) 10. Stíf fæst ekki þrátt fyrir að vera harðskeytt. (9) 12. Slæpist við að spyrja hvort hópur sé á lífi. (5) 13. Suður Bretlands ílát er bytta. (7) 14. Tjáningarfrelsið byrjar og endar á því að þið skýrið frá. (5) 15. Tuða yfir því að þurrausa. (5) 16. Rímuð frásögn af löggjöf og réttarfari. (8) 18. Fugl sem tvöfalt ryk fellur á. (4) 20. Strekkt í ófriði (5) 22. Gæi í stöðu í Róm er frekar venjulegur fugl. (10) 24. Dóp fyrir hópa úr plöntu. (8) 26. Skrift á skjóðum er sérstök skrift. (11) 29. Rotið sérð eins og sagt er á stað þar sem melgresi er ræktað. (9) 30. Hamingjusamur í Finnlandi út af munaði. (7) 32. Styrkist afi einhvern veginn við heimilistæki. (11) 33. Griffla hefur gróp. (6) 34. Sá sem er gerólíkur þeim sem er fundinn úti er meðtalinn. (10) 35. Dumbungur endar með greiðslu. (5) LÓÐRÉTT 1. Kapphlaup að mat hjá Færeyingum er viðurkennd keppnisgrein. (11) 2. Slunginn í því að vera næmur á útlit. (8) 3. Aka mó til baka og valda fyrirhöfn. (5) 4. Erlendur líkt og urg. (8) 5. Hrek Klaus sem er einfaldur. (9) 6. Vegna flækingsdóna til Farsóttar. (9) 7. Fyrsta eldstæði er slæmt. (7) 8. Hreinsa goð þrátt fyrir að vera skemmd. (6) 11. Píla pússar ekki marga. (6) 15. Egypskur guð með tveimur íþróttafélögum á alþjóðamóti notar snyrtivöru. (8) 17. Með augum kafa að námsgrein. (7) 19. Vísaði Shakespeare ilmvökva á brott. (8) 21. Mál rægt þó nokkuð. (8) 23. Ekki ímyndaður hluti trés í vísindum. (9) 25. Leyndardómurinn vegna ágústmánaðar án músa. (8) 26. Strit geri brjálaðan með meiðslum. (7) 27. Vistkerfið í gjótunni byggist á léttúð. (8) 28. Metta næstum því illa með peningi. (6) 31. Matarréttur fyrir hest. (5) Verðlaun eru veitt fyrir krossgátu vikunnar. Senda skal þátttökuseðilinn í um- slagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Hádegis- móum 2, 110 Reykjavík. Frestur til að skila úrlausn krossgátu 22. september rennur út á hádegi 28. sept- ember. Nafn vinningshafa er birt í blaðinu 30. september. Vinningshafi krossgátunnar 16. sept- ember er Brynjólfur Magnússon, Lynghaga 2, Reykjavík. Hann hlýtur í verðlaun bókina Flösku- skeyti frá P eftir Jussi Adler Olsen. Forlagið gefur bókina út. Krossgátuverðlaun Nafn Heimilisfang Póstfang Á Ólympíuskákmótunumsnýst keppnin ekki aðeinsum gull, silfur og brons. Það er meira undir, t.d. náðu Hollendingar sjötta sæti í opna flokknum og tryggðu sér áframhald- andi stuðning styrktaraðila. Meðal öflugustu þjóðanna er litið á verð- launasæti sem ígildi verðlauna á Ól- ympíuleikum. Það reyndu Armenar er þeir sneru heim þjóðhetjur eftir að hafa unnið þriðju gullverðlaunin á fjórum Ólympíumótum. Íslendingar voru góðu vanir á níunda og tíunda áratug síðustu aldar svo það vakti ekki neina sérstaka athygli í Bled árið 2002 þegar karlasveitin vann þar sérstök verðlaun í svonefndum B-stigaflokki. Önnur keppni fer fram á vettvangi Ólympíumótanna: við fylgjumst alltaf grannt með frammistöðu hinna Norðurlanda- þjóðanna og í kvennaflokki var ís- lenska sveitin best, hlaut 12 stig og varð í 53. sæti en var fyrirfram raðað í 62. sæti. Lenka Ptacnikova hlaut 7 vinninga af 10 mögulegum en Elsa María Kristínardóttir stóð sig einnig vel, hlaut 5 vinninga af sjö mögu- legum og einnig Tinna Kristín Finn- bogadóttir sem hlaut 4½ v. af átta mögulegum. Þær hækka báðar um- talsvert í stigum. Hallgerður Helga og Jóhanna Björg voru nokkuð frá sínu besta. Þessi sveit er „þéttari“ en sú sem tefldi á Ol í Khanty Many- isk en betur má ef duga skal. Með meiri vinnu og hærri markmiðum gætu þessar stúlkur att kappi við bestu skákkonur heims. Í kvennaflokknum réðust úrslitin á óverulegum stigamun. Rússar og Kínverjar hlutu 19 stig en Rússar fengu gullið. Í lokaumferðinni vann Ísland Alb- aníu 3:1. Jóhanna Björg Jóhanns- dóttir vann mikilvægan sigur en skákir hennar eru oft æði við- burðaríkar eins og dæmin sanna: Bruna Tuzi – Jóhanna Björg Jó- hannsdóttir Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 g6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rc6 5. Rc3 Bg7 6. Rb3 Rf6 7. Be2 O-O 8. O-O b6 9. f4 d6 10. Bf3 Bb7 11. Rd5 Hc8 12. c3 Rd7 13. Kh1 Rc5 14. He1 Ba8 15. Dc2 Re6 16. Dd1 Rc5 17. h3 e6 18. Re3 Re7 19. Rc2 e5 20. Rb4 a5 21. Rd5 Bxd5 22. exd5 Rf5 23. fxe5 Bxe5 24. Kg1 Dh4 25. Rxc5 bxc5 26. Bg4 Kh8 27. Bxf5 gxf5 28. He3 Hg8 29. De1 Df4 30. g3 Hxg3+? Jóhanna var búin að byggja upp yfirburðastöðu. Í stað þess að auka pressuna með 30. … Hce8 eða 30. … Dh4, kaus hún hagstætt endatafl. 31. Hxg3 Dxg3 32. Dxg3 Bxg3 33. Kg2 Be5 34. Bd2 Hg8+ 35. Kf2 Hg3 36. Ke2 Hxh3? 36. … Hg2+ vinnur. Eftir 37. Kd3 c4+! 38. Kc2 Bf4 39. Hd1 a4! getur hvítur sig hvergi hrært. 37. Hf1 Hh5? Svartur ætti að vinna eftir 37. … h5! 38. Hxf5 Kg7 o.s.frv. 38. b3 Kg7 39. c4 Hh2+ 40. Hf2 Hxf2+ 41. Kxf2 h5 42. Bxa5 h4 43. Kg2 f4 44. Be1! Taflmennska svarts í endataflinu einkennist af efnishyggju sem er ekki góð leiðsögn. Ósigur og þar með jafntefli við Albani virtist ætla að verða niðurstaðan. 44. … Bf6 45. Kh3 Bd8 46. Bxh4 f6 47. Kg4 f5 48. Kh3 Bxh4 49. Kxh4 Kf6 50. Kh3 Ke5 51. Kg2 Ke4 52. a4 Ke3 -Sjá stöðumynd- Sú hryggilega staðreynd blasti við að léki hvítur 53. Kf1 gæti svartur gefist upp. Kannski var þreyta farin að segja til sín því að hvítur lék…. ) 53. a5?? Ke2! Skyndilega er svartur kominn með unnið tafl! 54. a6 f3 55. Kh2 f2 56. a7 f1=D 57. a8=D Df4+ 58. Kh1 Df3+ 59. Kh2 f4 60. Da2 Ke3 61. b4 Dg3+ 62. Kh1 De1+ 63. Kh2 Dxb4 64. Da1 Dxc4 65. Dg1 Kd2 66. Dg5 De2+ – og hvítur gafst upp. Helgi Ólafsson helol@simnet.is Bestar á Norðurlöndum

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.