Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2012, Page 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2012, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.10. 2012 Matur og drykkir M atreiðsluvörur ýmiss konar eru í aðalhlutverki á vefsetri Mjólkursamsölunnar www.gottimatinn.is sem fór í loftið á dögunum. Meðal þess sem þar er kynnt er til dæmis grísk jógúrt, ostar og rjómi, allt vörur sem henta vel til matargerðar. Vefsetur þetta nýtur vinsælda enda má þar finna margskonar upplýsingar og hagnýt ráð sem duga vel í matargerð. Að sögn Guðnýjar Steinsdóttur, markaðsstjóra MS, var mikil vinna lögð endurgerð vefsetursins og leiðarljósið var að gera síðuna notendavænni. Meðal breytinga sem fylgja nýja útlitinu er aukin áhersla á matarmyndir með uppskrift- unum. „Auk þess eru nú ítarlegri upplýsingar um matreiðsluna og hafa allar uppskriftir verið flokkaðar í einfaldar, miðlungs og erfiðar. Auðvelt er að leita að uppskriftum á síðunni og hægt er að skrá sig á síðuna og halda þar utan um sínar uppáhaldsuppskriftir,“ segir Guðný og bætir við að framsetning og áherslumál á síðunni muni að nokkru leyti taka mið af tíðarandanum hverju sinni. Nú fari til dæmis margir að huga að bakstri fyrir jólin og þar er til dæmis rjómi og smjör mikilvægt hráefni. Ein helsta nýlundan í efnistökum á vefsetrinu nú eru skrif nokkurra matgæðinga sem leggja orð í belg um matargerð. Þeir hafa allir mjög ólíkar áherslur: Thelma Þorbergsdóttir sérhæfir sig í kökuuppskriftum, Inga Elsa Bergþórsdóttir og Gísli Egill Hrafnsson leggja áherslu á að elda eftir árstíðum, Erna Viktorsdóttir skrifar um heilsurétti og Kári Sævars- son mun blogga um franska matargerð og margt fleira. „Matur er menning. Við höfum skynjað að áhugi fólks fyrir matarbloggi er mikill og margir skrifa skemmtilega pistla um það efni. Því tókum við slaginn og fáum sjónarhorn þessa fólks, sem bæði getur skrifað skemmtilegan texta og galdrað fram veislu úr góðu hrá- efni,“ segir Guðný að lokum. sbs@mbl.is MATARBLOGG Á MJÓLKURVEF Veislan og galdurinn MARGT MÁ MATBÚA ÚR MJÓLKINNI. NÝR VEFUR HJÁ MS. FJÖLDI VELÞEKKTRA BLOGGARA LEGGUR ORÐ Í BELG OG GEFUR GÓÐ RÁÐ. Undirbúningstími 20 mín. Bökunartími 20 mín. 24 stykki 340 g hveiti 3 tsk. lyftiduft ½ tsk. salt 170 g smjör við stofuhita 375 g sykur 5 stk eggjahvítur 2½ tsk. vanilludropar 280 ml mjólk 24 Oreo-kexkökur Hitaðu ofninn í 180 gráður og raðaðu 24 bollakökuformum á ofnplötu. Blandið hveiti, lyftidufti og salti saman í sér- skál og setjið til hliðar. Hrærið smjör þar til mjúkt og bætið svo sykrinum saman við og hrærið þar til blandan verður ljós og létt. Bætið saman við eggjahvítunum, einni í einu, og hrærið vel á milli, bætið svo van- illudropum saman við. Blandið hveitiblöndunni varlega saman við ásamt mjólkinni, gott er að setja smá af hvoru tveggja í einu og leyfa því að blandast vel á milli. Setjið heila oreo-köku í botninn á hverju bollakökuformi og setjið svo deigið yf- ir, fyllið formið ekki meira en u.þ.b. 2⁄3. Þeir sem vilja hafa eitthvað óvænt inni í miðjunni á kökunni geta sett mini-sykurpúða ofan í deig- ið og ýtt niður. Bakið í u.þ.b. 20 mín. Oero-krem 450 g smjör við stofuhita 50 ml rjómi 2 tsk. vanilludropar 1 kg flórsykur 15 Oreo-kökur muldar vel niður, gott er að nota matvinnsluvél Hrærið smjör þangað til það verður mjúkt og fínt. Bætið flórsykrinum smám saman við og hrærið vel á milli. Bætið smá og smá af rjóm- anum saman við. Bætið vanilludropum saman við. Myljið Oreo-kexið í matvinnsluvél og blandið saman með sleif. Sprautið kremi á kældar kökurnar og skreytið með Oreo-kexi. 24 BOLLAKÖKUR Margar nýjungar, segir Guðný Steinsdóttir, markaðsstjóri hjá MS. Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.