Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2012, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2012, Blaðsíða 4
Þjóðin gengur til atkvæða í dag, laugardag,um róttækustu endurskoðun á íslenskustjórnarskránni sem boðuð hefur verið. Skiptar skoðanir eru um það hvort aðferða- fræðin standist skoðun. Fyrst er spurt um afstöðu til tillagna stjórn- lagaráðs og síðan afstöðu til einstakra breytinga á stjórnarskránni, án þess þó að tekið sé fram að það komi tillögum stjórnlagaráðs nokkuð við, enda eru tillögur þess mun ítarlegri. Spurður hvort hinar spurningarnar eigi engu að síður við tillögur stjórnlagaráðs segist dr. Þorlákur Karls- son, dósent við HR og rannsóknarstjóri Mask- ínu, alls ekki taka undir það. „Ef mér finnst ég geta tekið afstöðu til hverrar spurningar, áttað mig á henni og skilið hana, þá kemur mér svo sem ekkert við hvað stjórnlagaráðið eða aðrir segja um hana. Mér finnst það ekki hanga sam- an nema í fyrstu spurningunni.“ Mikill vandi „Ég vil halda því til haga að vandinn er mikill sem menn stóðu frammi fyrir í undirbúningi atkvæðagreiðslunnar, því spurt er um stór og almenn álitamál,“ bætir Þorlákur við. „En ég hefði viljað meira jafnvægi í orðalaginu. Ef við tökum þjóðkirkjuna sem dæmi, þá er fólk spurt hvort það vilji hafa ákvæði um hana í stjórnarskrá. Ég held að fólk hneigist til að svara já frekar en nei, einfaldlega af því að það er gjarnara á að samþykkja frekar en hafna. Orðalagið gæti haft áhrif á þá sem ekki hafa kynnt sér tillögurnar vel og það á við um allar spurningarnar.“ Salvör Nordal, fv. formaður stjórnlagaráðs, er einnig gagnrýnin í Morgunblaðinu: „Það er augljóst af umræðunni að fólk skilur spurning- arnar með ólíkum hætti. Það bendir til þess að þær séu óskýrar. Það er betra að hafa skýrar spurningar þegar þjóðaratkvæðagreiðsla er annars vegar þannig að það sé ekki opið hvernig hægt er að túlka þær í framhaldinu.“ Hver er staða þingsins? Tekist hefur verið á um hvernig eigi að túlka það ef meirihluti kjósenda svarar spurningunni um tillögur stjórnlagaráðs játandi. Hvort þingið megi þá, geti eða eigi að velta fyrir sér efnislegum breytingum á tillögunum. Þorvaldur Gylfason, sem átti sæti í stjórnlaga- ráði, segir þingið þá efnislega bundið tillögunum í heild sinni. Óljóst er hver afstaða stjórnarflokk- anna er. Þingið hefur sent tillögurnar til endur- skoðunar hjá sérfræðinganefnd, en einungis varð- andi lagatæknileg atriði og ekki er óskað eftir tillögum að efnislegum breytingum. Þrátt fyrir það hafa Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon sagt í þinginu að þau telji sig hafa svigrúm til þess að fara í efnislegar breytingar. Vantar greiningu þingsins Salvör Nordal hefur gagnrýnt að ekki liggi fyrir greining Alþingis. „Sjálf tók ég það skýrt fram þegar ég greiddi frumvarpinu atkvæði mitt að ég teldi að það þyrfti frekari greiningu og ítarlegri skýringar. Það var haft á orði í okkar hópi að frumvarpið þyrfti að fara í álagspróf eða lög- fræðilega skoðun til að athuga hvort í því væri að finna eitthvert innra ósamræmi, til að meta lög- fræðileg áhrif og svo framvegis. Við vorum á þeirri skoðun.“ Í nýlegri fésbókarfærslu skrifar Pawel Bartos- zek, sem sat í stjórnlagaráði: „Ég geri tilboð í bíl, háð því að hann komist í gegnum skoðun. Ári síð- ar er bíllinn enn óskoðaður en seljandinn leggur hart að mér að skrifa undir. Hvað geri ég?“ Ákvæðið um þjóðkirkju Gagnrýni á spurninguna um hvort fella eigi ákvæði um þjóðkirkju úr stjórnarskránni felst m.a. í því að verið sé að sniðganga stjórnarskrána með því að efna ekki til sérstakrar þjóðar- atkvæðagreiðslu um þetta ákvæði, eins og kveðið sé á um í 79. grein stjórnarskrárinnar. Persónukjör í meira mæli en nú er Hingað til hefur persónukjör verið útfært í kosn- ingalögum og segja sumir útfærslu á því ekki eiga erindi í stjórnarskrá. En gagnrýnin á þessa spurningu felst fyrst og fremst í því að hún sé óljós. Margar ólíkar skoðanir séu upp um per- sónukjör og þær megi útfæra með ólíkum hætti, til dæmis meira vægi útstrikana. Útfærsla stjórn- lagaráðs sé bara ein af mörgum og ekki sé spurt um hana sérstaklega. Atkvæði kjósenda vegi jafnt? Það liggur fyrir að ef atkvæðavægi verður jafnað fjölgar þingmönnum höfuðborgarsvæðisins í 40 af 63. Og spurningin sem lögð er fyrir þjóðina varð- ar það. En tillögur stjórnlagaráðs fela einnig í sér að breyta kosningafyrirkomulaginu, þannig að hátt hlutfall þingmanna verði landskjörið. Leitt er líkum að því að þar sem flestir kjósendur eru í þéttbýlinu verði landskjörnir þingmenn einkum þeir sem höfða til kjósenda á höfuðborgarsvæð- inu. Dr. Þóroddur Bjarnason, prófessor við Há- skólann á Akureyri, segir það fækka landsbyggð- arþingmönnum í ellefu og fela í sér mikinn ójöfnuð milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar. Hlutfall atkvæðisbærra manna Þorlákur Karlsson segist hefðu viljað hafa orða- lagið í sumum spurningum öðruvísi og kappkost- að að hafa það meira á hreinu að túlkunin eftir á geti ekki verið breytileg. Eins og til dæmis ákvæðið um tiltekið hlutfall kosningabærra manna: „Hvað er þetta tiltekna hlutfall? Það getur valdið vatnaskilum hvort það eru 5% eða 20%. Ég veit það er hættulegt að hafa hlutfallið of lágt, því sumir hópar manna geta verið harðir í að safna undirskriftum.“ Eins heyrist gagnrýni á það hvers vegna búinn sé til einn öryggisventill fyrir þjóðina, en annar fyrir forsetann sem hafi áfram vald til að synja lögum staðfestingar og kalla eftir þjóðaratkvæða- greiðslu. Byrjað er að flokka utan- kjörstaðaratkvæði í Ráð- húsinu í Reykjavík. Morgunblaðið/Ómar Er ný stjórnarskrá í kassanum? ÞJÓÐIN GENGUR AÐ KJÖRBORÐINU UM RÓTTÆKUSTU BREYTINGAR SEM BOÐAÐAR HAFA VERIÐ Á STJÓRNARSKRÁNNI. ÁLITAMÁLIN ERU MÖRG SEM ÞARF AÐ TAKA AFSTÖÐU TIL. OG ÞAU LÚTA EKKI EINUNGIS AÐ EFNISATRIÐUM HELDUR EINNIG AÐFERÐAFRÆÐINNI AÐ BAKI KOSNINGUNUM. Flestir hugsa um fiskveiðar þegar náttúru- auðlindir ber á góma, þó að hugtakið sé mun víðtækara. Í lögum um stjórn fiskveiða er skýrt kveðið á um að nytjastofnar á Ís- landsmiðum séu „sameign íslensku þjóðarinnar“ og úthlutun veiði- heimilda myndi „ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum.“ Enginn ágreiningur er um það á Alþingi að nýtingarréttur á nátt- úruauðlindum geti ekki myndað varanlegan eignarrétt. Deilan um snýst ekki um það, heldur hversu langt á að ganga í að skilgreina nýt- ingu auðlinda í stjórnarskrá. Gagnrýnt er að í tillögu stjórn- lagaráðs sé bann lagt við sölu eða varanlegum nýtingarsamningum á auðlindum. Gengið sé lengra en hjá stjórnlaganefnd, sem vann tillögur fyrir stjórnlagaráð, en þar var kveð- ið á um að auðlindir væru nýttar til hagsbóta þjóðinni allri og löggjaf- anum væri heimilt að setja lög og reglur til að tryggja það. Það átti bæði við um auðlindir í opinberri eigu og einkaeigu. NÁTTÚRUAUÐLINDIR * „Ég geri tilboð í bíl, háð því að hann komist í gegnum skoð-un. Ári síðar er bíllinn enn óskoðaður en seljandinn leggurhart að mér að skrifa undir. Hvað geri ég?“ Pawel BartoszekÞjóðmálPÉTUR BLÖNDAL pebl@mbl.is 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.10. 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.