Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2012, Qupperneq 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2012, Qupperneq 15
21.10. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 Arion banki býður nú kaupleigu og bílalán til að fjármagna bílakaup. Viðskiptavinir í Vildarþjónustu njóta hagstæðra kjara og geta sparað sér töluverða fjármuni. AÐILD AÐ FÍB Viðskiptavinir sem fjármagna bílakaup sín hjá Arion banka fá ársaðild að Félagi íslenskra bifreiðaeigenda. Aðildin felur m.a. í sér neyðarþjónustu allan sólarhringinn, öflugt afsláttarkerfi og lögfræði- og tækniráðgjöf um allt sem lýtur að bílnum. Á arionbanki.is finnur þú reiknivél sem sýnir með einföldum hætti muninn á þeim valkostum sem í boði eru. Arion bílafjármögnun auðveldar þér að eignast og reka bílinn þinn á hagkvæman hátt. HAGKVÆM BÍLAFJÁRMÖGNUN 4% MINNI eldsneytiskostnaður með réttum loftþrýstingi í dekkjunum H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA 1 2 -1 9 8 8 „Það er kannski rétt að nefna að ég sagði mig úr Sjálfstæðis- flokknum þegar ég var skipaður dómari árið 2004. Þetta gerði ég til þess að sýna með táknrænum hætti að dómstörf mín yrðu ópólitísk þó að reyndar sé nær óþekkt að flokkapólitík komi við sögu í dóms- málum. Nú ætla ég að ganga aftur í flokkinn fyrst og fremst til að styðja Brynjar Níelsson lögmann sem hefur tekið til máls um mjög þarfa hluti og er maður réttarör- yggis og borgaralegra gilda. Ég vil endilega að hann komist á þing og helst að hann verði innanríkis- ráðherra að kosningum loknum. En svarið við spurningu þinni er að þessir menn hafa aldrei látið sig dómstörf mín neinu skipta. Í einu máli sem ég sat í komu þessir menn og gjörðir þeirra við sögu en það var í hinu svokallaða neyðarlaga- máli. Þetta var erfitt mál enda miklir hagsmunir í húfi. Ég komst að þeirri niðurstöðu að gjörðir þess- ara vina minna stæðust ekki stjórn- arskrána og skilaði sératkvæði um það, einn af sjö dómurum.“ Þú ert þekktur fyrir að skila sér- álitum. Af hverju er það? „Ég held að skýringin sé sú að ég er með annan bakgrunn í lög- fræðinni en hinir dómararnir sem höfðu annaðhvort verið dómarar alla sína starfsævi eða kennt lög- fræði áður en þeir urðu dómarar. Ég hafði starfað sem málflytjandi og lögmaður og vissi hvernig það er fyrir fólk að eiga mál sitt undir réttarkerfinu. Þegar á að skerða frelsi, eignir eða beita ríkisvaldi gegn borgurum byrjaði ég því alltaf á að spyrja mig: Er lagaheimild fyrir hendi og eru atvik málsins sönnuð með þeim hætti að inngrip sé heimilt? Mér fannst hinir oft nálgast þetta á annan hátt þó að þar hafi ekki allir verið undir sömu sök seldir. Mín afstaða til dómstarfsins hef- ur alltaf verið sú að hver dómari eigi að taka sjálfstæða afstöðu til sakarefnis. Þetta sé forsenda fyrir því að dómurinn sé fjölskipaður. Ef ágreiningur er til staðar eiga menn að ræða hann í þaula til að öðlast skilning á því hvar hann raunveru- lega liggur og freista þess að jafna hann. Ef ekki næst samkomulag ber dómurunum skylda til að skila sératkvæði vegna þess að þeir eru ekki þarna til að greiða atkvæði í þágu einingar, eða fjölskyldustemn- ingar í réttinum eins og sumir dóm- aranna kölluðu það. Þeim ber skylda til þess að fylgja eigin lög- fræðilegu sannfæringu. Einfalt, ekki satt!“ Að lokum, þú ert þekktur fyrir að hafa ákveðnar skoðanir og hefur í gegnum tíðina fengið á þig harða gagnrýni. Tekurðu slíka gagnrýni inn á þig? „Nei, ég er að eðlisfari léttur í sinni og tek þeim verkefnum sem dagurinn býður upp á. Ég hef alla tíð reynt að vera sjálfum mér trúr og lifa í samræmi við sannfæringu mína. Ég er ekki að segja að það hafi alltaf tekist. Um það verða aðr- ir að dæma, en þetta hefur verið markmiðið og ég hef verið upptek- inn af því. Þess vegna sef ég vel á næturnar og geng jafnan glaður til næsta dags.“ Morgunblaðið/Kristinn Fann fyrir mótbyr og andúð Í VIÐTALI GERIR JÓN STEINAR GUNNLAUGSSON UPP ÁRIN Í HÆSTARÉTTI. HANN RÆÐIR UM ÞÆR BREYT- INGAR SEM HANN TELUR ÞÖRF Á AÐ GERA Á RÉTT- INUM OG SEGIST HAFA MÆTT ANDÚÐ ANNARRA DÓMARA ÞAU ÁR SEM HANN STARFAÐI ÞAR. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.