Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2012, Blaðsíða 19
21.10. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
CPH-kort
Kort fyrir strætó, lestar, báta-
strætó og rúmlega 60 söfn.
Hægt er að velja um kort sem
gildir í 24 klst, 72 klst og 120
klst. Hér eru verðdæmi, miðað
við núverandi gengi.
Verð 24 klst. kort fyrir full-
orðna: 5.400 kr.
Verð 24 klst. kort fyrir 10-
15 ára: 2.600 kr.
Verð 120 klst. kort fyrir
fullorðna: 15.200 kr.
Verð 120 klst. kort 10-15
ára: 7.600 kr..
Ókeypis fyrir börn yngri en
10 ára.
Bike Mike tours
Flatlendið í Danmörku gerir
landið að paradís hjólreiða-
mannsins. Hin fullkomna leið
til þess að kynnast borginni og
fyrir hungraða hjólagarpa býð-
ur Mike upp á hjóla- og matar-
ferð.
Verð: 6.300 kr.
Superkilen
Svarti markaðurinn, Græni
garðurinn og Rauðatorgið.
Nei, ekkert rússneskt rautt
torg heldur er þetta útivistar-
garður með leiktækjum fyrir
börn og ekki síður fullorðna,
kaffihúsum og samsuðu mismun-
andi menningarheima. Ókeypis
Route 66 plötubúð
Í borginni má finna þó nokkrar
plötubúðir en þessi, í Norrebro-
hverfinu, er talin skara fram úr.
Þar má finna nýjustu smellina
jafnt sem gömlu perlurnar.
Hot Kotyr lampabúð
Ráðlagt er að skilja bakpokann
eftir heima því búðin er þétt-
skipuð endurgerðum lömpum
sem ekki má brjóta né bramla.
Sleep-in-Green hostel
Gerist ekki grænna og vænna.
Flokkað rusl, endurnýtt hús-
gögn og regnvatn í klósett-
unum.
Hitt og þetta
Flatlendið gerir
Danmörku að
draumastað hjól-
reiðamannsins.
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
sé
r
ré
tt
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
.a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is
Sala hafin!– tilboð á fyrstu300 sætunum.
Bókaðu
núna
og trygg
ðu þér
hagstæt
t verð.
15.000 k
r.
afsláttur
á mann!
Frá kr. 179.900
í 15 nætur m/„öllu inniföldu“
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með „öllu
inniföldu“ á Adonis Isla Bonita *** í 15 nætur.
Aukagjald fyrir einbýli kr. 35.900.
Sértilboð haustsins 6. nóvember
– 15 nætur
Parque Santiago ***
Frá kr. 87.500 í 7 nætur
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í íbúð með einu svefnherbergi.
Netverð m.v. 2 fullorðna í studio íbúð kr. 99.500 á mann.
Sértilboð 22. maí í 7 nætur með 15.000 króna bókunarafslætti.
Gott er að byrja daginn við hið glæsilega óperuhús
Kaupmannahafnar. Þar er hægt að virða fyrir sér sólar-
upprásina við höfnina og þá fáu báta sem sigla á þeim
tíma. Hinum megin við vatnið standa Amalienborg-
kastalarnir og Marmarmakirkjan.
Á leið frá óperuhúsinu er þess virði að koma við í hin-
um konunglega listaháskóla Danmerkur. Oftar en ekki
er hægt að sjá nemendur flétta baststóla og smyrja sér
rúgbrauð með kæfu á tröppum skólans.
Stutt þaðan frá er Erdkehlgraven; lækur við afar ró-
legt og lítið skógarsvæði, eins konar nátturuvin í höfuð-
borginni. Hægt er að koma sér fyrir á fleka á læknum
og fylgjast þar með kajakpóló-æfingum.
Þá er tilvalið að fá sér nesti að fyrirmynd listnem-
enda í borginni.
Eftir afslöppun við Erdkehlgraven tekur við gangur
niður Prinsessegade að Vor frelsers kirke. Sú kirkja er
byggð eins og skrúfa sem rís 900 metra í loftið. Hægt
er að fara upp stiga hennar allt upp að topp.
Þar er útsýni yfir alla Kaupmannahöfn. Þetta er þó
líkamlega þreytandi og ekki fyrir mjög lofthrædda.
Ef menn verða þreyttir er Kristjaníusamfélagið í
sömu götu þar sem hægt er að ná sér niður.
Um eftirmiðdag er tilvalið að færa sig í miðbæinn og
heimsækja Bo-bi bar á Klarebodernegötu. Þessi litla bó-
dega var stofnuð á öðrum áratug síðustu aldar og hefur
haldið sama stíl innréttinga síðan þá.
Staðinn sækja mest heimamenn sem reykja, drekka
og fara yfir málin. Ef menn þyrstir í kaffibolla eða bjór
verður það ekki kaffi úr vél eða bjór af krana. Aðeins er
boðið upp á uppáhellingu og flöskubjór, ekkert kjaftæði.
Um kvöldið er óvitlaust að fara á Mikkeller bar á Vikt-
oriegade. Barist er um sæti á þessum margverðlaunaða
bar sem býður upp á 20 mismunandi bjórtegundir á
krana en úrvalið breytist dag frá degi. Á boðstólum er
bjór frá Mikkeller og öðrum míkróbrugghúsum.
Hægt er að enda nóttina í Kødbyen, gömlu slátrara-
hverfi sem breytt hefur verið í hverfi veitinga- og
skemmtistaða. Þar á Ísland fulltrúa á Jolene-barnum, ef
menn skyldu vera komnir með heimþrá.
Í ferðalag með heimamanni
Dagurinn er tekinn snemma með Jóhannesi en hann nýtur þess að sýna gest-
um sínum sólarupprásina og fylgast með bátunum í höfninni hjá Óperunni.
JÓHANNES PÁLL SIGURÐSSON ER NEMI VIÐ CPS-VIÐSKIPTAHÁSKÓLANN Í KAUP-
MANNAHÖFN. HANN SAGÐI SUNNUDAGSMOGGANUM HVAÐA SPENNANDI
ÆVINTÝRI HANN BÝÐUR SÍNUM GESTUM UPP Á.