Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2012, Blaðsíða 38
Hvernig myndir þú lýsa þínum fatastíl? Þessa dagana er ég hrifin af víðum og stórum
flíkum og svo elska ég hatta. Annars held ég að ég sé með frekar fjölbreyttan fatastíl, ég
klæði mig eftir skapi og fíling. Stundum vil ég hafa hlutina klassíska og einfalda en aðra
daga langar mig í eitthvað allt annað.
Áttu þér einhverja uppáhaldsflík? Ég keypti eitt sinn rústrauðan vintage-kjól í Viktoríustíl á
markaði í New York sem er í miklu uppáhaldi. Ef hann væri hvítur á litinn myndi ég örugg-
lega gifta mig í honum.
Hver eru bestu fatakaupin þín? Pedro Garcia-hælaskórnir mínir.
En þau verstu? Ég hef gert mörg slæm fatakaup. Keypti mér eitt sinn rándýra svarta kápu
sem var svo þröng að ég gat ekki haft báðar hendur á stýri þegar ég klæddist henni. Hún
endaði fljótlega í annarra manna höndum.
Hefurðu augastað á einhverju fallegu fyrir haustið? Mér finnst hausttískan alltaf rosalega
skemmtileg. Fallegar kápur og pelsar, brúnir og rústrauðir stórir treflar, hattar og leður-
hanskar. Það eina sem mig vantar fyrir haustið er falleg vintage-leðurtaska fyrir tölvuna
mína. Ég hef ekki enn fundið þá einu réttu en hún hlýtur að koma í leitirnar.
Hvar kaupir þú helst föt? Það er mjög misjafnt. Mér finnst skemmtilegast að gramsa í
flottum vintage-búðum, svo finnst mér líka mjög gaman að kaupa mér vandaða og
klassíska flík þrátt fyrir að hún kosti örlítið. Svo er líka hægt að finna margt
skemmtilegt í H&M.
Lumarðu á einhverju góðu ráði eða mottói þegar föt eru valin? Ekki
kaupa föt sem eru aðeins of lítil. Þau enda ósnert í fataskápnum.
Áttu þér uppáhaldshönnuð? Mér finnst mjög gaman að fylgjast með ungum
hönnuðum eins og Rodarte, klassísk og flott hönnun. Einnig er Dolce & Gabb-
ana alltaf í miklu uppáhaldi.
Litagleði eða svarthvítt? Mér finnst ég alltaf
verða svartari með hverju
árinu sem líður, veit ekki af
hverju.
Áttu þér einhverja tískufyr-
irmynd? Grace Kelly.
RAGNHILDUR STEINUNN JÓNSDÓTTIR
Rústrauður
vintage-kjóll í
miklu uppáhaldi
KASTLJÓSKONAN RAGNHILDUR STEINUNN SLÆR EKKI
SLÖKU VIÐ AÐRA ÞÁTTARÖÐ „DANS, DANS, DANS“, ÞAR
SEM HÚN FER MEÐ ÞÁTTASTJÓRNINA. HÚN FER Í LOFTIÐ
Á RÚV Á LAUGARDAGSKVÖLDIÐ, AUK ÞESS VERÐUR
HEIMILDARMYND SJÓNVARPSKONUNNAR, HRAFNHILD-
UR, SÝND Á SÖMU STÖÐ Á SUNNUDAGSKVÖLD.
Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is
Skreyttir
hanskar úr
Zöru
Háir
hanskar
eru
flottir.
Hattar eru
höfuðprýði.
Grace Kelly
var ávallt
glæsileg.
Trefill frá
Topshop.
Hattar frá
Zöru - sjá
vefsíðu.
Falleg kápa
frá Karen
Millen.
Félagarnir
Dolce &
Gabbana
hafa sannað
sig fyrir
löngu.
Vintage leðurtaska
frá Zöru.
Morgunblaðið/Eggert
Ragnhildur gerði
góð kaup á mark-
aði í New York.
*Föt og fylgihlutir Dorrit, Páll Óskar og Ragga Gísla eiga það sameiginlegt að klæðast fötum sem tekið er eftir »40