Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2012, Blaðsíða 8
Vettvangur
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.10. 2012
Allir kjördagar eru mikilvægir. Við getumhaft ólíkar skoðanir á tilgangi og tilefnieinstakra kosninga en það breytir því
ekki að allir kjördagar fela í sér mikilvægt tæki-
færi til að segja skoðun sína, hafa áhrif og vera
virkur þátttakandi í lýðræðissamfélagi.
Dagurinn í dag er engin undantekning. Nú er
tími til að fara í betri fötin, halda til kjörfundar og
svara þeim spurningum sem fyrir okkur eru lagð-
ar. Þetta gerum við ekki aðeins vegna þess að við
viljum síður vakna á morgun og vera ósátt við nið-
urstöðu sem höfðum engin áhrif á, heldur vegna
þess að við teljum það bæði rétt okkar og skyldu.
Þess vegna mætum við á kjörstað. Og við kjós-
um, þrátt fyrir að við séum að mestu ánægð með
stjórnarskrána sem við höfum átt svo lengi og
alltaf endurskoðað í góðri sátt. Og við kjósum,
þrátt fyrir að við séum ekki ánægð með hvernig
stjórnvöld hafa haldið á málinu og þetta sé ekki
raunveruleg heldur ráðgefandi þjóðaratkvæða-
greiðsla. Og við kjósum, þrátt fyrir að síðasta
kosning vegna sama máls hafi verið dæmd ógild af
Hæstarétti og flestir séu sammála um að útfærsl-
an nú sé svo ófullkomin að erfitt verði að lesa með
afgerandi hætti úr niðurstöðunni. Og við kjósum,
þrátt fyrir að þessi dýrmæti samfélagssáttmáli
okkar eigi svo miklu betra skilið, það sé óskiljan-
legt að beintengja hann bankahruninu og óþolandi
að það sem á að sameina okkur skuli stöðugt not-
að til átaka og ágreinings.
En þrátt fyrir þetta allt, eða kannski einmitt
vegna þessa alls, er kjördagurinn sem nú er runn-
inn upp svo mikilvægur. Einmitt vegna þess
hvernig haldið hefur verið á málinu og hversu
nauðsynlegt er að framhaldið verði farsælla,
skiptir máli að niðurstaðan í dag verði þannig að
hún kalli ekki á ólíkar túlkanir strax á morgun.
Traustið til málsins er nefnilega því miður ekki
meira en svo að kjósendur hafa af því áhyggjur að
niðurstaðan verði túlkuð flokkspólitískt og með
hana unnið á þeim forsendum. Það er vont og end-
urspeglast í fullyrðingum um að þeir sem ekki
vilja ganga til verksins með þessum hætti nú, vilji
engar breytingar á stjórnarskránni og hafni öfl-
ugri aðkomu almennings að þeim. Að sjálfsögðu
er það alrangt og álíka fjarstæðukennt og þegar
sagt var að þeir sem ekki studdu Icesave-
samningana vildu einangra landið og koma í veg
fyrir framfarir, þegar afstaðan snérist um það eitt
að gera það sem var rétt og standa gegn vondri
ákvörðun ríkisstjórnarinnar fyrir íslenska þjóð.
Í dag verðum við að nýta tækifærið til að senda
skýr skilaboð um hvort við viljum að tillögurnar
sem fyrir liggja og þar með sú vinna, sem er und-
anfari þessara kosninga, verði grundvöllurinn að
nýrri stjórnarskrá og nýjum samfélagssáttmála
fyrir Ísland. Ég mun segja nei – því nú getur þjóð-
in gert það sem hún hefur svo oft gert áður –
tryggt að mál sem stjórnvöld hafa unnið illa fái
farsæla lausn.
Þegar nei er eina svarið
*Nú getur þjóðin gert þaðsem hún hefur svo oftgert áður – tryggt að mál sem
stjórnvöld hafa unnið illa fái
farsæla lausn.
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
hanna.birna.kristjansdottir@reykjavik.is
Djúpið ekki djúpt?
Kristinn Hrafnsson sagði á fés-
bókarsíðunni frá upplifun sinni á
bíómynd Baltasars Kormáks, Djúp-
inu. „Sá loks Djúp-
ið í gær og var sú
upplifun í hróp-
legri andstöðu við
allt það lof sem
mér er sagt að hafi
verið hlaðið á þessa kvikmynd. Ekki
við leikara að sakast því þeir virð-
ast hafa haft úr litlu að spila. Hægt
að hæla tæknimönnum fyrir margt
gott. Botninn datt alveg úr mynd-
inni þegar kemur að atburðum eft-
ir sundafrek aðalpersónunnar og
undirstrikar hversu grunnt þetta
verk ristir.“
Helgi Seljan
tekur undir með
honum og segir:
„Ég var satt best
að segja reiður yf-
ir því hvernig klæmst var með efn-
ið. Steininn tók úr þegar í lok
myndarinnar var birt viðtal við
Guðlaug sjálfan. Þá gerði maður
sér best grein fyrir hversu grunnt
þetta „meistarastykki“ Baltastars
risti í raun.“
Fúsk eða ekki fúsk?
Bjarni Benediktsson skrifar á
fésbókarsíðu sína: Þingmönnum
landsbyggðar mun væntanlega
fækka í 11 á móti 52 þingmönnum
höfuðborgar og þéttbýlis ef tillögur
stjórnlagaráðs ná fram að ganga.
Jafnt vægi atkvæða og gjörbreytt
kosningakerfi eru ástæðan. Um
þetta er fjallað í athyglisverðri
grein sem Þóroddur Bjarnason,
prófessor, skrifar í Fréttablaðið í
dag. Með þessu væri landsbyggð-
inni gefið langt nef.
Sóley Björk
Stefánsdóttir
skrifar aftur á
móti: „JÁ-JÁ-NEI-
JÁ-NEI-JÁ – svona
ef einhver var að
velta því fyrir sér hvað mér fyndist.
Rök verða gefin upp gegn fyrir-
spurnum :)“
AF NETINU
Tökulið kvikmyndarinnar um þrumuguðinn
Þór er farið af landi brott eftir að hafa lagt
undir sig allar helstu náttúruperlur Suður-
lands.
Leikarar myndarinnar létu ekki mikið fyrir
sér fara en þó fengu heppnir gestir veitinga-
staðarins Vegamóta að njóta nærveru þeirra
Zacharys Levis og Toms Hiddlestons þegar
þeir slettu lítillega úr klaufunum á frídegi sín-
um um síðustu helgi. Stjörnurnar kunnu
greinilega vel við sig á Íslandi og fannst lítið
mál að leyfa stúlkunum að mynda sig með
þeim en myndir af þeim birtust meðal annars á
einni af fjölmörgum aðdáendasíðum kvik-
myndarinnar Thor: The Dark World. Slóðin er
http://thor2fans.tumblr.com.
Zachary Levi var
myndaður í bak og
fyrir af aðdáendum á
Vegamótum.
AFP
Vinsælir á Vegamótum
Hönnunarfyrirtækið Farmers Market, sem
hjónin Jóel Pálsson og Bergþóra Guðnadóttir
eiga og reka, fer gjarnan ótroðnar slóðir í
auglýsingum sínum. Fyrirtækið hefur haft
það fyrir sið að fá til liðs við sig fyrirsætur
sem sinna alla jafna ekki í slíkum hlut-
verkum. Fyrirsætan á mynd sem vekur at-
hygli um þessar mundir er leikhúsmaðurinn
Guðjón Pedersen, Gíó. Guðjón tók sig vel út í
hlutverki fyrirsætunnar þegar hann sat fyrir
í nýrri jakkapeysu frá Farmers Market sem
kallast Akrar en þess má geta að tölur peys-
unnar eru úr lambshorni. Leikmunir ljós-
myndarinnar eru líka eftirtektarverðir en
bassann á enginn annar en Páll Einarsson
jarðskjálftafræðingur en hann er faðir Jóels.
Bassann keypti hann sér þegar hann var 12
ára. Þá eru blómapottarnir frá afa Jóels.
Ljósmyndina tók Ari Magg.
Gíó í nýju
hlutverki
Páll Einarsson jarðskjálftafræðingur á bassann á
myndinni og blómapottarnir eru frá afa Jóels.
Ljósmynd/Ari Magg